Fréttir

true

Bjóða í partí eftir götugrill í kvöld

„Bláir, Rauðir, Gulir – Allir velkomnir,“ segir í tilkynningu frá Halldóri Hólm og félögum í Borgarnesi. Þeir gangast fyrir partíi við Kvíaholt 8 í Borgarnesi í kvöld í tilefni Brákarhátíðar. Það hefst klukkan 20:30 og stendur eitthvað frameftir kvöldi. „Það verður hljómsveit og „Open Mic“ svo að allir geti sungið,“ segir Halli Hólm tónlistarmaður og…Lesa meira

true

Metþátttaka í Snæfellsjökulshlaupinu

Á morgun, laugardaginn 27. júní, verður Snæfellsjökulshlaupið haldið í tíunda skipti. Að sögn þeirr Ránar og Fannars, sem skipuleggja hlaupið, verður um metþátttöku að ræða að þessu sinni. Hlaupið hefst klukkan 12 á Arnarstapa og endað í Ólafsvík. Reiknað er með að fljótustu keppendur verði hálfan annan klukkutíma að komast í mark. Götur við markið…Lesa meira

true

Verja á 46 milljörðum á fimm árum til að bæta loftslagsmál

Forystufólk ríkisstjórnarinnar kynnti fyrr í vikunni aðra útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum. Með aðgerðunum er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dregist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005. Það þýðir að Ísland á að ná alþjóðlegum skuldbindingum sínum í loftslagsmálum um 29% samdrátt og…Lesa meira

true

Útbreiðslusvæði bæjarblaðsins Jökuls minnkað að nýju

Frá því er greint í nýjasta tölublaði bæjarblaðsins Jökuls í Ólafsvík að ákveðið hafi verið að draga útbreiðslusvæði blaðsins saman að nýju eftir sex mánaða tilraun sem gerð var í desember síðastliðnum. Þá var dreifingarsvæði blaðsins öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi. „Því miður hefur komið í ljós að þessi tilraun gengur ekki upp, því ekki hefur…Lesa meira

true

Fjölnota netpokar í stað plastpokanna í Vinnuskólanum

Í sumar gerir Vinnuskóli Akraneskaupstaðar tilraun með heynet í stað svartra ruslapoka til að fjarlægja gras af flötum bæjarins. Í sumar verður þó blönduð notkun á þessum tveimur tegundum af pokum á meðan aflað er reynslu og gerðar viðeigandi ráðstafanir áður en skrefið er tekið til fulls, eins og fram kemur á vef Akraneskaupstaðar. Heynet…Lesa meira

true

Skagamenn áfram í Mjólkurbikarnum

Mikill spennuleikur átti sér stað í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla þegar ÍA og Kórdrengir mættust í gærkvöldi. Leikurinn var spilaður í Safamýrinni í Reykjavík. Allt stefndi í skyldusigur Skagamanna en þeir spila í úrvalsdeild karla á meðan Kórdrengir eru nýliðar í 2. deild. Það kom því efalaust sumum á óvart að fyrsta mark leiksins kom…Lesa meira

true

Svavar Knútur og Kristjana Stefáns í tónleikaferð um Vesturland

Söngvararnir Svavar Knútur og Kristjana Stefáns leggja land undir fót og halda af stað um Vesturland í júlímánuði og ætla að syngja dúetta og spila létta tónlist á vel völdum stöðum í landshlutanum. Tónleikaröðin ber það ljúfa heiti; Með faðmlög í farteskinu. „Tónleikarnir okkar eru afskaplega einfaldir og látlausir og við leikum okkur bara með…Lesa meira

true

Bíll nagaður meðan gengið var á fjallið

Göngugarpur einn sem fór á Akrafjall í liðinni viku lagði bílnum sínum ekki innan afgirts bílastæðis við fjallið. Lenti hann í því að hross komust að bílnum og nöguðu hann frekar illa en hross ganga laus í haganum þarna við rætur fjallsins enda um einkaland bænda að ræða. Þykir hrossum gott að sleikja seltu og…Lesa meira

true

Nokkrir á ferðinni undir áhrifum

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í landshlutanum síðastliðna viku undir áhrifum fíkniefna og einn ökumaður sem var ölvaður. Miðvikudaginn 17. júní var einn ökumaðurinn stöðvaður á Vesturlandsvegi á milli Borgarness og Akraness og reyndist hann vera undir áhrifum amfetamíns. Sunnudaginn 21. júní var ökumaður stöðvaður í Skorradal og þegar betur var að gáð svaraði hann jákvætt…Lesa meira

true

Forsetakosningar eru á morgun

Þjóðin kýs forseta til næstu fjögurra ára á morgun, laugardaginn 27. júní. Tveir eru í kjöri; Guðmundur Franklín Jónsson viðskiptafræðingur og Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur og forseti. Framkvæmd forsetakjörs er samvinnuverkefni nokkurra opinberra aðila. Má þar nefna dómsmálaráðuneytið, Þjóðskrá Íslands, utanríkisráðuneytið, sveitarstjórnir, sýslumenn, kjörstjórnir og Hæstarétt Íslands. Sveitarstjórnir leggja fram kjörskrár á grundvelli kjörskrárstofna frá…Lesa meira