Fréttir

true

Rafrænn samningur við slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning og var hann undirritaður með rafrænum hætti á milli aðila. „Þetta eru fyrstu samningaviðræðurnar sem hafa allar farið fram í gegnum netið og eru kláraðar með rafrænum hætti,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þegar Magnús Smári Smárason,…Lesa meira

true

Heiðar Örn ráðinn til Slökkviliðs Borgarbyggðar

Heiðar Örn Jónsson hefur verið ráðinn í starf eldvarnareftirlitsmanns og varaslökkviliðsstjóra Slökkviliðs Borgarbyggðar. Þrír aðrir sóttust eftir starfinu þegar það var auglýst; Bergur Már Sigurðsson, Sigurður Þór Elísson og Viktor Örn Guðmundsson en að loknu ráðningarferli var ákveðið að ráða Heiðar til starfsins. Hann hefur störf um miðjan aprílmánuð. Heiðar hefur stundað nám í húsasmíði…Lesa meira

true

Nýtur þess að hanna nýjar prjónauppskriftir

Hún Ingibjörg Sigurðardóttir í Grundarfirði situr sjaldan auðum höndum. Hún rekur þvottahús í Grundarfirði, býr þar í bæ ásamt fjölskyldu sinni en draumurinn er að geta með tíð og tíma sest að á jörð þeirra Innri-Látravík, skammt vestar í Eyrarsveitinn. Ingibjörg, eða Bibba eins og hún er jafnan kölluð, hefur auk þess gaman af að…Lesa meira

true

Kæra framkvæmdaleyfi Vestfjarðavegar

Landvernd hefur kært framkvæmdaleyfi sem Reykhólahreppur veitti Vegagerðinni til vegalagningar eftir svokallaðri Þ-H leið, sem m.a. liggur um Teigsskóg. Telur stjórn Landverndar að framkvæmdaleyfið brjóti í bága við bæði skipulagslög og náttúruverndarlög. Auk þess telja samtökin að stjórnarskrárákvæði um sjálfstæði sveitarfélaga hafi ekki verið virt og að Vegagerðin hafi beitt sveitarstjórn þvingunum til að fá…Lesa meira

true

Sömu reglur gilda um sóttkví í sumarhúsum

„Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.“ Þannig hefst tilkynning sem Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi og formaður almannavarnanefndar landshlutans, birtir á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar er minnt á að einstaklingar í sóttkví mega ekki…Lesa meira

true

Keppt í upplestri á Akranesi

Lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi var haldin í Tónbergi miðvikudaginn 11. mars síðastliðinn. Þar lásu tólf nemendur úr 7. bekk Brekkubæjarskóla og Grundarskóla sögur og ljóð, sex nemendur úr hvorum skóla. Undirbúningur fyrir keppnina hófst á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl. og hafa undankeppnir verið haldnar í hvorum skóla fyrir sig. Heiðursgestur lokahátíðarinnar að…Lesa meira

true

Sakfelldur fyrir líkamsárás

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands 19. mars síðastliðinn sakfelldur fyrir líkamsárás. Var hann sakfelldur fyrir að hafa veist að manni, skallað hann í andlitið svo hann féll í götuna með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð yfir hægra auga. Atvikið átti sér stað á hafnarsvæðinu við Faxabraut á Akranesi aðfararnótt 7. júlí 2019. Dómurinn féllst…Lesa meira

true

Laufey ráðin íþrótta- og æskulýðsfulltrúi

Laufey Helga Árnadóttir hefur verið ráðin til starfa sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar. Hún hefur þegar hafið störf hjá bæjarfélaginu, en tekur formlega við nýju starfi um mánaðamótin. Laufey er fædd og uppalin í Snæfellsbæ og hefur starfað hjá Hafnarsjóði Snæfellsbæjar undanfarin ár. Hún hefur látið til sín taka í ýmsu félagsstarfi í gegnum tíðina…Lesa meira

true

Umsóknir streyma inn vegna skerts starfshlutfalls

Í dag var opnað fyrir umsóknir um skert starfshlutfall á vef Vinnumálastofnunar. Alþingi samþykkti á föstudag frumvarp félagsmálaráðherra um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda, svokallaða hlutastarfaleið. Vinnumálastofnun hefur umsjón með umsóknum um atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls og hafa um 500 umsóknir bæst við á hverjum klukkutíma frá…Lesa meira

true

Báðum leikskólum í Borgarnesi hefur verið lokað

Á mánudag var leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi lokað vegna Covid-19 smits og í dag var sömuleiðis leikskólanum Klettaborg lokað. Nú sem stendur er því enginn leikskóli starfræktur í Borgarnesi. Í leikskólanum Uglukletti reyndist einn starfsmaður smitaður og í dag greindust tvö smit í Klettaborg og verður skólinn því lokaður til 8. apríl og þar af…Lesa meira