Fréttir

true

Gísli hætti sem hafnarstjóri í lok sumars

Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna hefur tilkynnt stjórn fyrirtæksins að hann muni hætta störfum í lok ágúst á þessu ári. Gísli verður 65 ára í sumar og metur sem svo að nú sé heppilegur tími til að stíga til hliðar úr daglegu ati. Gísli mun við starfslok hafa gegnt starfi hafnarstjóra í fimmtán ár. Þar áður…Lesa meira

true

Lyftu sér upp í þriðja sæti

Skallagrímskonur lyftu sér upp í þriðja sæti Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik með sterkum útisigri á Haukum í gærkvöldi. Borgnesingar höfðu undirtökin stærstan hluta leiksins og sigruð að endingu með sjö stigum, 69-76. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og mjótt á mununum. Skallagrímskonur voru þó heldur ákveðnari og höfðu fjögurra stiga forskot eftir…Lesa meira

true

Stöndum þétt saman er yfirskrift búnaðarþings sem hefst í dag

Búnaðarþing 2020 verður sett í Bændahöllinni í dag en því lýkur svo á morgun. Þingið verður sett við hátíðlega athöfn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 12.00 og verða Landbúnaðarverðlaun veitt og ráðherra og formaður BÍ halda ávörp. Yfirskrift þingsins í ár er „Stöndum þétt saman“. Þar er vísað í endurskipulagningu félagskerfis landbúnaðarins sem stendur fyrir…Lesa meira

true

Mottumarssokkarnir komnir í sölu

Mottumars er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. „Mottumars er í senn vitundarvakning um krabbamein hjá körlum og fjáröflun fyrir félagið. Í ár leggjum við áherslu á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum. Rannsóknir sýna að reglubundin hreyfing dregur úr líkum á krabbameinum auk þess sem hreyfing er til góðs fyrir fólk…Lesa meira

true

Heldur í Safnahúsi fræðsluerindi um næringu ungbarna

Fimmtudaginn 5. mars nk. mun Ebba Guðný Guðmundsdóttir, bókaútgefandi, heilsukokkur, fyrirlesari og umsjónarmaður þáttanna Eldað með Ebbu halda fræðsluerindi í Safnahúsinu í Borgarnesi um heilsu og næringu ungbarna. Ebba Guðný er kennari að mennt en hefur haldið fyrirlestra um heilsusamlegt mataræði og líferni síðan 2006. Mest hefur hún haldið erindi og námskeið fyrir foreldra ungra…Lesa meira

true

Tvö smit hafa nú greinst hér á landi

“Sýni sem tekið var af karlmanni á sextugsaldri sem kom til landsins í gær með flugvél Icelandair frá Veróna á Ítalíu reyndist jákvætt fyrir COVID-19 smiti. Þar með hafa tvö tilfelli veirunnar verið staðfest á Íslandi. Maðurinn sem um ræðir var með lítil einkenni í gær og enn minni í dag,” segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Stelpurnar í Slippfélaginu hæstar eftir fyrsta kvöld Vesturlandsdeildarinnar

Fyrsta keppniskvöldið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg í Borgarnesi á föstudaginn þegar keppt var í fjórgangi. Í deildinni keppa sex lið sem hvert hefur á að skipa fimm knöpum en þrír knapar taka þátt í hverri keppnisgrein. Keppt er bæði til A-úrslita og B-úrslita en eins og tíðkast nú í mörgum deildum…Lesa meira

true

Slasaðist í hlíðum Kirkjufells

Slys varð í suðurhlíðum Kirkjufells í Grundarfirði um miðjan dag í gær. Maður sem var á göngu upp fjallið var að búa sig undir að fara á svifvæng niður á láglendið. Var hann að búa sig undir flugið þegar honum skrikar fótur, rennur til, lendir á grjóti og fótbrýtur sig. Töluverður viðbúnaður var vegna slyssins…Lesa meira

true

Viðamikil aðgerð lögreglu í fíkniefnamáli

Viðamikil aðgerð sérsveitar og almennrar lögreglu var í Hvalfjarðargöngunum í gærmorgun. Þá voru alls fimm manns, fjórir karlar og ein kona, handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald til 13. mars í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fíkniefnamáli. Fólkið var handtekið í og við Hvalfjarðargöngin og hald var lagt á talsvert magn af fíkniefnum. Umferð…Lesa meira

true

Fallhlífarslys í Kirkjufelli

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð að Kirkjufelli vegna slyss í fjallinu á fjórða tímanum í dag. Vísir greindi fyrst frá því að þyrlan væri á leið á staðinn. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hrapaði maður, sem hafði gengið á Kirkjufell, þegar hann ætlaði að svífa niður af fjallinu í fallhlíf. Mörg vitni urðu að atvikinu að því er…Lesa meira