Fréttir

true

Sömu reglur gilda um sóttkví í sumarhúsum

„Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.“ Þannig hefst tilkynning sem Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi og formaður almannavarnanefndar landshlutans, birtir á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar er minnt á að einstaklingar í sóttkví mega ekki…Lesa meira

true

Keppt í upplestri á Akranesi

Lokahátíð upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi var haldin í Tónbergi miðvikudaginn 11. mars síðastliðinn. Þar lásu tólf nemendur úr 7. bekk Brekkubæjarskóla og Grundarskóla sögur og ljóð, sex nemendur úr hvorum skóla. Undirbúningur fyrir keppnina hófst á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl. og hafa undankeppnir verið haldnar í hvorum skóla fyrir sig. Heiðursgestur lokahátíðarinnar að…Lesa meira

true

Sakfelldur fyrir líkamsárás

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands 19. mars síðastliðinn sakfelldur fyrir líkamsárás. Var hann sakfelldur fyrir að hafa veist að manni, skallað hann í andlitið svo hann féll í götuna með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð yfir hægra auga. Atvikið átti sér stað á hafnarsvæðinu við Faxabraut á Akranesi aðfararnótt 7. júlí 2019. Dómurinn féllst…Lesa meira

true

Laufey ráðin íþrótta- og æskulýðsfulltrúi

Laufey Helga Árnadóttir hefur verið ráðin til starfa sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar. Hún hefur þegar hafið störf hjá bæjarfélaginu, en tekur formlega við nýju starfi um mánaðamótin. Laufey er fædd og uppalin í Snæfellsbæ og hefur starfað hjá Hafnarsjóði Snæfellsbæjar undanfarin ár. Hún hefur látið til sín taka í ýmsu félagsstarfi í gegnum tíðina…Lesa meira

true

Umsóknir streyma inn vegna skerts starfshlutfalls

Í dag var opnað fyrir umsóknir um skert starfshlutfall á vef Vinnumálastofnunar. Alþingi samþykkti á föstudag frumvarp félagsmálaráðherra um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda, svokallaða hlutastarfaleið. Vinnumálastofnun hefur umsjón með umsóknum um atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls og hafa um 500 umsóknir bæst við á hverjum klukkutíma frá…Lesa meira

true

Báðum leikskólum í Borgarnesi hefur verið lokað

Á mánudag var leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi lokað vegna Covid-19 smits og í dag var sömuleiðis leikskólanum Klettaborg lokað. Nú sem stendur er því enginn leikskóli starfræktur í Borgarnesi. Í leikskólanum Uglukletti reyndist einn starfsmaður smitaður og í dag greindust tvö smit í Klettaborg og verður skólinn því lokaður til 8. apríl og þar af…Lesa meira

true

Sýkna af kröfu um bætur vegna aðgerða á bóndabæ

Nýlega féll héraðsdómur þar sem íslenska ríkið var sýknað vegna kröfu um skaða- og miskabætur að fjárhæð tæplegra 17 milljóna króna auk dráttarvaxta vegna þvingunaraðgerða á bóndabæ árið 2012. Matvælastofnun hafði viðhaft sérstakt eftirlit vegna ófullnægjandi aðbúnaðar og umhirðu með sauðfé á bænum. Stofnunin hafði gert kröfur um úrbætur vegna fóðrunar, brynningar og húsakosts. Fór…Lesa meira

true

Segja mikilvægt að fjármálastofnanir hlífi heimilum

Heimsfaraldur vegna Covid-19 hefur nú áhrif á atvinnu og afkomu fjölmargra heimila. Í tilkynningu kveðst forysta Alþýðusambands Íslands leggja ríka áherslu á að stjórnvöld, fjármálastofnanir og aðrir kröfuhafar komi til móts við fólk í þessum erfiðu aðstæðum. „Öllu máli skiptir nú að tryggja afkomuöryggi heimila þannig að öllum sé kleift að setja eigin heilsu og…Lesa meira

true

294 eru nú í sóttkví á Vesturlandi og sjö smitaðir

Aðgerðastjórn Almannavarna Vesturlands sendir nú daglega frá sér uppfærðar upplýsingar um fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum. Er það flokkað eftir umdæmi heilsugæslustöðva. Nú hafa sjö einstaklingar verið greindir með sjúkdóminn á Vesturlandi og enn sem komið er einskorðast smitið við Borgarnes og Stykkishólm; fjórir í Borgarnesi og þrír í Stykkishólmi. Á svæði heilsugæslunnar…Lesa meira

true

Starfsmenn orlofshúsabyggða óvarðir gagnvart smithættu

„Við tölum reglulega saman umsjónarmenn orlofshúsabyggða sem verkalýðshreyfingin rekur og okkur er gjörsamlega misboðið,“ segir Einar Björnsson umsjónarmaður fasteigna í Svignaskarði í Borgarfirði í samtali við Skessuhorn. Verkalýðsfélagið Efling býður upp á vetrarleigu orlofshúsa í Svignaskarði og að sögn Einars hafa um 400 manns dvalið þar að jafnaði að undanförnu. „Á sama tíma og skrifstofufólk…Lesa meira