
Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 25. febrúar, frá kl. 10:00 – 17:00. Í tilkynningu frá bankanum segir að mikil þörf sé nú á blóði, sérstaklega í blóðflokki A plús.Lesa meira

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 25. febrúar, frá kl. 10:00 – 17:00. Í tilkynningu frá bankanum segir að mikil þörf sé nú á blóði, sérstaklega í blóðflokki A plús.Lesa meira

Alls var 144 kaupsamningum fasteigna þinglýst á Vesturlandi á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, skv. tölum Þjóðskrár Íslands. Af þessum samningum var í 31 tilviki um fyrstu kaup viðkomandi að ræða, eða 22% af heildarfjölda kaupsamninga í landshlutanum. Hæst var hlutfallið á Austurlandi, eða 33% af 66 þinglýstum kaupsamningum. Hlutfallið var hins vegar lægst á Vestfjörðum,…Lesa meira

Í dag bauð Menntaskóli Borgarfjarðar öllum nemendum í níunda og tíunda bekk í Grunnskóla Borgarfjarðar og Grunnskóla Borgarness í heimsókn. Hefðbundin kennsla var felld niður og nemendur menntaskólans tóku að sér hlutverk gestgjafa og fóru með gestina um skólann. Í MB höfðu kennarar sett upp ýmsar stöðvar til að kynna hluta af því námi sem…Lesa meira

Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Grófargili í Varmahlíð en á bænum eru nú um hundrað fjár. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2019 á bænum Álftagerði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. „Bóndinn hafði samband við Matvælastofnun…Lesa meira

Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunar níu kílómetra Vesturlandsvegar um Kjalarnes. Skipulagsstofnun úrskurðaði í fyrrasumar að framkvæmdin skyldi fara í umhverfismat. Sveitarfélög á Vesturlandi, með Akraneskaupstað í broddi fylkingar, kærðu þá ákvörðun til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem vísaði kærunni frá nú í febrúar. Á vef Skipulagsstofnunar má nú kynna…Lesa meira

Frá því er greint á vef Landssamtaka sauðfjárbænda, saudfe.is, að Kjötafurðastöð KS og Sláturhús KVH hafa gefið út tilkynningu um að greitt verð 6% uppbót á allt innlagt dilkakjöt síðastliðið haust. Við þessa uppbótargreiðslur reiknast því meðal afurðaverð dilkakjöts haustið 2019, 461 kr/kg hjá KS og KVH.Lesa meira

Tónlistarskólinn á Akranesi er með þemaviku í þessari viku. Nemendur eru að æfa og semja lög sem tengjast þjóðsögum og ævintýrum og verða tvennir tónleikar næstkomandi fimmtudag 27. febrúar. Tónleikar með ævintýraþema verða kl. 16.30 og kl. 18.00 verða tónleikar með þjóðsöguþema. Ævintýrin eru allt frá Söngvaseið til Frosen og þjóðsögurnar m.a. Móðir mín í…Lesa meira

Það var bókstaflega allt á fullu í Kallabakaríi á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við. Staðið var við öll borð og sett á vatnsdeigsbollur sulta, rjómi og glassúr. Framleiðslunni verður svo ekið í fyrirtæki og stofnanir, auk þess sem til sölu er í bakaríinu. Að sögn Alfreðs Karlssonar bakarameistara mættu fyrstu fimm…Lesa meira

Á þorrablóti Skallagríms, sem haldið var 15. febrúar síðastliðinn í Hjálmakletti, var venju samkvæmt tilkynnt um val á Borgnesingi ársins. Það kom í hlut Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur verðandi sveitarstjóra í Borgarbyggð að tilkynna um valið. Borgnesingur ársins er Ingimundur Ingimundarson íþróttakennari og frumkvöðull á sviði íþrótta fyrir almenning. „Borgnesingur ársins 2019 er kraftmikill einstaklingur sem…Lesa meira

Skagamenn unnu nauman sigur á liði Hrunamanna þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Eins mjótt var á mununum og hægt er, því þegar lokaflautan gall höfðu Skagamenn skorað 80 stig gegn 79 stigum gestanna og fóru því með eins stigs sigur af hólmi. Eftir leikinn situr…Lesa meira