
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti nýverið aðgerðir til að spyrna við efnahagslegum afleiðingum Covid-19 faraldursins. Aðgerðirnar koma til viðbótar aðgerðum sem þegar hefur verið gripið til, en sumar höfðu komið til framkvæmda þegar við upphaf faraldursins. Aðgerðunum er skipt í þrjá liði; varnir í þágu heimila og fyrirtækja, efling samfélagsins og sterkari innviðir. Varnir í þágu heimila…Lesa meira








