Fréttir

true

Umhverfisskipulag verður landslagsarkitektúr

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðfest breytingu á heiti brautar umhverfisskipulags í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands. FÍLA, Félag íslenskra landslagsarkitekta, hvatti brautina til nafnabreytingar við aðild félagsins að umsókn brautarinnar til IFLA, International Federation of Landscape Architecture, um viðurkenningu á náminu. „Þessi breyting gerir okkur kleift að tengja námið enn betur við fag landslagsarkitekta og gera…Lesa meira

true

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst

Laugardaginn 22. febrúar útskrifaði Vilhjálmur Egilsson rektor 69 nemendur við hátíðlega athöfn. Nemendahópurinn samanstóð af grunn- og meistaranemum úr viðskiptadeild og félagsvísinda- og lagadeild. Þetta var í fyrsta skipti sem nemendur í diplómanámi í viðskiptafræði og verslunarstjórnun eru útskrifaðir frá skólanum, og flutti Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR stutta tölu að því tilefni, en námið…Lesa meira

true

Spáð er éljum eða snjókomu næsta sólarhringinn

Veðurstofan spáir því að dimm él eða snjókoma verði um sunnan- og vestanvert landið frá því síðar í dag og fram á morgun. Spáð er vestan 8-15 m/s, en mun hægari austanlands í fyrstu. Suðlæg átt, 5-13 á morgun, og lægir um kvöldið. Gengur á með éljum en snjóar um tíma suðvestantil í kvöld og…Lesa meira

true

Leik Skallagríms og Hauka var frestað

Mótanefnd KKÍ hefur ákveðið að leik Hauka og Skallagríms í Dominos deild kvenna í körfubolta, sem vera átti í dag, skyldi frestað vegna veikinda sem herja á leikmannahóp Skallagríms. Leikurinn verður þess í stað spilaður sunnudaginn 1. mars næstkomandi kl. 17 á Ásvöllum. Í dag fara fram þrír leikir í Domino’s deild kvenna, einn kl.…Lesa meira

true

Gjaldskrárlækkun og tímabundinn afsláttur

Eins og greint var frá í Skessuhorni fyrr á árinu samþykkti bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar að veita tímabundinn afslátt af gatnagerðagjöldum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði. Með því er ætlun bæjaryfirvalda að hvetja til byggingar íbúðarhúsnæðis, en skortur er á slíku í Grundarfirði, sem og atvinnuhúsnæðis. Um er að ræða 50% afslátt til sex mánaða. Skilmálar afsláttarins hafa…Lesa meira

true

Fengu lán frá verkalýðsfélaginu

Föstudaginn 14. febrúar síðastliðinn gekk Verkalýðsfélag Akraness frá lánagreiðslum til 35 fyrrum starfsmanna Ísfisks. Nema lánin samtals tæpum tíu milljónum króna. Fólkið hafði ekki fengið greidd laun, né uppsagnarfrest sinn, frá því í september á síðasta ári. Þegar Ísfiskur var tekinn til gjaldþrotaskipta nú fyrir skemmstu varð endanlega ljóst að vangoldin laun fengjust ekki greidd…Lesa meira

true

Koltvísýringur og súrefnisleysi í hellum á Reykjanesi

Í gær voru gerðar gasmælingar við Eldvörpin á Reykjanesskaga. Slíkar mælingar eru nú gerðar vikulega sem hluti af viðbragði vegna landriss við Þorbjörn. Breytinga hefur orðið vart og vilja Veðurstofan og Almannavarnadeild Lögreglunnar vara við hellaskoðun á svæðinu en mælingar sýndu lífshættuleg gildi á koltvísýringi og súrefnisleysi í helli.  Margir hellar eru á svæðinu, en…Lesa meira

true

Valdís úr leik í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, er úr leik á fyrsta móti ársins á Evrópumótaröðinni sem hófst í Ástralíu í gær. Valdís lék annan hring mótsins í dag á fjórum höggum yfir pari. Hún byrjaði hringinn illa, fékk þrjá skolla á fyrstu fjórum holunum og leikur hennar var upp og ofan eftir það. Hún…Lesa meira

true

Natur-Al er ný vörulína frá Norðuráli

Norðurál hefur kynnt á markað nýja vörulínu undir merkinu Natur-Al™. „Nú býðst viðskiptavinum fyrirtækisins að kaupa umhverfisvænt ál sem er rekjanlegt frá upphafi til enda framleiðsluferlisins og vottað af óháðum aðilum,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Natur-Al er íslenskt ál sem hefur eitt lægsta kolefnisspor sem völ er á í heiminum. „Hrein orka, ásamt framúrskarandi…Lesa meira

true

Kynningarfundur um nýja ferðamannaleið

Í dag klukkan 13 verður streymt í fundarsal Dalabyggðar í Búðardal fundi sem fram fer á Ísafirði, en streymt á Patreksfirði, Hólmavík og Búðardal. Fjallað verður um nýja hringleið um Vestfirði og Dali. Vinnuheiti þessarar nýju leiðar er „Hringvegur 2“ og hefur hún verið unnin af ráðgjafarfyrirtækinu Cohn og Wolfe. Ingvar Örn Ingvarsson mun kynna…Lesa meira