
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðstafað 200 milljóna króna viðbótarframlagi til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á árinu 2020. Aukafjárveitingin er hluti af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda til að bregðast við áhrifum af Covid-19 faraldrinum. Markmiðið er að hraða uppbyggingu á innviðum ferðamannastaða um landið allt. Alls hljóta 15 verkefni brautargengi með aukafjárveitingunni, til…Lesa meira








