Fréttir

true

Vilja stækka friðlandið í Flatey

Umhverfisstofnun hefur, ásamt Reykhólahreppi og landeigendum í Flatey, kynnt áform um endurskoðun á friðlýsingu eyjarinnar. Um er að ræða stækkun á mörkum friðlandsins ásamt endurskoðun friðlýsingarskilmála. Austurhluti eyjunnar var friðlýstur 1975 vegna fuglaverndar og þar hefur um langt skeið verið náið samspil manns og náttúru. Friðlandið nær yfir austurhluta Flateyjar, ásamt eyjum og hólmum sunnan…Lesa meira

true

Heldur myndlistarsýningu á netinu á föstudaginn

Smári Jónsson, eða Smári kokkur eins og hann er oft kallaður, heldur myndlistasýningu á netinu á föstudaginn, 3. apríl næstkomandi. Smári kemur frá Akranesi en hefur undanfarin ár búið í Altea á Spáni ásamt Guðbjörgu Níelsdóttur Hansen, eiginkonu sinni. „Altea er mikill listamannabær á Costa Blanca ströndinni og er það ein af ástæðunum fyrir því…Lesa meira

true

Aðgerðir sveitarfélagana í ljósi aðstæðna

Nú þegar við stöndum frammi fyrir kórónuveiru og áhrifum sem hún kemur til með að hafa á efnahag fólks og fyrirtækja er mikilvægt að brugðist sé við til að minnka skaðann. Ríkið hefur komið fram með ákveðnar aðgerðir til að milda höggið fyrir almenning og fyrirtæki í landinu en sveitarfélögin þurfa sömuleiðis að bregðast við.…Lesa meira

true

SAF fordæmir afstöðu Alþýðusambands Íslands

„Nú er komið formlega fram að Alþýðusamband Íslands hefur hafnað málaleitan Samtaka atvinnulífsins um að leita leiða til að draga tímabundið úr launakostnaði fyrirtækja. ASÍ vill þannig hvorki ljá máls á frestun launahækkana né tímabundinni lækkun mótframlags í lífeyrissjóði. Óformlegar viðræður við ASÍ um þetta hafa staðið yfir um nokkurra vikna skeið án árangurs og…Lesa meira

true

Bótakröfu á hendur Dalabyggð vísað frá

Skaðabótakröfu Arnarlóns ehf. á hendur Dalabyggð var vísað frá dómi í Héraðsdómi Vesturlands 31. mars síðastliðinn. Félagið krafðist tæplega 16,9 milljóna króna í skaðabætur vegna ólögmætrar riftunar á samþykktu kauptilboði í fasteignir að Laugum í Sælingsdal. Dómurinn sagði hins vegar ekki ljóst hvort myndast hefði bindandi kaupsamningur milli aðilanna. Fyrr en það hefði verið gert…Lesa meira

true

Vilhjálmur segir af sér sem fyrsti varaforseti ASÍ

Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness og fyrsti varaforseti ASÍ hefur með bréfi til Drífu Snædal forseta ASÍ sagt af sér sem 1. varaforseti ASÍ. Ástæðan er djúpstæður skoðanamunur milli hans og annars forystufólks ASÍ um hvernig bregðast eigi við stöðunni á vinnumarkaðinum. Vilhjálmur vildi að samið yrði við atvinnulífið um tímabundna lækkun mótframlags atvinnurekenda í…Lesa meira

true

Íbúar á Vesturlandi svöruðu spurningum um þeirra aðstæður í veirufaraldri

Nú þegar Covid-19 faraldurinn er vonandi við það að nálgast hámark hér á landi, fýsti okkur á Skessuhorni að heyra hljóðið í nokkrum íbúum í landshlutanum. Eftir að hafa samþykkt þátttöku voru spurningar sendar til fólks og það beðið að lýsa kjörum sínum, áskorunum og venjum þegar við þurfum að sæta samkomubanni. Hjá allflestum hefur…Lesa meira

true

Tromlan bilaði í haugasjó

Áhöfnin á dragnótarbátnum Guðmundi Jenssyni SH var í óða önn nú í morgunsárið að reyna að ná dragnótinni af tromlunni þar sem skipið lá við bryggju í Ólafsvík. Tromlan hafði bilað á miðunum í gær þegar verið var að taka nótina inn. Illugi Jónasson skipstjóri segir að tromlan hafi bilað þegar þeir voru að draga…Lesa meira

true

Ekki einhugur innan forystu ASÍ um aðgerðir

Innan forystu Alþýðusambands Íslands er ekki einhugur um til hvaða aðgerða á að grípa vegna þeirrar fordæmalausu stöðu sem upp er komin á vinnumarkaði vegna Covid-19 veirunnar. Forysta ASÍ hefur hafnað því að fresta hækkun launa um þessi mánaðamót, þrátt fyrir erfiðleika fyrirtækja í landinu. Þá hafa sumir verkalýðsforyngjar, þeirra á meðal Vilhjálmur Birgisson formaður…Lesa meira

true

Tvö nýsmit í landshlutanum frá í gær

Nú eru 30 smitaðir af Covid-19 veirunni á Vesturlandi, tveimur fleiri en búið var að greina í gær. Allir eru þeir í einangrun. Ný smit hafa ekki verið greind frá í gær annarsstaðar en á svæði heilsugæslunnar í Borgarnesi þar sem 19 eru nú sýktir. Á Akranesi eru sjö, í Stykkishólmi 3 og einn í…Lesa meira