Fréttir

true

Dalamenn skora á Rarik að verja starfsstöðina í Búðardal

Atvinnumálanefnd Dalabyggðar kom nýverið saman til fundar og samþykkti þar ályktun vegna reksturs starfsstöðvar Rarik í Búðardal. Var ályktunin send stjórn Rarik og þingmönnum. „Atvinnumálanefnd Dalabyggðar skorar á stjórn Rarik að halda áfram öflugum rekstri starfsstöðvar Rarik í Búðardal og frekar styrkja hann en draga úr,“ segir í ályktuninni. Þá segir að starfsstöð Rarik í…Lesa meira

true

Aukin þjónusta við aldraða í Borgarbyggð

Í þessari viku mun Borgarbyggð í samstarfi við RKÍ auka þjónustu fyrir aldraða sem þurfa á aðstoð að halda í sveitarfélaginu, sérstaklega þá sem búa í uppsveitum Borgarfjarðar. Íbúum í póstnúmeri 311 er bent á að hafa samband við félagsstarf aldraða í síma 840 1525 til þess að fá aðstoð á meðan þetta ástand varir.…Lesa meira

true

Skulu endurgreiða pakkaferðir

Stjórnvöld víða um heim hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að hefta útbreiðslu veirunnar sem hafa m.a. falist í ferðabanni þar sem ferðamönnum er ýmist meinuð koma eða íbúum meinað að ferðast frá sínum heimalöndum. Þessar ráðstafanir hafa haft afgerandi áhrif á samgöngur og aðra ferðatengda þjónustu. Um pakkaferðir gilda lög um pakkaferðir og samtengda…Lesa meira

true

Tilfelli á Vesturlandi orðin fimm

Nú hafa fimm einstaklingar á Vesturlandi verið greindir með Covid-19 veirunni. Þrír þeirra eru í Borgarnesi og tveir í Stykkishólmi. Samkvæmt upplýsingum frá aðgerðateymi Almannavarna Vesturlands verða upplýsingar um fjölda smitaðra í landshlutanum framvegis tilkynntar einu sinni á dag. Nú eru 263 íbúar í landshlutanum í sóttkví. Í gær bættist 21 í hóp smitaðra á…Lesa meira

true

Frestun valkvæðra skurðaðgerða

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á erindi landlæknis og staðfest fyrirmæli embættisins um að öllum valkvæðum skurðaðgerðum og öðrum ífarandi aðgerðum, t.d. greiningarrannsóknum, verði hætt frá 23. mars til 31. maí næstkomandi. Á þetta við hvort sem um ræðir aðgerðir framkvæmdar innan eða utan spítala, af opinberum aðila eða einkaaðila.Lesa meira

true

Uglukletti í Borgarnesi lokað

Leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi hefur verið lokað þar sem einn starfsmaður á leikskólanum hefur verið greindur með Covid-19 smit. Er brugðið á þetta ráð til að hefta mögulega útbreiðslu kórónuveirusmits. Fram kemur í frétt Borgarbyggðar að verið sé að vinna í rakningu smits. „Þar sem starfsmaðurinn var ekki í beinum samskiptum við börnin er ekki…Lesa meira

true

Narfeyrarstofu lokað í bili

Veitingastaðnum Narfeyrarstofu í Stykkishólmi hefur verið lokað um óákveðinn tíma, frá og með mánudeginum 23. mars. Ástæðan er vitaskuld heimsfaraldur COVID-19 og allt sem honum fylgir, samkomubann í fjölmörgum löndum og ferðabann víða um heim. „Á þeim 19 árum sem við höfum verið að reka veitingahúsið Narfeyrarstofu í Stykkishólmi hefur aldrei verið uppi viðlíka staða…Lesa meira

true

Auglýst eftir fólki í Bakvarðasveit Brákarhlíðar

Stjórnendur dvalar- og hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi telja skynsamlegt að koma á fót Bakvarðasveit fyrir heimilið í ljósi stöðunnar sem uppi er í samfélaginu. „Fari svo að mikið brottfall verði í hópi starfsmanna gæti orðið nauðsynlegt að fá aðstoð við að manna störf við aðhlynningu, í eldhúsi og í þrifum á heimilinu. Við leitum að…Lesa meira

true

Hertar reglur taka gildi í kvöld um samkomubann

Heilbrigðisráðherra ákvað í gær hertar reglur um samkomubann vegna Covid-19 faraldursins. Tillögurnar byggja á ráðgjöf sóttvarnalæknis. Frá miðnætti í kvöld, mánudag, er miðað við að mest tuttugu mega koma saman, en fyrri reglur settu mörkin við hundrað. Þá verður sundlaugum, söfnum og skemmtistöðum lokað og öll starfsemi sem krefst nándar innan tveggja metra er bönnuð.…Lesa meira

true

Aðgerðastjórn fundar daglega

Hér á Vesturlandi er starfandi aðgerðastjórn vegna Covid-19 faraldursins og heyrir hún undir Almannavarnanefnd Vesturlands. Emil Sigurðsson er starfsmaður aðgerðastjórnar í hálfu starfi. Í aðgerðastjórn sitja Þórir Bergmundsson svæðissóttvarnarlæknar á Vesturlandi, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri HVE, en auk þeirra fulltrúar frá lögreglu, björgunarsveitum og Rauða krossi Íslands. „Við fundum nær daglega í aðgerðastjórn vegna Covid-19…Lesa meira