Fréttir

true

Fyrsta skipti sem slökkvilið sinnir sjálft kennslunni

Undanfarið hafa félagar í Slökkviliði Borgarbyggðar sótt námkeið til að öðlast löggildingu sem slökkviliðsmenn. Um síðustu helgi sátu þeir eitt af fjórum námskeiðum sem menn þurfa að ljúka til að öðlast réttindi. Námskeið II er kennt í tveimur hlutum. Nú var farið í bóklega hluta þess, svo sem varðandi reykköfun, eiturefnaflokka og fleira. Verklega hluti…Lesa meira

true

Sumarlestur og ritsmiðja á Bókasafni Akraness

Sumarlestur fyrir börn hefst á Bókasafni Akraness þriðjudaginn 2. júní og stendur yfir til 7. ágúst. Verkefnið er miðað að börnum á aldrinum 6-12 ára. Áhugasömum fimm ára börnum, sem byrjuð eru að lesa, er einnig heimilt að taka þátt. „Sumarlesturinn 2020 er í anda Lestrarlandakortsins, samstarfsverkefnis með Menntamálastofnun, og er tilgangurinn að þessu sinni…Lesa meira

true

Leit hafin að nýju í Hnappadal

Í síðustu viku hófst leit að nýju að Andris Kalvans, sem talið er að hafi týnst í Hnappadal á Snæfellsnesi 30. desember síðastliðinn. Hætta þurfti leit eftir áramót vegna erfiðra veðurskilyrða. Þriðjudaginn 19. maí fór Lögreglan á Vesturlandi ásamt björgunarsveitarmönnum og sérsveitarmönnum að Hrútaborgum, þar sem talið er að Andris hafi verið. Ekið var þangað…Lesa meira

true

Stór útskriftardagur í framhaldsskólunum á föstudaginn

Nú er að ljúka mjög svo óvenjulegu skólaári í mennta- og fjölbrautaskólum í landshlutanum. Kórónaveiran hefur sett sinn svip á vorönnina og hafa nemendur þurft að aðlagast fjarkennslu og gjörólíkum kennsluháttum. Nú eru útskriftir á næsta leiti og þurfa skólastjórnendur að hagræða hátíðarhöldum í takt við reglur og takmarkanir sem í gildi eru í ljósi…Lesa meira

true

Kortavelta var mikil framan af maí

Strangasta hluta samkomubannsins var aflétt 4. maí síðastliðinn. Afléttingin náði til ýmissa þjónustugreina sem höfðu þurft að leggja niður starfsemi vikurnar á undan. Þannig máttu, svo dæmi séu nefnd, hárgreiðslustofur, snyrtistofur, tannlæknastofur, sjúkraþjálfarar og nuddarar opna dyr sínar á nýjan leik. Þegar rýnt er í innlenda kortaveltu eftir dögum má sjá að landsmenn tóku opnunum…Lesa meira

true

Kirkjumyndir hafa skolast til

Á gatnamótunum við Götuás við minni Lundarreykjadals í Borgarfirði hefur Vegagerðin sett upp ágætt vegakort og skilti með áhugaverðum stöðum. Ekki er vanþörf á góðum merkinum því það getur verið villugjarnt í Borgarfirði fyrir þá sem ekki eru staðkunnugir. Við kortið eru einnig myndir af áhugaverðum stöðum og kirkjum; m.a. á Húsafelli, Saurbæ á Hvalfjarðarströnd…Lesa meira

true

Aldrei fleiri með hjálm

Hlutfall þeirra sem nota hjálm hefur aldrei verið hærra en nú, eða 94%, samkvæmt nýlegri könnun sem tryggingafélagið VÍS framkvæmdi á hjálmanotkun reiðhjólafólks. Könnunin var framkvæmd í níunda skipti samhliða átaksverkefninu Hjólað í vinnuna. Árið 2012, var hlutfallið 74% og 2013 var það komið í 84%. Hlutfallið hefur svo haldið áfram að hækka smám saman…Lesa meira

true

Hreyfivika er nú hafin

Árleg hreyfivika, Now We Move, hófst í dag og stendur yfir fram á næsta sunnudag. Verkefnið er hluti af stærstu lýðheilsuherferð í Evrópu og hefur verið fastur liður á hverju ári frá árinu 2012 en það er UMFÍ sem sér um að skipuleggja og halda um viðburðinn hér á landi. Markmið verkefnisins er að fjölga…Lesa meira

true

Frumvarp um ferðagjöf komið í kynningu

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur kynnt í ríkisstjórn væntalegt frumvarp til laga um ferðagjöf. Um er að ræða útfærslu á áður boðaðri aðgerð ríkisstjórnarinnar um 1,5 milljarða króna innspýtingu til að örva innlenda eftirspurn eftir ferðaþjónustu. Í frumvarpinu kemur fram að ferðagjöf er stafræn 5.000 króna inneign sem stjórnvöld gefa út til einstaklinga…Lesa meira

true

Ritueggjatínsla í Birgiskletti

Eyjan Birgisklettur sem er skammt vestur af Stykkishólmi er í eigu bænda á Þingvöllum í Helgafellssveit. Ábúendur hafa nýtt eyjuna til eggjatínslu svo langt sem menn muna. Í gamla daga voru að jafnaði farnar tvær eggjatínsluferðir að sumri en í seinni tíð er farin ein ferð svona aðallega til að menn fái bragðið og haldi…Lesa meira