Fréttir

true

Nýr fimleikaþjálfari ráðinn til FIMA

Síðastliðinn laugardag skrifaði Fimleikafélag Akraness undir þjálfarasamning við Henrik Pilgaard. Hann mun hefja störf hjá félaginu í ágúst, í 50% stöðu til að byrja með, en síðan í fullu starfi. Henrik er fæddur í Danmörku árið 1991 en hefur þjálfað á Íslandi til margra ára. Hann býr að mikilli reynslu, bæði sem fimleikaþjálfari og -iðkandi.…Lesa meira

true

Matvagnalest verður á Akranesi á sunnudaginn

Götubiti á hjólum er samheiti yfir matarvagna sem ferðast nú í fylkingu um suðvestanvert landið. Eigendur þeirra hafa boðað komu sína á Akranes sunnudaginn 17. maí klukkan 17-20. Verður þeim parkerað á bílastæðinu við íþróttahúsið á Jaðarsbökkum. Þessir vagnar eru væntanlegir: Gastro Truck – Kjúklingaborgarar, Wingman – Kjúklingavængir, Hungry Viking – Indverskur matur, Lobster Hut…Lesa meira

true

Kattaeigendur haldi köttum inni yfir varptímann

Félagið Fuglavernd skorar á kattaeigendur að halda köttum sínum inni yfir varptíma fugla. „Kettir eru öflug og afkastamikil rándýr sem höggva stór skörð í stofna fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert. Á varptíma er því mikilvægt að lausaganga katta sé takmörkuð og sérstaklega yfir nóttina. Bjöllur og kattakragar eru í sumum tilfellum…Lesa meira

true

Rýmri skilyrði fyrir styrkveitingum til kennaranema

Aðgerðir stjórnvalda sem miða að því að fjölga kennurum fela meðal annars í sér styrki til kennaranema og launað starfsnám þeirra. Skilyrði fyrir styrkveitingum hafa nú verið rýmkuð og er námsstyrkur ekki lengur bundinn við skil lokaritgerðar. Ný lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda sem tóku gildi í ársbyrjun hafa þau áhrif…Lesa meira

true

Skoðunardagur fornbíla verður í næstu viku

Fornbílafjelag Borgarfjarðar hefur að venju samið við Frumherja um tiltekinn skoðunardag fyrir eldri ökutæki, en skráða fornbíla skal færa til skoðunar annað hvert ár. Skoðunardagur fornbíla er nú á dagskrá þriðjudaginn 19. maí nk. kl. 16:00 að Sólbakka í Borgarnesi. „Við munum hita upp grillið og setja pylsur á það að skoðun lokinni úti í…Lesa meira

true

Streymisfundur ferðaþjónustunnar í beinni kl. 11:00

Markaðsstofa Vesturlands, ásamt Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, boðar til streymisfundar í dag kl. 11:00. Á fundinum verða kynnt þau verkefni sem unnið er að til eflingar ferðaþjónustunnar á Vesturlandi. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 11.00 – Inngangur – Efling ferðaþjónustu á Vesturlandi 11:10 – Samstarfsverkefni um markaðssetningu 11:20 – Ferðaleiðir á Vesturlandi – kynning 11:30 –…Lesa meira

true

Samþykktu fjárveitingu til að fjölga sumarstörfum námsfólks

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í síðustu viku var rætt um fyrirhuguð samvinnuátaksverkefni sveitarfélaga og ríkisins til fjölgunar sumarstarfa fyrir námsmenn. Bæjarráð samþykkti að veita allt að 25 milljónum króna í átaksverkefnið. Fjárheimildin miðast við ráðningu í alls 50 störf í tvo mánuði. Samþykktin er einnig gerð með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjáraukalögum sem nú…Lesa meira

true

Mikil nýsköpun á sviði matvælavinnslu

Aldrei hafa jafn mörg ný fyrirtæki á sviði matvæla- og heilsuefnaframleiðslu litið dagsins ljós hérlendis eins og undanfarin ár. „Fjöldi nýsköpunarfyrirtækja á þessu sviði er vísbending um að mikil tækifæri eru til vaxtar fyrir íslenskt atvinnulíf um allt land í matvælaframleiðslu,“ segir í tilkynningu frá íslenska sjávarklasanum. Í nýútkominni skýrslu sem ber heitið „Lærum af…Lesa meira

true

Útskrifuð úr þjóðbúningasaumi

Föngulegur hópur útskrifaðist af námskeiði í þjóðbúningasaumi í Snæfellsbæ um liðna helgi helgi. Námskeiðið var haldið af Átthagastofu Snæfellsbæjar, að frumkvæði Margrétar Vigfúsdóttur, en námskeiðið naut styrks úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Níu nemendur stilltu sér upp til myndatöku að námskeiðinu loknu ásamt kennurum og að sjálfsögðu allir prúðbúnir í tilefni dagsins.Lesa meira

true

Atvinnuveganefnd vill endurmat Hafró á grásleppuráðgjöf

Með bréfi til sjávarútvegsráðherra í dag, 11. maí, beinir atvinnuveganefnd Alþingis, með Lilju Rafney Magnúsdóttur í forsvari, þeim tilmælum til ráðherra að hann beini tilmælum til Hafrannsóknastofnunar um hvort ástæða sé til endurmats á úthlutun hrognkelsaveiða vegna vertíðarinnar 2020 í ljósi gagna og upplýsinga sem nefndinni hafa borist. Vísað er til erinda sem atvinnuveganefnd hefur…Lesa meira