Fréttir

true

Fasteignamarkaður í jafnvægi

Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár um þinglýsingar árið 2019 var meðalviðskiptaverð með íbúðarhúsnæði á Íslandi árið 2019 um 46 milljónir króna samanborið við 44 m.kr. árið 2018. Fjöldi þinglýsinga stóð nokkurn veginn í stað á flestum svæðum landsins. Hins vegar dróst fjöldi kaupsamninga um stakar íbúðir saman um 4% á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2019 miðað…Lesa meira

true

Lausnir á krossgátu og myndagátu í Jólablaði Skessuhorns

Mjög góð þátttaka lesenda var í að senda inn lausnir á myndagátu og krossgátu sem birtist í Jólablaði Skessuhorns 18. desember síðastliðinn. Vel á þriðja hundrað lausnir bárust, öllu fleiri lausnir við krossgátunni. Dregið var úr réttum innsendum lausnum og fá tveir heppnir þátttakendur peningaverðlaun sem nægja á til að fara út að borða í…Lesa meira

true

Jóhanna María er nýr verkefnastjóri hjá Dalabyggð

Jóhanna María Sigmundsdóttir hefur tekið til starfa hjá sveitarfélaginu Dalabyggð en hún hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra atvinnu-, markaðs- og ferðamála. Um er að ræða starf sem er hluti af nýrri stefnu Dalabyggðar um að efla markaðsmál, styrkja ímynd sveitarfélagsins og gera það sýnilegri. Jóhanna María kemur til Dalabyggðar frá því að vera framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Rafræn Afladagsbók að taka við handskrifaðri

Fiskistofa hefur látið smíða, í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og hugbúnaðarfyrirtækið Stokk, smáforritið Afladagbókina. Innleiðing á notkun smáforritsins fyrir snjalltæki í stað afladagbóka á pappír hefst á næstunni. Stærri skip skila rafrænum afladagbókum til Fiskistofu en flestallir smábátar hafa fram til þessa skilað afladagbókum á pappír. Hægt er að sækja nýja forritið í App Store og…Lesa meira

true

Útbrunninn í leit að hugarró og fór að mála landslagsmyndir

„Ég bjóst alls ekki við svona rosalegum viðbrögðum. Ég var bara voða lítill í mér og hugsaði að fólk myndi ekki vilja mynd frá mér,“ segir Sigurður Mikael Jónsson sem ákvað að koma landslagsmyndum sínum betur á framfæri í upphafi árs með því að opna Facebook síðu fyrir myndirnar, Smjmyndir. Mikael man nákvæmlega hvenær hann…Lesa meira

true

Sjúkraþjálfari opnar heilsueflingarsetur í Borgarnesi

Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir er fædd og uppalin í Borgarnesi og flutti aftur í heimahagana síðastliðið haust. Rakel Dögg er við það að opna nýtt heilsueflingarsetur undir nafninu Stoð & Styrkur á B59. Hún er dóttir Sigurgeirs Erlendssonar og Önnubellu Albertsdóttur sem reka Geirabakarí í Borgarnesi, en þar hitti blaðamaður Skessuhorns einmitt Rakel að máli og…Lesa meira

true

Fjöliðjan mun að nýju fara að Dalbraut 10

Á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn var samþykkt samhljóða tillaga skipulags- og umhverfisráðs að stefnt verði að því að starfsemi Fjöliðjunnar verði að nýju flutt að Dalbraut 10. Eins og kunnugt er var starfsemin flutt í bráðabirgðahúsnæði hjá Akri á Smiðjuvöllum eftir að bruni varð í húsnæði Fjöliðjunnar að kvöldi 7. maí á síðasta ári.…Lesa meira

true

Sorphirða tvöfalt seinlegri við þessar aðstæður

Þeir Sigursveinn og Einar Marteinn hjá Íslenska gámafélaginu voru að losa sorpílát í Stykkishólmi þegar Sumarliði Ásgeirsson fréttaritari Skessuhorns hitti þá að máli. Þeir segja að sorphirða í fannferginu nú taki tvöfalt lengri tíma en alla jafnan. Þeir slógu því ekki slöku við við verk sitt.Lesa meira

true

Grunsamlegar mannaferðir í landshlutanum

Lögreglunni á Vesturlandi hafa borist nokkrar tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir í umdæminu í janúarmánuði. Í einu tilviki var um innbrot og skemmdarverk að ræða. „Þetta var í Borgarnesi og á Akranesi en rétt að allir sem einn hafi vara á sér og muni að læsa dyrum, loka gluggum og muna einnig eftir að læsa geymslum…Lesa meira

true

Fyrsta stálþilið sett niður

Í dag var hafist handa við að setja niður stálþilin í Grundarfjarðarhöfn. Verkinu miðar ágætlega þrátt fyrir óhagstætt veður framan af í janúar. Vonandi verða veðurguðirnir hliðhollir í framhaldinu en það á eftir að koma í ljós.Lesa meira