Fréttir

true

Góð afkoma bæjarsjóðs Akraneskaupstaðar

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið var lagður fram á fundi bæjarstjórnar Akraness í gær. Rekstrarniðurstaða samstæðu bæjarsjóðs var jákvæð um 655 milljónir króna. Er það 301 milljón betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir, en samkvæmt fjárhagsáætlun var búist við 354 milljónum í rekstrarafgang. Skýrist það fyrst og fremst af auknum útsvarstekjum og fasteignaskatti, að því…Lesa meira

true

Skaginn 3X framleiðir fullkomna kalkúnavinnslulínu fyrir Rússa

Skaginn 3X hefur samið við rússneska fyrirtækið Damate Group um sölu og uppsetningu á sjálfvirkri frystilausn fyrir kalkúnaafurðir. Söluverðmæti búnaðarins er um 350 milljónir króna og mun uppsetningu hans ljúka í haust. Damate Group er stærsti framleiðandi kalkúnafurða í Rússlandi og rekur þar nokkrar verksmiðjur. Framleiðsla síðasta árs var um 131 þúsund tonn af kalkúnakjöti…Lesa meira

true

Garðavöllur á Akranesi kemur mjög vel undan vetri

„Upphaflega var stefnt að því að opna fyrir almennri umferð kylfinga 5. maí næstkomandi. En í ljósi þess hvað Garðavöllur kemur rosalega vel undan vetri og hversu vel hefur gengið að undirbúa völlinn getum við vonandi flýtt opnun og opnað hann sem fyrst, en næstu dagar koma til með að varpa frekari ljósi á það,“…Lesa meira

true

„Fyrir mér var alltaf að komast heim þegar ég nálgaðist Borgarnes“

Þórdís Sif Sigurðardóttir tók við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar á óvenjulegum tímum í lífi þjóðar, fyrir um mánuði síðan þegar Covid faraldurinn var að breiðast út um landið og þar á meðal í Borgarnesi. Hún flutti þá vestan af fjörðum þar sem hún hefur í sjö ár gegnt starfi bæjarritara, verið sviðsstjóri og staðgengill bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar.…Lesa meira

true

Vonast til að opna Hamarsvöll snemma í maí

„Hamarsvöllur kemur þokkalega vel undan vetri. Reyndar eru frostlyftingar í norðurhlutanum, en það er bara eðlilegt miðað við hvernig veturinn hefur verið. En annars lítur hann bara mjög vel út,“ segir Jóhannes Ármannsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness, í samtali við Skessuhorn. Hann hefur staðið í ströngu við vorverkin á Hamarsvelli undanfarna daga og vikur, ásamt fleirum.…Lesa meira

true

Búið er að fresta Landsmóti 50+ sem halda átti í Borgarnesi í júní

Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að fresta Landsmóti UMFÍ 50+ og Íþróttaveislu UMFÍ sem halda átti í júní. Nýjar dagsetningar verða tilkynntar um leið og þær liggja fyrir. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ, segir nauðsynlegt að fresta báðum mótunum til að tryggja öryggi þátttakenda. „Þetta er auðvitað leiðinlegt því mikill fjöldi fólks hefur beðið með…Lesa meira

true

Fresta álagningu vanrækslugjalds á ökutæki

Álagningu vanrækslugjalds 1. apríl og 1. maí vegna skoðunar ökutækja verður frestað til 1. júní vegna COVID-19 faraldursins. Samgönguráðherra hefur staðfest þá ákvörðun. „Ákveðið var að framlengja fyrri ákvörðun um frestun álagningar vegna aðstæðna í samfélaginu í tengslum við útbreiðslu Covid-19 kórónaveirunnar. Samkomubann hefur verið í gildi og ekki verður létt af fyrstu takmörkunum fyrr…Lesa meira

true

Komið verður til móts við fyrirtæki vegna Covid-19

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti nú rétt í þessu þriðja aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 efnahagshrunsins. Fram kom hjá henni að hlutastarfaleiðin verður framlengd út júní í stað maí. Eftir júní verður opið fyrir möguleikann en þó þannig að hámarki verður hægt að fara fram á að 50% starfshlutfall verði greitt úr ríkissjóði, í stað 75% nú.…Lesa meira

true

Sinueldur við Götuás

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út vegna sinubruna í Lundarreykjadal klukkan 14 í gær. Eldur logaði á litlu svæði í landi Mávahlíðar, skammt frá gagnamótunum við Götuás. Slökkvistarf gekk greiðlega og brann tæplega hálfur hektari. Lán var að hægviðri var í Borgarfirðinum, því ella hefði sinueldurinn hæglega getað farið yfir stórt svæði.Lesa meira

true

Tímar í skimun á Akranesi bókuðust upp á tveimur tímum

„Þeir 500 tímar sem Íslensk erfðagreining og Heibrigðisstofnun Vesturlands buðu  til að skima fyrir Covid-19 á Akranesi dagana 29. og 30. apríl, miðvikudag og fimmtudag, bókuðust upp á tæpum tveimur klukkustundum eftir að opnað var fyrir skráningu. Nú eru allir tímar því uppbókaðir,“ segir Gísli Björnsson yfirmaður sjúkraflutninga hjá HVE. Skimað verður á Akranesi við…Lesa meira