
Fulltrúar Bændasamtaka Íslands, Sambands garðyrkjubænda og stjórnvalda skrifuðu í morgun undir samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði framleiðenda garðyrkjuafurða, sem er einn hinna fjögurra búvörusamninga. Markmið samkomulagsins er meðal annars að stuðla að framþróun og nýsköpun í garðyrkjunni með áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum. Við næstu endurskoðun samningsins árið 2023 er markmiðið að framleiðsla…Lesa meira








