Fréttir

true

Mikill viðbúnaður vegna Covid-19 veirunnar

Það var þétt setinn bekkurinn í stjórnstöð Almannavarna í býtið í morgun. Þar voru lagðar línurnar fyrir verkefnin sem framundan eru vegna COVID-19 veirunnar. Nú hefur verið staðfest smit hjá þremur einstaklingum sem allir voru að koma frá útlöndum; Ítalíu og Þýskalandi.  300 manns eru auk þess í sóttkví. Þessi hópur á myndinni leggur nú…Lesa meira

true

Lilja Björg hætt í starfi sveitarstjóra

Lilja Björg Ágústsdóttir lét af starfi setts sveitarstjóra í Borgarbyggð í lok síðustu viku eins og ráð hafði verið fyrir gert. Þórdís Sif Sigurðardóttir sem ráðin hefur verið í starf sveitarstjóra mun koma til starfa á næstu vikum. Að sögn Lilju Bjargar mun Eiríkur Ólafsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og staðgenginn sveitarstjóra, brúa bilið og…Lesa meira

true

Gestirnir öflugri í seinni hálfleik

Snæfellingar máttu sætta sig við tap á heimavelli gegn Hetti þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Staðan var jöfn í hálfleik en í seinni hálfleik réðu gestirnir ferðinni og sigruðu að lokum örugglega, 71-89. Hattarmenn höfðu heldur yfirhöndina í upphafi leiks og leiddu með níu stigum eftir fyrsta leikhluta, 18-27.…Lesa meira

true

Gísli hætti sem hafnarstjóri í lok sumars

Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna hefur tilkynnt stjórn fyrirtæksins að hann muni hætta störfum í lok ágúst á þessu ári. Gísli verður 65 ára í sumar og metur sem svo að nú sé heppilegur tími til að stíga til hliðar úr daglegu ati. Gísli mun við starfslok hafa gegnt starfi hafnarstjóra í fimmtán ár. Þar áður…Lesa meira

true

Lyftu sér upp í þriðja sæti

Skallagrímskonur lyftu sér upp í þriðja sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með sterkum útisigri á Haukum í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu undirtökin stærstan hluta leiksins og sigruð að endingu með sjö stigum, 69-76. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og mjótt á mununum. Skallagrímskonur voru þó heldur ákveðnari og höfðu fjögurra stiga forskot eftir…Lesa meira

true

Stöndum þétt saman er yfirskrift búnaðarþings sem hefst í dag

Búnaðarþing 2020 verður sett í Bændahöllinni í dag en því lýkur svo á morgun. Þingið verður sett við hátíðlega athöfn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 12.00 og verða Landbúnaðarverðlaun veitt og ráðherra og formaður BÍ halda ávörp. Yfirskrift þingsins í ár er „Stöndum þétt saman“. Þar er vísað í endurskipulagningu félagskerfis landbúnaðarins sem stendur fyrir…Lesa meira

true

Mottumarssokkarnir komnir í sölu

Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. „Mottumars er í senn vitundarvakning um krabbamein hjá körlum og fjáröflun fyrir félagið. Í ár leggjum við áherslu á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum. Rannsóknir sýna að reglubundin hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum auk þess sem hreyfing er til góðs fyrir fólk…Lesa meira

true

Heldur í Safnahúsi fræðsluerindi um næringu ungbarna

Fimmtudaginn 5. mars nk. mun Ebba Guðný Guðmundsdóttir, bókaútgefandi, heilsukokkur, fyrirlesari og umsjónarmaður þáttanna Eldað með Ebbu halda fræðsluerindi í Safnahúsinu í Borgarnesi um heilsu og næringu ungbarna. Ebba Guðný er kennari að mennt en hefur haldið fyrirlestra um heilsusamlegt mataræði og líferni síðan 2006. Mest hefur hún haldið erindi og námskeið fyrir foreldra ungra…Lesa meira

true

Tvö smit hafa nú greinst hér á landi

“Sýni sem tekið var af karlmanni á sextugsaldri sem kom til landsins í gær með flugvél Icelandair frá Veróna á Ítalíu reyndist jákvætt fyrir COVID-19 smiti. Þar með hafa tvö tilfelli veirunnar verið staðfest á Íslandi. Maðurinn sem um ræðir var með lítil einkenni í gær og enn minni í dag,” segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Stelpurnar í Slippfélaginu hæstar eftir fyrsta kvöld Vesturlandsdeildarinnar

Fyrsta keppniskvöldið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í Borgarnesi á föstudaginn þegar keppt var í fjórgangi. Í deildinni keppa sex lið sem hvert hefur á að skipa fimm knöpum en þrír knapar taka þátt í hverri keppnisgrein. Keppt er bæði til A-úrslita og B-úrslita en eins og tíðkast nú í mörgum deildum…Lesa meira