Fréttir

true

Töluvert dregur úr lausum störfum á vinnumarkaði

Laus störf á íslenskum vinnumarkaði voru 2.600 á öðrum ársfjórðungi þessa árs samkvæmt starfaskráningu Hagstofu Íslands. Á sama tíma voru um 198.700 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því 1,3%. Borið saman við fyrsta ársfjórðung 2020 fækkaði lausum störfum um 300 en hlutfall lausra starfa hefur haldist óbreytt. Borið saman við annan ársfjórðung 2019 má…Lesa meira

true

Baldur gæti komist í gang um næstu helgi

Vélarbilun í flóabátnum Baldri í síðustu viku reyndist meiri en í í fyrstu var talið. Ventill í heddi vélarinnar reyndist hafa farið inn í túrbínu og skemmt hana. Smíða þarf varahluti í vélina í Danmörku og á því verki að verða lokið um miðja þessa viku. Í tilkynningu frá Sæferðum kemur fram að vonast er…Lesa meira

true

Reykholtshátíð verður síðustu helgina í júlí

Reykholtshátíð verður haldin um síðustu helgina í júlí, venju samkvæmt, sem í ár ber upp á 24. til 26. júlí. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á afar fjölbreytta efnisskrá, bæði kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar. Feðgar syngja í fyrsta sinn saman…Lesa meira

true

Viðurkenning EarthCheck endurnýjuð

Nýverið hlutu sveitarfélögin á Snæfellsnesi framlengingu á umhverfisvottun EarthCheck fyrir starfsemi sína. Vottunin hefur nú verið endurnýjuð árlega frá 2008. Sveitarfélögin tóku sameiginlega ákvörðun um aldamótin að standa vörð um umhverfið og hófu að gera umbætur í starfsemi sinni og miðla fræðslu til íbúa. Árið 2003 hófu þau ásamt Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, umfangsmikla undirbúningsvinnu að umhverfisvottun…Lesa meira

true

Eldur í ruslageymslu á Akranesi

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út klukkan 22:40 í kvöld að húsi við Skólabraut á Akranesi. Þar var mikill eldur í ruslageymslu í þröngu porti milli húsanna við Skólabraut 21 og 23. Íbúar komust út og enginn slasaðist. Slökkvistarf gekk greiðlega en skemmdir urðu á klæðningu beggja húsanna og ljóst að ekki mátti miklu…Lesa meira

true

Fjölmiðlar fá einskiptisstuðning vegna áhrifa Covid 19

Á nýliðnu þingi var mennta- og menningarmálaráðherra falið að útfæra með reglugerð fyrirkomulag við úthlutun 400 milljóna kr. sérstaks rekstrarstuðnings við einkarekna fjölmiðla til að mæta efnahagslegum áhrifum COVID-19. Reglugerðin liggur nú fyrir, kynnt ríkisstjórn og birt á vef Stjórnartíðinda. Við ákvörðun styrkja verður litið til launa, fjölda starfsmanna og verktakagreiðsla vegna miðlunar á fréttum…Lesa meira

true

Miklar umferðartafir á Kjalarnesi

Miklar umferðartafir eru á Kjalarnesi vegna malbikunarframkvæmda og umferð er handstýrt. Geta liðið allt að 20 mínútur á milli þess að skipt er um akstursstefnu. „Vegfarendum er bent á hjáleið um Mosfellsheiði, Kjósarskarð og Hvalfjörð.  Athugið að hin akreinin verður malbikuð á morgun þriðjudaginn 7. júlí og má þá einnig reikna með töfum,“ segir í…Lesa meira

true

Tóku þátt í Aldursflokkameistaramóti í sundi

Um síðustu helgi fór Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi fram í Hafnarfirði. Mótið er bæði keppni á milli liða, þar sem átta fyrstu sundmenn í hverri grein og hverjum aldursflokki gefa stig, og einnig eru stigahæstu sundmenn hvers aldursflokks krýndir. Alls tóku 20 sundfélög þátt í mótinu og voru keppendur 285. Sundfélags Akraness mætti til leiks…Lesa meira

true

Nýr risi verður til á kjötvinnslumarkaði

Kjarnafæði og Norðlenska í eina sæng Eigendur kjötvinnslufyrirtækjanna Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna. Um gríðarstóran samruna er að ræða á kjötmarkaði þar sem yfir 370 stöðugildi eru unnin á hverju ári hjá fyrirtækjunum. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar,…Lesa meira

true

HMS úthlutar til byggingar 63 hagkvæmra leiguíbúða á Vesturlandi

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað ríflega 3,6 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið, svokallaðra almennra íbúða. Leiguíbúðirnar verða í 15 sveitarfélögum og þar af verða 63 hér á Vesturlandi. Fjármunirnir eru hugsaðir til að styðja við framboð ódýrra leiguíbúða fyrir almenning og verða nýttir til byggingar á 438 íbúðum…Lesa meira