Fréttir

true

Magnús Þór aftur til liðs við Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Magnús Þór Gunnarsson um að leika með félaginu í Domino‘s deild karla næsta vetur. Á síðasta tímabili skoraði hann 10 stig, tók 2,2 fráköst og gaf 1,8 stoðsendingu að meðaltali í 20,4 mínútum í leik fyrir Keflvíkinga. Magnús er reynslumikill leikmaður, 35 ára gamall, margfaldur Íslandsmeistari sem hefur lengst af…Lesa meira

true

„Það mikið elskaða skáld Hallgrímur Pétursson“

Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor, mun flytja fyrirlesturinn „Það mikið elskaða skáld Hallgrímur Pétursson“ í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti í dag, laugardaginn 23. júlí 2016 kl. 13. Fyrirlesturinn er hluti raðarinnar, Fyrirlestrar í héraði. Titill erindisins er tilvitnun í fyrstu útgáfu Hallgrímskvers, en þar segir: „Nokkrir lærdómsríkir sálmar og andlegir kveðlingar, velflestir ortir af því mikið elskaða…Lesa meira

true

Listasýning í Akranesvita innblásin af bernskuminningum

Í Akranesvita á Breið stendur nú yfir listasýning Jónínu Guðnadóttur. Sýningin hófst á írskum dögum, 1. júlí, og lýkur um miðjan ágúst. Um er að ræða 35 metra innsetningu og ber listaverkið nafnið Breið. Jónína bjó á Akranesi til fjölda ára og segir að verkið sé bernskuminningar. „Ég myndi segja að ég væri að stærstum…Lesa meira

true

Drusluganga í Stykkishólmi í fyrsta sinn

Á morgun, laugardaginn 23. júlí, fer fram Drusluganga í Stykkishólmi. Gengið verður frá Freyjulundi/Hólmgarði í átt að höfninni klukkan 14:00. Hálftíma áður verður hægt að kaupa varning fyrir gönguna fyrir þá sem hafa áhuga. Druslugangan hefur verið haldin í Reykjavík undanfarin ár en markmið hennar er að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur.…Lesa meira

true

Reykholtshátíð haldin tuttugasta sinni

Reykholtshátíðin er haldin í tuttugasta skipti nú um helgina. Hátíðin hefst í dag með opnunartónleikum kl. 20:00. Á dagskrá þeirra tónleika eru meðal annars Árstíðirnar eftir Vivaldi, en verkið verður flutt í heild sinni. Heimamenn verða nokkuð áberandi á hátíðinni; opnunartónleikarnir hefjast á söng Reykholtskórsins undir stjórn Viðars Guðmundssonar og einnig mun Margrét Eggertsdóttir verða…Lesa meira

true

Kastaði af sér hverri spjör

  Þegar blaðamaður var á ferð í Ólafsvík fyrir skemmstu gekk hann fram á umkomulausa skó sem sleiktu sólina á framrúðu bíls nálægt höfninni. Eigandi skónna var hvergi sjáanlegur en eitt er víst, að ekki komust þeir þangað af sjálfstáðum. Skammt frá mátti svo sjá húfu og vettlinga, einnig umkomulausa. Engu líkara var sem eigandi…Lesa meira

true

Valdís Þóra fer vel af stað á Íslandsmótinu í golfi

Íslandsmótið í golfi fór af stað í gær á Jaðarsvelli á Akureyri. Mun standa til sunnudagsins 24. júlí. Mikil spenna er í kvennaflokki þessa stundina. Eftir fyrsta daginn var staðan sú að Ólafía Þórunn Kristinsdóttir í Golfklúbbi Reykjavíkur leiddi kvennaflokkinn en hún lék á 70 höggum, einu undir pari. Valdís Þóra Jónsdóttir í Golfklúbbnum Leyni…Lesa meira

true

Laxveiðin mætti vera betri

  Svo virðist sem eins árs laxinn ætli að láta lítið á sér bera ennþá, í  straumurinn sem  er stór þessa dagana.  En  það virðist ekki duga neitt, einn og einn fiskur er að skríða inná flóðinu þessa dagana. Laxveiðin mætti vera betri,  það þarf nýja fiska. Þessir gömlu þekkja allt sem er í boði.…Lesa meira

true

Gasblöðrum bjargað á Faxaflóa

Björgunarsveitir í Reykjavík voru kallaðar út kl. 21.15 til leitar þar sem tilkynnt var um fallhlífarstökkvara í sjónum um 300 metra norður af Gróttu. Fjölmennt lið var sent á staðinn; bátar frá  Slysavarnafélaginu Landsbjörg, bátar og þyrla frá Landhelgisgæslunni auk annarra báta sem voru í nágrenninu tóku þátt í leitinni. Eftir nokkra leit fundust stórar blöðrur á floti…Lesa meira

true

Vilja friða hvali í Faxaflóa

Hvalaskoðunarsamtök Íslands hafa skorað á sjávarútvegsráðherra að beita sér gegn frekari veiðum á hrefnu í Faxaflóa. Í tilkynningu sem samtökin sendu frá sér kemur fram að 34 hrefnur hafi verið veiddar í og við Faxaflóa á vertíðinni sem nú stendur yfir, fimm hrefnum fleiri en veiddar voru í heildina í fyrra. Samtökin segja að hrefnum…Lesa meira