Fréttir

true

Fjölgað um einn smitaðan á Vesturlandi frá í gær

Fjöldi staðfestra smita af Covid-19 hér á landi er nú 1.086. Af þeim eru 19 á Vesturlandi þar sem 321 er nú í sóttkví. Á landinu öllu eru nú 945 í einangrun og 25 á sjúkrahúsi, þar af 9 manns á gjörgæsludeild. Á landinu öllu eru 9.236 í sóttkví en 5.427 hafa lokið sóttkví.Lesa meira

true

Bifröst leiðbeinir háskólum í Evrópu við framkvæmd fjarnáms

Háskólar um allan heim finna sig nú knúna til að færa kennslu sína í fjarnám til að koma til móts við breyttar aðstæður vegna Covid-19 veirunnar. Vægi og eftirspurn fjarnáms eyks með hverju árinu og hafa háskólar fetað sig sífellt meira inn á þá braut en skyndilega eru komnar upp þær tímabundnu aðstæður að hefðbundnir…Lesa meira

true

Aðgerðir í landbúnaði og sjávarútvegi

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti á ríkisstjórnarfundi á föstudag 15 aðgerðir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs. Er þeim ætlað að bregðast við áhrifum Covid-19 faraldursins á þessar greinar. Markmiðið er að lágmarka neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað og sjávarútveg til lengri tíma, en um leið skapa öfluga viðspyrnu þegar ástandið er gengið yfir,…Lesa meira

true

Boðið í skólalóðahönnun

Tilboð í hönnun lóða við Brekkubæjarskóla og Grundaskóla á Akranesi voru opnuð á síðasta fundi skipulags- og umhverfisráðs. Tvær landslagsarkitektastofur gerðu tilboð í verkið. Landslag ehf. bauð tæpar 10,8 milljónir með virðisaukaskatti og Landmótun tæpar 14,8 milljónir með virðisaukaskatti. Kostnaðuráætlun hljóðaði upp á tíu milljónir króna. Ráðið lagði til að samið yrði við lægstbjóðanda, Landslag…Lesa meira

true

Færri mál til kasta lögreglu

Færri mál komu til kasta Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku en oft áður. Ástandið í þjóðfélaginu hefur orðið til þess að ferðamenn eru sárafáir í landshlutanum sem annars staðar á landinu og íbúar minna á ferðinni en áður. Að sögn lögreglu er þó haldið uppi öllu eftirliti, svo sem umferðareftirliti og hraðamælingum. Lögregla hefur…Lesa meira

true

Nýr vefur Grundarfjarðarbæjar

Grundarfjarðarbær hefur tekið í notkun nýja heimasíðu fyrir bæjarfélagið. Það var fyrirtækið Stefna sem hannaði og setti nýju vefsíðuna upp. Christina Degener, verkefnastjóri í markaðsmálum hjá Grundarfjarðarbæ, sá um að koma vefnum í höfn, ásamt Sunnu Njálsdóttur, umsjónarmanni bókasafnsins, en fleiri komu einnig að verkinu á fyrri stigum. Nýja síðan er mun aðgengilegri en eldri…Lesa meira

true

Nýttu morguninn í að plokka rusl

Afar mikilvægt er að fólk sem á þess kost fari út, hreyfi sig og andi að sér fersku útiloftinu. Um leið er hægt að gera eitthvað gagnlegt eins og þessi dugnaðarfjölskylda á Akranesi gerði í morgun. Tinna Ósk Grímarsdóttir fór í morgun út með börnin sín tvö og hreinsaði rusl af götum og gangstéttum í…Lesa meira

true

Átján smitaðir á Vesturlandi

Nú hafa verið staðfest smit hjá 1020 einstaklingum með Covid-19 á Íslandi. Tveir eru látnir úr sjúkdómnum en 124 er batnað. Nú dvelja 894 í einangrun og 9531 eru í stóttkví á landinu öllu. 19 einstaklingar eru á sjúkrahúsi og þar af 6 á gjörgæsludeild. Hér á Vesturlandi er tala smitaðra komin í 18 og…Lesa meira

true

Þórólfur Víðir Möller

Hún var lukkuleg landlæknirinn Alma D. Möller nýverið þegar hún setti meðfylgjandi mynd á Facebook síðu sína, með orðunum: „Við Þrjú á palli urðum mikils heiðurs aðnjótandi þegar þessi fallegi hrútur, sem fæddist í Stórholti í Saurbæ, fékk nafnið Þórólfur Víðir Möller.“ Það eru margir sem senda hlýja strauma til þríeykisins um þessar mundir, enda…Lesa meira

true

Kvöldmolar Kvikmyndafélagsins í kvöld

Í kvöld klukkan 20:30 býður Kvikmyndafélag Borgarfjarðar upp á spjallþátt á netinu. „Þetta verður skemmtilegur spjallþáttur fyrir alla á stór-310 svæðinu. Í þætti kvöldsins verður rætt við fólk sem stendur í ströngu þessa dagana við að hefta útbreiðslu Corona vírussins. Einnig verður boðið uppá nokkra hugljúfa tóna,“ segir Eiríkur Jónsson, einn af forystumönnum Kvikmyndafélags Borgarfjarðar.…Lesa meira