Fréttir

true

Líf og fjör á bolludaginn í Kallabakaríi

Það var bókstaflega allt á fullu í Kallabakaríi á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við. Staðið var við öll borð og sett á vatnsdeigsbollur sulta, rjómi og glassúr. Framleiðslunni verður svo ekið í fyrirtæki og stofnanir, auk þess sem til sölu er í bakaríinu. Að sögn Alfreðs Karlssonar bakarameistara mættu fyrstu fimm…Lesa meira

true

Ingimundur er Borgnesingur ársins 2019

Á þorrablóti Skallagríms, sem haldið var 15. febrúar síðastliðinn í Hjálmakletti, var venju samkvæmt tilkynnt um val á Borgnesingi ársins. Það kom í hlut Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur verðandi sveitarstjóra í Borgarbyggð að tilkynna um valið. Borgnesingur ársins er Ingimundur Ingimundarson íþróttakennari og frumkvöðull á sviði íþrótta fyrir almenning. „Borgnesingur ársins 2019 er kraftmikill einstaklingur sem…Lesa meira

true

Eins stigs sigur ÍA

Skagamenn unnu nauman sigur á liði Hrunamanna þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Eins mjótt var á mununum og hægt er, því þegar lokaflautan gall höfðu Skagamenn skorað 80 stig gegn 79 stigum gestanna og fóru því með eins stigs sigur af hólmi. Eftir leikinn situr…Lesa meira

true

Snæfell tapaði í Hveragerði

Snæfellingar máttu játa sig sigraða gegn Hamri, 108-79, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Snæfellingar voru öflugri í upphafi leiks, komust í 4-11 en þá tóku heimamenn við sér. Þeir náðu forystunni í stöðunni 18-17 og leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, 29-25. Snæfellingar byrjuðu betur í öðrum fjórðungi.…Lesa meira

true

Geta ekki gert kröfu um starfsstöð í sveitarfélaginu

Kærunefnd útboðsmála úrskurðaði í máli Vátryggingafélags Íslands gegn Borgarbyggð 18. febrúar síðastliðinn. Nefndin úrskurðaði að Borgarbyggð skyldi fella út úr útboðsskilmálum ákvæði um að bjóðandi starfræki starfsstöð í sveitarfélaginu. Borgarbyggð hafði í skilmálum útboðsins gert kröfu um að bjóðandi starfræki starfsstöð í sveitarfélaginu með starfsmanni a.m.k. 16 tíma á viku. Skyldi henni komið á sex…Lesa meira

true

Tóku stjórnina í síðari hálfleik

Snæfellskonur unnu góðan útisigur á Breiðabliki, 77-91, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á föstudag. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku Snæfellskonur stjórn leiksins í sínar hendur í þeim síðari og sigruðu að lokum örugglega. Snæfell skoraði fyrstu sjö stig leiksins en Breiðablik jafnaði metin snemma leiks. Eftir það fylgdust liðin að og…Lesa meira

true

Leggja til að skerpt verði á áherslum við úthlutun byggðakvóta

Starfshópur sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra skipaði síðasta vor til að endurskoða meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir, hefur lokið störfum og skilað skýrslu til ráðherra. Hópnum var gert að endurskoða meðferð og ráðstöfun aflaheimilda sem lög um stjórn fiskveiða kveða á um að skulu teknar frá til sérstakra verkefna…Lesa meira

true

Umhverfisskipulag verður landslagsarkitektúr

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðfest breytingu á heiti brautar umhverfisskipulags í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands. FÍLA, Félag íslenskra landslagsarkitekta, hvatti brautina til nafnabreytingar við aðild félagsins að umsókn brautarinnar til IFLA, International Federation of Landscape Architecture, um viðurkenningu á náminu. „Þessi breyting gerir okkur kleift að tengja námið enn betur við fag landslagsarkitekta og gera…Lesa meira

true

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

Laugardaginn 22. febrúar útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor 69 nemendur við hátíðlega athöfn. Nemendahópurinn samanstóð af grunn- og meistaranemum úr viðskiptadeild og félagsvísinda- og lagadeild. Þetta var í fyrsta skipti sem nemendur í diplómanámi í viðskiptafræði og verslunarstjórnun eru útskrifaðir frá skólanum, og flutti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR stutta tölu að því tilefni, en námið…Lesa meira

true

Spáð er éljum eða snjókomu næsta sólarhringinn

Veðurstofan spáir því að dimm él eða snjókoma verði um sunnan- og vestanvert landið frá því síðar í dag og fram á morgun. Spáð er vestan 8-15 m/s, en mun hægari austanlands í fyrstu. Suðlæg átt, 5-13 á morgun, og lægir um kvöldið. Gengur á með éljum en snjóar um tíma suðvestantil í kvöld og…Lesa meira