Fréttir

true

Guðni settur í embætti í annað sinn

Guðni Th. Jóhannesson var settur í embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu við Austurvöll laugardaginn 1. ágúst síðastliðinn. Athöfnin var töluvert minni í sniðum og færri viðstaddir en venja er vegna varna gegn kórónuveirunni. Í þinghúsinu lýsti forseti Hæstaréttar kjöri forseta sem undirritaði svo eiðstaf sinn. Þá flutti forseti Íslands innsetningarræðu.Lesa meira

true

Íslandsmótið í golfi hefst á fimmtudaginn

Íslandsmótið í golfi mun fara fram dagana 6.–9. ágúst á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Golfsamband Íslands lagði fram tillögur til stjórnvalda um að leika keppnisgolf og jafnframt virða sóttvarnareglur. Var það gert í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða og takmörkunar á íþróttastarfi í kjölfar tilkynningar stjórnvalda 30. júlí. „Það er Golfsambandinu mikil ánægja að tilkynna að tillögurnar…Lesa meira

true

Tilmæli vegna íþróttastarfs fullorðinna eftir hertar reglur

Samkomur voru takmarkaðar á hádegi síðastliðinn föstudag. Yfirvöld hafa vegna þessa gefið út tilmæli um íþróttastarf fullorðinna og gilda þær til 13. ágúst næstkomandi. Hertar aðgerðir miða að því að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. Tilmæli hafa jafnframt borist frá yfirvöldum um áhrif hertra aðgerða á íþróttastarf fullorðinna (þ.e. þeirra sem…Lesa meira

true

Plan-B í Borgarnesi með breyttu sniði vegna COVID-19

Listahátíðin Plan-B Art Festival, sem fram fer árlega í Borgarnesi, verður dagana 7. –9. ágúst n.k. en með breyttu sniði að sögn skipuleggjenda. „Frá fyrsta degi hefur Plan-B lagað sig að óhefðbundnum aðstæðum, við höfum til dæmis sýnt list í gömlu sláturhúsi, í heimahúsum og íþróttamiðstöðinni og smeygt listinni inn hér og þar í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Héldu tombólu fyrir RKÍ

Þær Esther Nanna Lýðsdóttir og Þóra Birna Jónsdóttir héldu nýverið tombólu til stuðnings Rauða krossinum. „Þessar duglegu stelpur söfnuðu 9.058 krónum fyrir Rauða krossinn með því að ganga í hús og biðja um hluti á tombólu og selja síðan fyrir utan Bónus og Krónuna,“ segir í tilkynningu frá RKÍ á Akranesi sem þakkar þeim stöllum…Lesa meira

true

Kylfingar landsins aldrei fleiri

Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri, en 1. júlí síðastiðinn voru skráðir félagsmenn golfklúbba víðs vegar um landið 19.726 talsins. Hefur kylfingum fjölgað um rúmlega 1900 frá síðasta ári, eða sem nemur um 11%, að því er fram kemur á vef Golfsambands Íslands. Aukningin er 25% í flokki 15 ára og yngri og fjölgun…Lesa meira

true

Eldri Borgfirðingar á ferð um Breiðafjörð og Dali

Eftir margra mánaða bið vegna Covid-19 veirunnar lagði Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum loks upp í langþráð ferðalag. Ekið var með Birgi Pálssyni bílstjóra á rútu frá Sæmundi Sigmundssyni til Stykkishólms þar sem Sturla Böðvarsson fyrrum bæjarstjóri, þingmaður og ráðherra tók á móti hópnum. Lýsti Sturla viðhaldi gamalla bygginga og mannlífinu í Hólminum fyrr og nú.…Lesa meira

true

Gestir aldrei verið fleiri á Geitfjársetrinu Háafelli

Það var ys og þys á bæjarhlaðinu á Háafelli í Hvítársíðu þegar blaðamann Skessuhorns bar þar að garði um miðja síðustu viku. Gestir þennan dag voru að stórum hluta íslenskt barnafólk, en erlendu ferðafólki, einkum frá Þýskalandi og Norðurlöndunum, fer þó fjölgandi að sögn Þorbjarnar Oddssonar bónda. Hann segir að þetta ár muni metfjöldi heimsækja…Lesa meira

true

Skeljahátíðin var haldin í Stykkishólmi

Skeljahátíð fór fram dagana 23.-26. júlí í Stykkishólmi. Þar var allskonar viðburði hægt að sækja. Fyrsti dagskráliður hátíðarinnar var á fimmtudegi þegar boðið var upp á kósý stund í Nýræktinni. Þar var hlustað á ljúfa tóna yfir varðeldi og sötrað heitt kakó. Á föstudag var hægt að fara í vikinga-sushi siglingu með Sæferðum og ljúka…Lesa meira

true

Verulega hertar aðgerðir vegna Covid-19

Á hádegi á morgun, 31. júlí, taka gildi hertar aðgerðir innanlands og á landamærum vegna COVID-19 sem standa í tvær vikur, út 13. ágúst nk. Ákvörðunin er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem heilbrigðisráðherra hefur samþykkt.  Um aðgerðir innanlands frá 31. júlí: • Takmörkun á fjölda sem kemur saman miðast við 100 einstaklinga. Börn fædd…Lesa meira