
Framhalds- og háskólum landsins verður tryggt nægt fjármagn til að mæta metaðsókn í skólana, samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Áætlanir gera ráð fyrir að á komandi skólaári fjölgi nemendum á framhaldsskólastigi um allt að 2.000 og um 1.500 á háskólastigi. Umsóknum um háskólavist fjölgar um 23% milli ára og mikil aðsókn er í fjölbreytt starfs- og iðnnám…Lesa meira








