Fréttir

true

Kortavelta var mikil framan af maí

Strangasta hluta samkomubannsins var aflétt 4. maí síðastliðinn. Afléttingin náði til ýmissa þjónustugreina sem höfðu þurft að leggja niður starfsemi vikurnar á undan. Þannig máttu, svo dæmi séu nefnd, hárgreiðslustofur, snyrtistofur, tannlæknastofur, sjúkraþjálfarar og nuddarar opna dyr sínar á nýjan leik. Þegar rýnt er í innlenda kortaveltu eftir dögum má sjá að landsmenn tóku opnunum…Lesa meira

true

Kirkjumyndir hafa skolast til

Á gatnamótunum við Götuás við minni Lundarreykjadals í Borgarfirði hefur Vegagerðin sett upp ágætt vegakort og skilti með áhugaverðum stöðum. Ekki er vanþörf á góðum merkinum því það getur verið villugjarnt í Borgarfirði fyrir þá sem ekki eru staðkunnugir. Við kortið eru einnig myndir af áhugaverðum stöðum og kirkjum; m.a. á Húsafelli, Saurbæ á Hvalfjarðarströnd…Lesa meira

true

Aldrei fleiri með hjálm

Hlutfall þeirra sem nota hjálm hefur aldrei verið hærra en nú, eða 94%, samkvæmt nýlegri könnun sem tryggingafélagið VÍS framkvæmdi á hjálmanotkun reiðhjólafólks. Könnunin var framkvæmd í níunda skipti samhliða átaksverkefninu Hjólað í vinnuna. Árið 2012, var hlutfallið 74% og 2013 var það komið í 84%. Hlutfallið hefur svo haldið áfram að hækka smám saman…Lesa meira

true

Hreyfivika er nú hafin

Árleg hreyfivika, Now We Move, hófst í dag og stendur yfir fram á næsta sunnudag. Verkefnið er hluti af stærstu lýðheilsuherferð í Evrópu og hefur verið fastur liður á hverju ári frá árinu 2012 en það er UMFÍ sem sér um að skipuleggja og halda um viðburðinn hér á landi. Markmið verkefnisins er að fjölga…Lesa meira

true

Frumvarp um ferðagjöf komið í kynningu

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra ferðamála hefur kynnt í ríkisstjórn væntalegt frumvarp til laga um ferðagjöf. Um er að ræða útfærslu á áður boðaðri aðgerð ríkisstjórnarinnar um 1,5 milljarða króna innspýtingu til að örva innlenda eftirspurn eftir ferðaþjónustu. Í frumvarpinu kemur fram að ferðagjöf er stafræn 5.000 króna inneign sem stjórnvöld gefa út til einstaklinga…Lesa meira

true

Ritueggjatínsla í Birgiskletti

Eyjan Birgisklettur sem er skammt vestur af Stykkishólmi er í eigu bænda á Þingvöllum í Helgafellssveit. Ábúendur hafa nýtt eyjuna til eggjatínslu svo langt sem menn muna. Í gamla daga voru að jafnaði farnar tvær eggjatínsluferðir að sumri en í seinni tíð er farin ein ferð svona aðallega til að menn fái bragðið og haldi…Lesa meira

true

Sviptingar á fyrsta stórmóti ársins í golfi

Miklar sviptingar voru í gær á lokahring B-59 Hótel-mótsins í golfi sem spilað var á Garðavelli á Akranesi undir stjórn Golfklúbbsins Leynis. Mótið er eitt af sterkustu mótum sumarsins og allir fremstu spilarar landsins tóku þátt. Á mótinu voru leiknir þrír hringir, alls 54 holur, frá föstudegi til sunnudags. Gríðarleg spenna var á lokadegi mótsins…Lesa meira

true

Skólahljómsveit spiluðu fyrir íbúa á Fellaskjóli

Hljómsveit Tónlistarskóla Grundarfjarðar tróð upp fyrir utan Dvalarheimilið Fellaskjól síðasta fimmtudag. Þá var stillt upp og talið í og nokkrir fallegir slagarar spilaðir. Tónleikarnir féllu vel í kramið hjá heimilisfólki sem dillaði sér í takti við lögin og naut líðandi stundar.Lesa meira

true

Býður Jökul til sölu

Í nýjasta tölublaði bæjarblaðsins Jökuls í Ólafsvík tilkynnir Jóhannes Ólafsson ritstjóri og útgefandi hjá Steinprenti að útgáfan sé til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Jökull hefur komið út vikulega frá 8. mars 2001 og fjallar blaðið um málefni líðandi stundar í Snæfellsbæ og víðar á Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Nýtt diplómanám í skapandi greinum á Bifröst

Við Háskólann á Bifröst verður í haust boðið upp á inngangsnámskeið í eins árs diplómanámi í skapandi greinum. „Þetta er hagnýtt nám í skapandi greinum sem er ætlað að vera upplýsandi fyrir ungt fólk sem er ennþá leitandi eftir framhaldsskólagöngu sína eða hefur flosnað upp úr námi,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir kvikmyndaframleiðandi og aðjúnkt við…Lesa meira