Fréttir

true

Tvær aðskildar bilanir í Deildartunguæð

Nú standa yfir viðgerðir á tveimur stöðum á Deildartunguæð, flutningslögn hitaveitu frá Deildartungu til Akraness og Borgarness, eftir að leki kom að henni þar sem hún liggur yfir Andakílsá og við bæinn Varmalæk í Borgarfirði. Lekinn við Andakílsá er áætlaður 5-10 l/sek en meðalrennsli árinnar sjálfrar er að jafnaði um 3.000-22.000 l/sek. Í hádeginu var…Lesa meira

true

Tryggja skólum nægt rekstrarfé

Framhalds- og háskólum landsins verður tryggt nægt fjármagn til að mæta metaðsókn í skólana, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Áætlanir gera ráð fyrir að á komandi skólaári fjölgi nemendum á framhaldsskólastigi um allt að 2.000 og um 1.500 á háskólastigi. Umsóknum um háskólavist fjölgar um 23% milli ára og mikil aðsókn er í fjölbreytt starfs- og iðnnám…Lesa meira

true

Tónleikaröð með söguívafi í Einkunnum

Fyrsti viðburður í tónleikaröðinni ,,OK í Einkunnum” tónleikar með söguívafi, verður fimmtudaginn 25. júní næstkomandi í fólkvanginum Einkunnum ofan við Borgarnes. Þá ætla þær Soffía Björg og Sigrún Elíasdóttir að bjóða ykkur upp á spennandi ævintýri fyrir alla fjölskylduna þar sem þær tvinna saman sögur og tónlist. Viðburðurinn hefst kl 17:00 og það kostar 1500…Lesa meira

true

Öruggur sigur Víkings í fyrstu umferð

Íslandsmótið í fyrstu deild karla í knattspyrnu hófst um helgina og gerði Víkingur Ólafsvík sér lítið fyrir og sigraði Vestra frá Ísafirði á laugardag þegar liðin áttust við í fyrstu umferð. Leikurinn fór fram á Ólafsvíkurvelli. Heimamenn voru sterkari í byrjun leiks og spiluðu boltanum vel á milli sín. Vestri átti þó eitraðar skyndisóknir þess…Lesa meira

true

Jafntefli ÍA-kvenna

Skagakonur mættu Víkingi Reykjavík fyrir helgi í fyrstu umferð 1. deildar kvenna í fótbolta. Liðin skiptust á um að sækja í upphafi leiks og voru bæði til alls líkleg. ÍA átti dauðafæri á 25. mínútu þegar Víkingur bjargaði á línu eftir mikinn darraðadans í teignum. Stuttu seinna náði Nadía Atladóttir að koma Víkingskonum yfir á…Lesa meira

true

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

Laugardaginn 20. júní útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á Bifröst 102 nemaendur við hátíðlega athöfn. Nemendahópurinn samanstóð af nemendum úr viðskiptadeild, félagsvísinda- og lagadeild og Háskólagátt. Þetta var síðasta útskrift Vilhjálms sem rektor við skólann en hann hefur gegnt því starfi frá 2013. Hátíðin markaði því ákveðin tímamót fyrir skólann, en Margrét Jónsdóttir Njarðvík tekur…Lesa meira

true

Hjúkrunarfræðingar munu kjósa um miðlunartillögu

Ríkissáttasemjari lagði í gærkvöldi fram miðlunartillögu í kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins. Verkfalli var því afstýrt kvöldið áður en það átti að hefjast. Haft er eftir Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara á mbl.is að náðst hafi samkomulag um öll atriði kjarasamnings utan launaliðsins. Launaliðnum verður því vísað í gerðardóm. Greidd verða atkvæði um miðlunartillögu og hefst…Lesa meira

true

Tap í Kaplakrikanum

Skagamenn heimsóttu FH-inga í Kaplakrikann á sunnudagskvöldið í annarri umferð Pepsí Max deildarinnar í fótbolta. Hart var barist strax á upphafsmínútum leiks og jafnræði með liðunum en hægt og rólega fóru heimamenn að síga framúr og gerðu öftustu línu Skagamanna erfitt fyrir. Engin mörk komu þó í fyrri hálfleik þrátt fyrir fín marktækifæri. Í síðari…Lesa meira

true

Samið um verulega aukið landsvæði til skógræktar í Ólafsvík

Skógræktarfélag Ólafsvíkur og Snæfellsbær hafa náð samkomulagi um stækkun landsvæðis til ræktunar trjágróðurs í hlíðunum ofan við byggðina í Ólafsvík. Um er að ræða samning til ræktunar á svokölluðum landgræðsluskógi. Skógræktarfélag Íslands er því einnig aðili að samningnum. Heildarstærð lands sem nýi samningurinn nær til er 39,5 hektarar sem er ríflega 40% stækkun á því…Lesa meira

true

Kolbrún Katla og Kristín Eir Íslandsmeistarar

Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum fór fram á Brávöllum á Selfossi um helgina. Tvær stúlkur úr hestamannafélaginu Borgfirðingi komu heim með gullverðlaun. Það voru þær Kolbrún Katla Halldórsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari í A úrslitum í fjórgangi unglinga og því Íslandsmeistari í þeirri grein. Í barnaflokki varð Íslandsmeistari Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á…Lesa meira