
Skessuhorn óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegs Þjóðhátíðardags!Lesa meira

Skessuhorn óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegs Þjóðhátíðardags!Lesa meira

Hafrannsóknastofnun hefur nú kynnt úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. „Á grundvelli langtímamarkmiða um sjálfbæra nýtingu er lagt til aflamark fyrir á fjórða tug stofna, sem miðast við varúðarsjónarmið og hámarksnýtingu til lengri tíma litið,“ segir í frétt frá stofnuninni. Lögð er til 6% lækkun á aflamarki þorsks byggt á aflareglu stjórnvalda,…Lesa meira

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu verður haldið á Akranesi dagana 18.-21. júní næstkomandi. Verður þetta í 35. skiptið sem mótið fer fram. Í ár fer mótið í fyrsta sinn fram í tvennu lagi, að því er fram kemur í tilkynningu frá ÍA. Á morgun, fimmtudaginn 18. júní, verður eins dags mót fyrir drengi og stúlkur…Lesa meira

Rafmagnslaust verður í Lundarreykjadal í Borgarfirði, ofan Skálpastaða, fimmtudaginn 18. júní frá kl. 13:00 til kl 15:00 vegna vinnu við spennistöð Snartarstöðum. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof. -fréttatilkLesa meira

Sigurður Þór Elísson hefur verið ráðinn í starf eldvarnareftirlitsfulltrúa hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar, en hann hefur starfað við slökkviliðið frá árinu 2002. Sigurður hlaut löggildingu sem slökkviliðsmaður árið 2008 og hefur undanfarin þrjú ár starfað sem annar tveggja þjálfunarstjóra liðsins. „Sigurður Þór hefur frá 2018 starfað við hlið slökkviliðsstjóra SAH við m.a. eldvarnareftirlit og…Lesa meira

Hefð er fyrir því að Félag skógarbænda á Vesturlandi komi saman sem næst Jónsmessu og þá hjá einhverjum skógarbónda innan félagsins og skoði skógræktina hjá honum. Nú í ár bjóða skógarbændurnir á Ferstiklu í Hvalfjarðarsveit, hjónin Margrét Stefánsdóttir og Guðmundur Rúnar Vífilsson, í heimsókn og skógargöngu þriðjudaginn 23. júní. „Mæting er klukkan 18.00 og þá…Lesa meira

Dregið var í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu og 16 liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á laugardaginn. Leikið verður í Mjólkurbikar karla dagana 23.-25. júní næstkomandi. Þar voru ÍA og Víkingur Ó. í pottinum. Drátturinn fór á þá leið að ÍA mætir Kórdrengjum á útivelli og Víkingur Ó. tekur á móti nafna sínum úr…Lesa meira

Opnað var fyrir veiði á suðurhluta Arnarvatnsheiðar í dag, 15. júní. Það er sami tími og undanfarin ár, en nú háttar þannig til að klaki hefur verið í vegslóðum fram undir þetta og mega veiðimenn því búast við bleytu á vegum og slóðum hér og hvar. Mjög mikilvægt er því að halda akstri innan vegslóða…Lesa meira

Föstudaginn 19. júní mun varðskipið Óðinn sigla frá Reykjavík til Akraness. Um borð í Óðni verða félagar í Hollvinasamtökum Óðins, sem af áræðni hafa lagt kraft í varðveislu skipsins, viðhald þess og umhirðu. Skipið er hluti af Sjóminjasafninu í Reykjavík, en varðveitt í því ástandi sem það kom. Óðinn heldur úr Gömlu höfninni um kl.…Lesa meira

Skipin Norma Mary og Björgúlfur EA, sem eru gerð út af Samherja, komu til Grundarfjarðar í síðustu viku til löndunar. Norma Mary kom 11. júní og landaði 220 tonnum af afla og morguninn eftir kom Björgúlfur með 130 tonn. Björgúlfur kom svo aftur að kvöldi 14. júní og landaði 135 tonnum. Skipið hélt svo til…Lesa meira