Fréttir

true

Strangari skilyrði við afhendingu lyfja í apótekum

Á morgun, þriðjudaginn 10. mars, ganga í gildi breytingar sem varða afhendingu lyfja í apótekum. Eftir það verður einungis heimilt að afhenda lyf eiganda lyfjaávísunar, eða þeim sem hefur ótvírætt umboð hans til að fá þau afhent. Framvísa þarf persónuskilríkjum hvort sem um ræðir eiganda eða umboðsmann. Í tilkynningu Lyfjastofnunar kemur fram að krafa um…Lesa meira

true

Byrja að rukka viðskiptavini fyrir kaffið í þágu umhverfisins

„Á liðnum árum höfum við gefið Vinahópnum, viðskiptavinum með kort og lykla frá Olís, 100% afslátt af uppáhelltu kaffi á þjónustustöðvum Olís. Aukin umhverfisvitund kallar á breytingar,“ segir í tilkynningu frá Olís. „Mikið er um óþarfa notkun á kaffi á þjónustustöðvum Olís sem skapar sóun og óþarfa rusl. Í samfélagsumræðunni er hávær krafa um minni…Lesa meira

true

Skerða starfsemi vegna veirunnar

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur ákveðið, í ljósi Kórónaveirunnar, að loka og/eða skerða starfsemi tímabundið í starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir einstaklinga sem eru í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Félagsstarf aldraða að Borgarbraut 65a verður lokað um óákveðinn tíma. Matnum verður ekið út til þeirra sem hafa verið að nýta sér…Lesa meira

true

Lagðar til verulegar kvaðir á notkun flugelda

Skýrsla starfshóps dómsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar frá flugeldum var kynnt í síðustu viku. Í tillögum starfshópsins kemur m.a. fram að sú mengun sem oft verður um áramót af völdum skotelda hafi óæskileg áhrif á heilsu margra einstaklinga, sérstaklega þeirra sem eru með undirliggjandi heilsufarsvandamál. Starfshópurinn…Lesa meira

true

Arion banki er handhafi íslensku árangursverðlaunanna

Áran, íslensku árangursverðlaunin í markaðssetningu, var afhent í liðinni viku. Verðlaunin hlaut Arion banki fyrir herferðina Arion appið – þægilegri bankaþjónusta. Árangursverðlaununum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri en það eru stjórnir ÍMARK og SÍA sem veita þau. Bankinn fékk verðlaunin fyrir auglýsingaherferð þar sem kostir Arion appsins eru…Lesa meira

true

Valkyrjur í sjóbaði

Ljósmyndari var á ferð í Brákarey í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Þá var norðaustan kaldi og rúmlega tveggja stiga frost. Þegar kom niður á bryggjuna sá hann þessar þrjár hressu valkyrjur sem svömluðu í ísköldum sjónum, sér til heilsubótar. Sjóböð færast nú í vöxt víða um land og meðal annars hefur hópur fólks í Borgarnesi stundað…Lesa meira

true

Miklar reykskemmdir á bústað í Skorradal

Slökkvilið Borgarbyggðar var klukkan 5:30 í morgun kallað út að sumarbústað í Fitjahlíð í Skorradal. Húsið var orðið fullt af reyk og glóð var komin í vegg við kamínu þegar slökkviliðsmenn bar að garði. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra gengu aðgerðir vel og var lokið á um þremur korterum. Einn maður var í húsinu…Lesa meira

true

Skimun vegna kórónaveirunnar hefst þrátt fyrir allt

Íslensk erfðagreinin mun þrátt fyrir allt um miðja þessa viku hefja skimun á landsmönnum vegna Covid-19 veirunnar. Þetta hefur Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, ákveðið eftir að Vísindasiðanefnd og Persónuvernd drógu til baka fyrri ákvörðun sína frá liðinni viku um að skimun af þessu tagi væri leyfisskyld. Kári hætti af þeim sökum við að hætta við…Lesa meira

true

Tekið fyrir heimsóknir á hjúkrunar- og dvalarheimili á Vesturlandi

Þar sem íbúar hjúkrunarheimila eru flestir aldraðir og/eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhópi tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) beindu þeim tilmælum til stjórnenda hjúkrunar- og dvalarheimila undir lok síðustu viku að þeir leiti leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilanna smitist.…Lesa meira

true

Neyðarstigi lýst yfir vegna COVID-19

Neyðarstigi almannavarna hefur verið lýst yfir eftir að fyrsta innanlandssmit COVID-19 kórónaveirunnar var staðfest í dag. Sex ný tilfelli hafa greinst í dag og fjöldi smitaðra hérlendis er orðinn 43. Þá er aðeins tímaspursmál hvenær samkomubann verður sett á. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var vegna COVID-19 og hófst núna kl. 15:00.Þar veittu…Lesa meira