
Viðbygging sem hýsa mun leikskólann Hnoðraból og kennslurými kennara við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum er nú fokheld. Verkið er á áætlun og áætlað er að taka húsið í notkun fyrir upphaf næsta skólaárs. Nýbyggingin er reist úr forsteyptum einingum, alls 530 fermetrar að flatarmáli. Byggingarverktaki er Eiríkur J. Ingólfsson. Stjórnendur Hnoðrabóls og GBF fóru í skoðunarferð…Lesa meira








