Fréttir

true

Laugarhúsið við Hreppslaug heyrir nú sögunni til

Síðastliðinn mánudag var gamla laugarhúsið við Hreppslaug í Skorradal jafnað við jörðu. Lauginni var lokað fyrir gestakomum í endaðan júlí. Byrjað var á framkvæmdum í síðustu viku þegar vaskur hópur ungmennafélaga reif á tveimur kvöldstundum þakplötur, timburklæðningu af útveggjum og innréttingar. Með flokkun byggingarefnanna sparaði félagið kostnað við förgun. Útveggir hússins voru svo rifnir á…Lesa meira

true

Borgfirskar konur í stjórnunarstöður á Bifröst

Þann 1. ágúst tók Margrét Jónsdóttir Njarðvík formlega við sem rektor Háskólans á Bifröst. Margrét þekkir vel til í Borgarfirðinum, hún er ættuð frá Fljótstungu í Hvítársíðu og var alla æskuna í sveit að Húsafelli. Síðsumars flutti hún að Bifröst og aðspurð segist hún full tilhlökkunar að takast á við að halda áfram að byggja…Lesa meira

true

Ístak átti lægra boðið í breikkun á Kjalarnesi

Tilboð í fyrsta áfanga breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Aðeins tvö tilboð bárust og átti Ístak hf. lægra tilboðið, eða rúmar 2.305 milljónir króna sem er um fjórum prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 2.226 milljónir. Hærra boðið var sameiginlegt tilboð Suðurverks og Loftorku, upp á 2.587 milljónir, eða…Lesa meira

true

Íþróttamannvirki lokuð í þessari viku

Vegna árlegs viðhalds íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar verða þau lokuð í þessari viku, frá 10. ágúst til og með föstudagsins 14. ágúst. Fram kemur í tilkynningu frá Akraneskaupstað að Jaðarsbakkalaug verði opnuð aftur laugardaginn 15. ágúst klukkan 9:00.Lesa meira

true

Snyrtivara.is með kynningu á byggðasafninu á laugardaginn

Laugardaginn 15. ágúst n.k. verður snyrtivara.is með POP UP markað í Stúkuhúsinu á Akranesi. „Stelpurnar á snyrtivara.is segja að mikið hafi verið pantað af síðunni frá Akranesi og þess vegna var ákveðið að hafa POP UP markað þar sem viðskiptavinir geta komið og skoðað vörurnar og gert góð kaup. Snyrtivara.is er eina verslunin á Íslandi…Lesa meira

true

Sveitarstjórnarráðuneytið boðar umfjöllun um stjórnsýslu

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur tilkynnt Borgarbyggð að ráðuneytið telji ástæðu til að taka stjórnsýslu sveitarfélagsins til formlegrar umfjöllunar og gefa út leiðbeiningar/álit um lögmæti athafna þess. Bréf þess efnis rita Hermann Sæmundsson og Stefanía Traustadóttir, starfsmenn ráðuneytisins, fyrir hönd ráðherra, 4. ágúst sl. Tilefni væntanlegrar umfjöllunar er erindi sem Málflutningsstofa Snæfellsness ehf., lögfræðistofa Péturs Geirssonar…Lesa meira

true

“Það var aldrei á stefnuskránni að opna eigin lögmannsstofu“

Húnvetningurinn og lögmaðurinn Ingi Tryggvason var nýlega skipaður í embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness og hefur hann störf 31. ágúst næstkomandi. Eru þetta ákveðin tímamót á starfsferli Inga sem hefur rekið eigin lögmannsstofu og fasteignasölu, LIT ehf., í Borgarnesi í 21 ár. „Spurningin hjá mér var aðallega sú hvort ég ætti að skipta um starfsvettvang…Lesa meira

true

Festi höfuðið í stiga

Íbúi á Akranesi hafði samband við lögreglu síðastliðinn sunnudag þegar hann varð var við einhvern sem kallaði á hjálp. Lögregla fór á staðinn og heyrði hjálparköll berast úr húsi einu og braut sér leið þar inn. Þegar lögregla var komin inn í húsið kom hún að konu sem hafði fest höfuðið milli þrepa í stiga.…Lesa meira

true

Áttatíu prósenta fækkun flugfarþega í júlí

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 45.600 í nýliðnum júlí samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 80,3% færri en í júlí í fyrra, þegar þær voru um 231 þúsund talsins. Danir voru fjömennastir í júlí eða ríflega fimmtungur brottfara og fjölgaði þeim um þriðjung frá júlí í fyrra. Næstfjölmennastir voru Þjóðverjar (20,2%) en…Lesa meira

true

Nýr deildarforseti á Bifröst

Njörður Sigurjónsson, prófessor í menningarstjórnun, hefur verið ráðinn forseti félagsvísinda- og lagadeildar Háskólans á Bifröst. Hann tekur við stöðunni af Magnúsi Árna Skjöld Magnýssyni, sem mun halda áfram sem dósent við skólann. Njörður hefur frá 2004 kennt við meistaranám í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Áður var hann framkvæmdastjóri Bókmenntasjóðs, markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sviðs-…Lesa meira