
Samkvæmt spá Veðurstofunnar kemur djúp smálægð að Norðurlandi í nótt en henni fylgir hvöss norðanátt og snjókomu eða éljagangur á Norðurlandi, Vestfjörðum og Vesturlandi. Gul viðvörun er m.a. í gildi fyrir Breiðafjarðarsvæðið; norðan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) með snjókomu eða skafrenningi og slæmu skyggni. Versnandi akstursskilyrði og hvetur Veðurstofan ferðalanga til að sýna varkárni.…Lesa meira








