Fréttir

true

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Föstudaginn 29. maí voru 24 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Sex nemendur voru brautskráðir af Félagsfræðabraut, fimm af Náttúrufræðibraut, þrír af Íþróttafræðibraut – náttúrufræðisviðið, tveir af Íþróttafræðibraut – félagsfræðisviði, fjórir af Náttúrufræðibraut – búfræðisviði, þrír af Opinni braut og einn af starfsbraut. Við athöfnina fór Lilja S. Ólafsdóttir aðstoðarskólameistari yfir skólaárið, Elís Dofri…Lesa meira

true

Gunnar Einarsson þjálfar Kára

Knattspyrnufélagið Kári hefur samið við Gunnar Einarsson um að taka við þjálfun liðsins. Var hann valinn úr hópi átta umsækjenda. Eins og áður hefur verið greint frá var Jón Aðalsteinn Kristjánsson ráðinn þjálfari liðsins síðasta haust en þurfti að láta af störfum nú í vor. Káramenn hófu leit að þjálfara og hafa núna ráðið Gunnar…Lesa meira

true

Útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Síðastliðinn föstudag voru 65 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Vegna samkomutakmarkana var fjöldi viðstaddra takmarkaður við 200 manns og var athöfnin því send út í streymi. Áður en formleg athöfn hófst fluttu nýstúdentar tónlistaratriði þar sem sungin voru nokkur lög við undirleik Birgis Þórissonar. Þorbjörg Ragnarsdóttir aðstoðarskólameistari setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Föstudaginn 29. maí voru 26 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og var þetta 30. brautskráningin skólans frá upphafi. 12 nemendur voru brautskráðir af félags- og hugvísindabraut, níu nemendur af náttúru- og raunvísindabraut, þrír nemendur af opinni braut til stúdentsprófs og einn nemandi var brautskráður af starfsbraut. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari flutti ávarp þar sem…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni í dag

Sjómannadagurinn er ætíð fyrsta sunnudag í júní og er því framundan með hátíðarhöldum sem þó verða lágstemmd að þessu sinni vegna Covid-19. Af þessu tilefni fylgir með Skessuhorni sem kom út í dag 40 síðna sérblað tileinkað sjómönnum. Rætt er við núverandi og fyrrverandi sjómenn víðsvegar um Vesturland og ýmsa fleiri sem tengjast fiskveiðum og…Lesa meira

true

Tvennir framhaldsprófstónleikar frá TOSKA

„Skemmtilegur áfangi verður hjá okkur í Tónlistarskólanum á Akranesi á morgun, miðvikudaginn 3. júní,“ segir Jónína Erna Arnardóttir skólstjóri. „Þá verða haldnir tvennir framhaldsprófstónleikar þar sem Hrefna Berg Pétursdóttir fiðluleikari og Hafdís Guðmundardóttir söngkona flytja fjölbreytta dagskrá. Allir eru velkomnir á tónleikana og það er enginn aðgangseyrir. Tónleikar Hrefnu hefjast kl. 18:00 í Tónbergi og…Lesa meira

true

Erilsamur dagur í Grundarfjarðarhöfn

Mikill erill var í Grundarfjarðarhöfn í gær, á fyrsta degi júnímánaðar. Jóhanna Gísladóttir GK kom snemma morguns og þá var hafist handa við að landa 65 tonnum af afla úr Runólfi SH. Því næst var landað úr Jóhönnu Gísladóttur sem var með 55 tonn. Næstur Kom togbáturinn Áskell ÞH með 76 tonn og eftir honum…Lesa meira

true

Baldur fer eina ferð á dag í sumar

Ferjunni Baldri verður siglt eina ferð á dag yfir Breiðafjörðinn í sumar, eftir að Sæferðum var tryggður sérstakur styrkur til siglinganna. Mannlíf greindi fyrst frá. Baldri hefur verið siglt yfir Breiðafjörðinn með ríkisstuðningi á veturna en á markaðsforsendum á sumrin. Töldu Sæferðir, sem reka ferjuna, ekki grundvöll fyrir ferjusiglingum nú í sumar vegna hruns í…Lesa meira

true

Búið að slökkva eld í íbúðarhúsi á Snartarstöðum

Eldur kom upp á efri hæð eldra íbúðarhússins á Snartarstöðum í Lundarreykjadal á fimmta tímanum í nótt. Hjón með þrjú börn komust út úr húsinu og varð ekki meint af. Slökkvilið Borgarbyggðar fékk boð um eldinn klukkan 5:10 í nótt og sendi mannskap frá öllum starfsstöðvum sínum á vettvang. Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri segir slökkvistarf…Lesa meira

true

Ærslabelgur kominn á Merkurtún

Nýr ærslabelgur er kominn upp á Merkurtúni á Akranesi. Belgurinn var settur í gang fyrir síðustu helgi og er hann ætlaður fólki á öllum aldri sem hefur áhuga á að hoppa og leika sér. Nú eru tveir Ærslabelgir á Akranesi, einn við Akraneshöll og annar á Merkurtúni. Ærslabelgurinn er vinsælt leiktæki meðal barna og er…Lesa meira