Fréttir

true

Eftirlitsstofnun ESA samþykkir ríkisábyrgð lána til fyrirtækja

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, féllst í dag á að fyrirhuguð veiting ábyrgða á viðbótarlánum lánastofnana til fyrirtækja, í tengslum við heimsfaraldur kórónuveirunnar, samrýmist framkvæmd EES-samningsins. Um er að ræða fyrsta íslenska ríkisaðstoðarkerfið í tengslum við faraldurinn sem kemur til kasta ESA. Með ákvörðun ESA er fallist á að ábyrgðakerfið sé til þess fallið að tryggja fyrirtækjum…Lesa meira

true

Mikill áhugi fyrir sumarnámi við Háskólann á Bifröst

Eins og fram hefur komið ætlar Háskólinn á Bifröst að koma til móts við óskir um aukið námsframboð í sumar og skólinn opnaður öllum. Mikill áhugi er fyrir fjarnámi við skólann en opnað var fyrir umsóknir um námið fyrir viku síðan og umsóknir eru strax farnar að berast. Nemendafjöldinn á sumarönn gæti tvöfaldast ef marka…Lesa meira

true

Rýnihópur skoðar verðmat eignarhluta Borgarbyggðar í OR

Skipaður hefur verið rýnihópur til að verðmeta eignarhlut Borgarbyggðar í Orkuveitu Reykjavíkur. Það var Borgarbyggð sem óskaði eftir mati á áhrifum þess að taka upp samræmda gjaldskrá fyrir fráveitu og vatnsveitu á Akranesi, í Borgarbyggð og í Reykjavík. Samræming gjaldskrár mun fela það í sér að Borgarbyggð þarf að gefa eftir af eignarhlut sínum í…Lesa meira

true

Fjörlegur fasteignamarkaður í mars

Á Vesturlandi var 59 samningum um fasteignir þinglýst í marsmánuði. Þar af voru 29 samningar um eignir í fjölbýli, 24 samningar um eignir í sérbýli og sex samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 2.225 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,7 milljónir króna. Af þessum 59 var 41 samningur um eign á Akranesi. Þar…Lesa meira

true

Ekki ný smit síðustu daga

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að tilkynna um stöðu smita af Covid-19 í landshlutanum. Staðan er óbreytt frá síðustu dögum, en alls hafa 40 einstaklingar verið greindir með smit. Af þeim eru 10 ennþá í einangrun. 33 manns eru nú í sóttkví á Vesturlandi. Enn hefur ekkert smit verið greint á svæði…Lesa meira

true

Brynhildur á háskólastyrk í USA

Brynhildur Traustadóttir sundkona á Akranesi hefur skrifað undir skólastyrk við háskóla í Bandaríkjunum, University of Indianapolis. Brynhildur mun hefja nám þar í haust ásamt því að æfa sund með háskólaliðinu. Hún hefur stefnt að þessum áfanga í mörg ár og í tilkynningu óskar stjórn Sundfélags Akraness henni til hamingju með áfangann og óskar henni góðs…Lesa meira

true

Samið um að Guðrún Ósk þjálfi Skallagrím áfram

Bikarmeistarar Skallagríms í körfubolta hafa gengið frá samningi við Guðrúnu Ósk Ámundadóttur um að stýra kvennaliðinu áfram á næstu leiktíð. Karfan.is greindi frá. Guðrún Ósk er uppalin í Borgarnesi og tók við liðinu fyrir ári síðan og náði frábærum árangri á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari. Skallagrímur lyfti eins og kunnugt er fyrsta bikarmeistaratitli félagsins…Lesa meira

true

Óskað þátttöku í könnun um uppbyggingu ferðaleiðar um Hvalfjörð og Akranes

Vinna gengur vel í upphafi hönnunar ferðaleiðar um Hvalfjörð og Akranes. „Nú köllum við eftir þátttöku íbúa, fyrirtækja og velunnara svæðisins í fyrstu spurningakönnun um svæðið sem ferðaleiðin tengist. Tilgangur þessarar fyrstu könnunar er að fanga anda ferðaleiðarinnar og finna sérstöðu hvers svæðis. Á þeim gögnum sem safnast í könnuninni byggjum við ímyndavinnu og þemu…Lesa meira

true

Engin ný smit síðasta sólarhringinn

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að tilkynna um stöðu smita af Covid-19 í landshlutanum. Staðan er óbreytt frá í gær og fyrradag, en alls hafa 40 einstaklingar verið greindir með smit. Af þeim eru 11 ennþá í einangrun. 36 manns eru í sóttkví á Vesturlandi. Enn hefur ekkert smit verið greint á…Lesa meira

true

Gunnlaugur stefnir Borgarbyggð og krefst 60 milljóna króna

Gunnlaugur A Júlíusson, fyrrverandi sveitarstjóri Borgarbyggðar, krefur sveitarfélagið um 60 milljónir króna vegna uppsagnar hans úr starfi í nóvember síðastliðnum. Stefnan var lögð fram í Héraðsdómi Vesturlands fyrr í þessum mánuði og greindi fréttavefur Ríkisútvarpsins frá innihaldi hennar. Gunnlaugi var sagt upp störfum í nóvember síðastliðnum og telur að á sér hafi verið brotið. Í…Lesa meira