Fréttir

true

Spurði hvernig staðið yrði að krabbameinsleit hjá konum

Halla Signý Kristjánsdóttir alþingismaður (B) lagði á mánudaginn fram munnlega fyrirspurn á þingi til heilbrigðisráðherra um skimun á brjósta- og leghálskrabbameini. „Miklu skiptir að við þessar breytingar, sem framundan eru á skimun eftir krabbameini hjá konum, falli ekki niður sú reynsla og þekking sem byggst hefur upp hjá Krabbameinsfélaginu og best væri að unnið verði…Lesa meira

true

Lífshlaupið sett í dag

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands vekur athygli á að Lífshlaupið heilsu- og hvatningarverkefni verður ræst í 13. sinn í dag í Skarðshlíðarskóla í Hafnarfirði. Markmið með Lífshlaupinu er að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. „Lífshlaupið…Lesa meira

true

Stýrivextir undir þrjú prósent

Peningastefnunefnd hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25%. Meginvextir bankans, jafnan kallaðir stýrivextir, verða því 2,75%. Hafa vextir bankans aldrei verið lægri frá því verðbólgumarkmiðið var tekið upp árið 2001. Stýrivextir hafa lækkað um 1,75% frá því í maí í fyrra. Merki eru um að hagvöxtur síðasta árs hafi verið heldur meiri en áður…Lesa meira

true

Húsfyllir á fundi um kvótamál

Síðastliðinn laugardag hófst fundaferð um landið á Akranesi með almennum fundi í Gamla kaupfélaginu á Akranesi. Heiti fundanna er: „Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim.“ Á fundinum kom fram sterk undiralda fyrir breytingum á núverandi kvótakerfi í fiskveiðum. Fjölmenni mætti á fundinn. Ögmundur Jónasson fyrrum þingmaður og ráðherra hélt framsögu. Í máli hans…Lesa meira

true

„Gæti haft virkilega mikil áhrif á lífslíkur fólks og líðan eftir aðgerðir“

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum síðastliðinn miðvikudag. Halldór Bjarki Ólafsson, læknanemi frá Akranesi, hlaut verðlaunin fyrir verkefni sitt „Tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og langtímaútkomu eftir skurðaðgerðir.“ Leiðbeinandi Halldórs var Martin Ingi Sigurðsson, sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands. Halldór var að vonum…Lesa meira

true

Fann sig í kraftlyftingum eftir að hafa eignast langveikt barn

Kristín Þórhallsdóttir, dýralæknir og kraftlyftingakona frá Laugalandi í Stafholtstungum, hafnaði í þriðja sæti í opnum kvennaflokki í klassískum kraftlyftingum á Reykjavíkurleikunum um mánaðamótin. Hún lyfti þá 170 kg í hnébeygju, 87,5 kg í bekkpressu og 180 kg í réttstöðulyftu og var hlutskörpust í flokki undir 84 kg en hlaut bronsið í heildarstigakeppni. Samanlagði árangurinn á…Lesa meira

true

Fundur síðdegis í dag með íbúum fjölbýlishúsa

Íbúar í 26 íbúðum í tveimur fjölbýlishúsum á Akranesi, sem nýverið var sagt upp húsaleigu, eru boðaðir til fundar síðdegis í dag á Gamla kaupfélaginu. Það er Akraneskaupstaður og Verkalýðsfélag Akraness sem efna til fundarins með leigjendum íbúðanna. Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA segir að unnið sé að því að leysa úr fyrirsjáanlegum húsnæðisskorti fjölskyldnanna í…Lesa meira

true

Töpuðu gegn Vestra

Snæfellingar töpuðu eftir hörkuleik gegn sterku liði Vestra, 87-97 þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Hólmarar voru sterkari framan af fyrri hálfleik og leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhluta, 23-15. Vestramenn sneru taflinu sér í vil í öðrum leikhluta og voru sjö stigum yfir í…Lesa meira

true

Ráðin upplýsinga- og skjalastjóri LbhÍ

Sólveig Magnúsdóttir hefur verið ráðin upplýsinga- og skjalastjóri við Landbúnaðarháskóla Íslands. Sólveig er með meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Bifröst og BA gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands með skjalastjórn sem sérfag. Hún hefur frá árinu 2013 starfað sem sem skjalastjóri og forstöðumaður skjala- og ritaraþjónustu hjá Fjármálaeftirlitinu. Áður hafði hún starfað…Lesa meira

true

Alþjóðlegur dagur gegn krabbameinum

Alþjóðadagur gegn krabbameinum er haldinn um heim allan í dag, þriðjudaginn 4. febrúar. Að því tilefni hefur Kraftur og Krabbameinsfélagið hrundið af stað vitundarvakningu um mikilvægi jafningjastuðnings undir slagorðinu „Ég skil þig“. Félögin starfrækja Stuðningsnetið þar sem einstaklingar með reynslu veita öðrum faglegan jafningjastuðning. Stuðningsnetið er fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur.…Lesa meira