Fréttir

true

„Okkar framtíð björt svo lengi sem bæði stjóriðjufyrirtækin verða hér“

Síðastliðinn laugardag voru rétt 20 ár síðan fyrirtækið Klafi ehf. hóf starfsemi á Grundartanga. Stofnendur og eigendur Klafa eru stóriðjufyrirtækin Norðurál og Elkem Ísland. Upphaflegt hlutverk fyrirtækisins var að sinna öllum flutningum fyrir fyrirtækin á Grundartanga, þar með talið uppskipun og útskipun, auk gámaflutninga og öðrum tilfallandi verkefnum. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að sérhæfa…Lesa meira

true

HÍ og Hafró mennta fiskifræðinga framtíðarinnar

Háskóli Íslands og Hafrannsóknastofnun hafa gert með sér samkomulag um samvinnu um nýja námsleið í sjávar- og vatnalíffræði með áherslu á fiskifræði sem verður í boði frá og með næsta hausti við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskólans. Stofnanirnar hafa um árabil átt gott samstarf bæði á sviði kennslu og rannsókna. Þannig hafa starfsmenn Hafrannsóknastofnunar m.a. sinnt…Lesa meira

true

Lægsta boð 55 milljónum undir áætlun

Lægsta boð í byggingu Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi var tæpum 55 milljónum undir kostnaðaráætlun. Sex tilboð bárust og voru þau opnuð í gær, þriðjudaginn 5. maí. Lægsta boðið átti Húsheild ehf., sem hljóðaði upp á tæplega 421 milljón króna. Er það 55 milljónum undir kostnaðaráætlun sem fyrr segir, en hún gerði ráð fyrir kostnaði upp á…Lesa meira

true

Einnota plastáhöld bönnuð samkvæmt nýju frumvarpi

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra mælti nýverið fyrir frumvarpi sem kveður á um bann við að setja tilteknar, algengar einnota plastvörur á markað. Meginmarkmið frumvarpsins er að draga úr áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks og ýta undir notkun margnota vara. Meðal vara sem bannað verður að setja á markað eru…Lesa meira

true

Frumvarp um frestun nauðungarsölu

Píratar lögðu í dag fram COVID-frumvarp um frestun á nauðungarsölum heimilanna um rúmt ár. Tilefni frumvarpsins eru þær aðstæður sem eru í samfélaginu vegna COVID-19 heimsfaraldursins, fyrirséð að gæti valdið verstu kreppu í heila öld. „Á slíkum tímum, þegar framtíð heimilanna er óráðin, atvinnuleysi rýkur upp og mörg þeirra kunna að þurfa að eiga við…Lesa meira

true

Minni útflutningur sjávarfangs eftir Covid

Ný tilraunatölfræði Hagstofunnar bendir til þess að áhrif COVID-19 séu veruleg á útflutning á sjávarafurðum. Þessar tölur hafa að geyma vikulegar bráðabirgðatölur um vöruviðskipti á fyrstu 17 vikum ársins. „Ætla má að áhrifa af COVID-19 gæti frá viku 13, eða í kringum 20. mars. Útflutningur næstu fjórar vikur á eftir, fram til viku 17, nam…Lesa meira

true

Skima fyrir Covid-19 á Snæfellsnesi

Íslensk erfðagreining mun bjóða upp á skimun fyrir Covid-19 í Stykkishólmi, Hellissandi og Ólafsvík á morgun, miðvikudaginn 6. maí, og fimmtudaginn 7. maí.  Tekið verða strok úr nefi og hálsi og þeir sem vilja taka þátt í skimuninni geta bókað tíma á vefslóðinni https://bokun.rannsokn.is/ Lesa meira

true

Steytingsvindur í gær

Veðrið var ekki uppá það besta í gær þegar hvöss suðvestanátt gekk yfir. Mjög byljótt var á Snæfellsnesi, sérstaklega þegar líða tók á daginn, og fóru hviðurnar í 30 metra á sekúndu þegar mest var. Þakplötur á húsnæði hafnarvogarinnar í Ólafsvík tóku að losna og var brugðist skjótt við til að koma í veg fyrir…Lesa meira

true

Ákveður rækjukvóta við Snæfellsnes

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla fyrir rækjuveiðar við Snæfellsnes. Reglugerðin er í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og er í gildi til 15. mars 2021. „Í samræmi við varúðarsjónarmið lagði stofnunin til að rækjuveiðar verði ekki meira en 491 tonn við Snæfellsnes, en þetta er töluverð hækkun frá…Lesa meira

true

Segir ákvörðun ráðherra hreina og klára mannvonsku

Grásleppusjómenn við Breiðafjörð eru vægast sagt ósáttir við það sem þeir kalla skyndilokun á grásleppuveiðum í ár. Ástgeir Finnsson, sem rær frá Ólafsvík á báti sínum Sæfinni SH 999, er afar óánægður með þessa skyndilokun. „Ég var búinn að undirbúa mig í allan vetur við að gera klár veiðarfæri og betrumbæta bátinn til þess að…Lesa meira