Fréttir

true

Snæfellskonur réðu ferðinni í Vesturlandsslagnum

Snæfell sigraði Skallagrím örugglega í Vesturlandsslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Liðin mættust í Stykkishólmi á í gærkvöldi. Það voru Hólmarar sem höfðu yfirhöndina stærstan hluta leiksins og sigruðu að lokum með 19 stigum, 73-54. Snæfellskonur voru öflugar í upphafi leiks. Þær skoruðu fyrstu sjö stigin áður en Borgnesingar komust á blað. Snæfell réði ferðinni…Lesa meira

true

Landsréttur vísar frá beiðni um áfrýjun máls

Landsréttur hafnaði því með úrskurði 17. janúar síðastliðinn að verða við beiðni Akraneskaupstðar um áfrýjun dóms Héraðsdóms Reykjavíkur frá síðasta ári þar sem umsækjanda um starf forstöðumanns íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar voru dæmdar miskabætur þar sem framhjá honum hafði verið gengið við ráðningu í starfið. Var umsækjandanum, Indriða Jósafatssyni, dæmdar 700 þúsund króna miskabætur auk vaxta samkvæmt…Lesa meira

true

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir breikkun Vesturlandsvegar

Eins og kunnugt er tók Skipulagsstofnun ákvörðun um það í júní síðastliðnum að fyrirhuguð breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skyldi háð mati á umhverfisáhrifum. Þar sem óttast var að sú krafa myndi fresta verkinu um ófyrirséðan tíma var ákvörðunin kærð til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál strax þá um sumarið. Forgöngu að kæru hafði Akraneskaupstaðar enda…Lesa meira

true

Klóblaðka er nýuppgötvaður rauðþörungur við Ísland

Nýlega uppgötvuðu starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, ásamt vísindamönnum við Náttúrugripasafnið í Lundúnum, áður óþekkta tegund rauðþörunga hér við land, sem þeir hafa nú nefnt klóblöðku. Þörungurinn er blaðlaga, getur orðið 30 til 40 cm langur og 10 til 25 cm breiður. Hann er áberandi í fjörum, sérstaklega við Suðvesturland en finnst einnig víða við vesturströndina, við Vestfirði…Lesa meira

true

Vilja dusta rykið af hugmynd um brú yfir Hvítá hjá Stafholtsey

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar hafði á síðasta fundi sínum samgöngumál til umræðu vegna endurskoðunar aðalskipulags sveitarfélagsins 2010-2022. Nefndin tók undir bókun skipulags- og byggingarnefndar um að skoða þurfi legu stofnvega og Hringvegar um sveitarfélagið í samvinnu við Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið.  „Þá er það álit nefndarinnar að taka beri hjáleið um Borgarnes út af aðalskipulagi sbr.…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á íbúafund um atvinnumál og stefnumótun Breiðarsvæðis

Í gærkvöldi boðaði Akraneskaupstaðar íbúa og fulltrúa atvinnulífsins til opins fundar um atvinnumál á Garðavöllum. Óhætt er að segja að mikill áhugi hafi verið fyrir umræðuefninu, en gestir voru um 130 þegar mest var. Markmið bæjaryfirvalda með fundinum var að fá íbúa og fyrirtækjaeigendur að borði og ræða uppbyggingu atvinnulífs með sérstakri áherslu á Breið…Lesa meira

true

Veganvagninum á Akranesi lokað um mánaðamótin

Forsvarsmenn Junkyard vegan vagnsins á Akranesi hafa tilkynnt að vagninn verði lokaður frá og með 1. febrúar næstkomandi. Junkyard var opnaður af hjónunum Daniel Ivánovics og Evu Helgadóttur í mars á síðasta ári og fékk hann strax góðar viðtökur, en aðeins er seldur vegan matur í vagninum. Í tilkynningunni á Facebook síðu fyrir vagninn segir…Lesa meira

true

SVFK tapar máli um veiðirétt í Reykjadalsá

Héraðsdómur Reykjaness vísaði í dag frá dómi máli sem Stangaveiðifélag Keflavíkur höfðaði gegn Fiskistofu og Fiskræktar- og veiðifélagi Reykjadalsár í Borgarfirði. Krafðist SVFK þess að felld yrði úr gildi stjórnvaldsákvörðun Fiskistofu frá 15. janúar 2019 þar sem felldur var úr gildi samningur sem meirihluti stjórnar Veiðisfélags Reykjadalsár hafði gert við SVFK um ráðstöfun á veiði…Lesa meira

true

Ninja Sigmundsdóttir sigraði í Hátónsbarkanum

Hátónsbarkinn var haldinn í Tónbergi á Akranesi í gærkvöldi. Um er að ræða söngkeppni Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og félagsmiðstöðvarinnar Arnardals, í samstarfi við Tónlistarskólann á Akranesi. Að þessu sinni voru átta atriði skráð til leiks og tókst keppnin vel til í alla staði, að því er fram kemur á Facebook-síðu Arnardals. „Geta ungmennin sem stigu á…Lesa meira

true

Áætla framkvæmdir fyrir 132 milljarða

Á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins, sem fram fer á Grand Hótel Reykjavík í dag, eru fulltrúar tíu opinberra aðila sem kynna áætlaðar verklegar framkvæmdir á þessu ári. Fram kom að áætlað er að framkvæma fyrir 132 milljarða króna sem er aðeins fjórum milljörðum króna hærri upphæð en kynnt var á Útboðsþingi síðasta árs. Vegagerðin er með…Lesa meira