Fréttir

true

Framkvæmdir við Dvalarheimilið ganga vel

Mikill og góður gangur er í framkvæmdum við Dvalarheimilið Fellaskjól í Grundarfirði en búið er að reisa veggi og var vinna í fullum gangi við að ganga frá þaksperrum í vikunni. Verkið er á áætlun.Lesa meira

true

Borgfirðingabók er komin út

Borgfirðingabók 2018 er nú komin út og í dreifingu til áskrifenda. Sem fyrr er það Sögufélag Borgarfjarðar sem stendur að útgáfunni. Bókin er að þessu sinni 288 blaðsíður og hefur að geyma efni eftir 29 höfunda. „Eins og að líkum lætur er efnið af fjölbreyttum toga og ættu flestir að finna eitthvað áhugavert,“ segir í…Lesa meira

true

CrossFit til styrktar Minningarsjóði Einars Darra

Á morgun, miðvikudag, verður styrktaræfing í CrossFit Ægi á Akranesi til styrktar Minningarsjóði Einars Darra og er öllum velkomið að taka þátt. Einar Darri var aðeins 18 ára gamall þegar hann lést á heimili sínu í Hvalfjarðarsveit 25. maí síðastliðinn af völdum ofneyslu lyfsins OxyContin. Fjölskylda og vinir Einars Darra stofnuðu í kjölfarið minningarsjóð í…Lesa meira

true

Pan Orama í höfn í Grundarfirði

Seglskútan Pan Orama lá við festar í Grundarfjarðarhöfn mánudaginn 23. júlí og er þetta í annað sinn sem hún kemur til Grundarfjarðar. Skútan kom einnig 9. júlí síðastliðinn en þá var aftakaveður og blés hressilega um farþegana. Nú viðraði töluvert betur en skútan er með 34 farþega og 19 manna áhöfn. Þetta var fyrsta skemmtiferðaskipið…Lesa meira

true

Maður úr lífhættu eftir hnífsstunguárás á Akranesi

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi barst Lögreglunni á Vesturlandi beiðni frá Sjúkrahúsinu á Akranesi vegna manns sem þangað hafði komið og lét ófriðlega. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maðurinn á bak og burt. Á meðan lögreglumenn voru enn á vettvangi barst svo önnur tilkynning frá manni sem búsettur er nærri sjúkrahúsinu. Bað sá um…Lesa meira

true

Vítaspyrna í uppbótartíma tryggði sigur Víkings

Víkingur Ó. vann dramatískan sigur á Reykvíkingunum í ÍR þegar liðin mættust í gær í 12. umferð Inkassodeildarinnar. Þetta var síðasti leikur umferðarinnar en ástæðan að hann var spilaður svona seint er sú að Víkingur var að keppa í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins í liðinni viku þar sem liðið tryggði sér þátttöku í undanúrslitum. Snæfellingar…Lesa meira

true

Í lífshættu eftir hnífsstungu

Karlmaður var hætt kominn eftir að annar karlmaður stakk hann með hnífi í heimahúsi á Akranesi í nótt. Fréttavefurinn Vísir.is og Bylgjan greindu fyrst frá. Samkvæmt frétt Vísis missti sá fyrrnefndi mikið blóð. Í stað þess að flytja hann á sjúkrahúsið á Akranesi var hann fluttur með forgangi á slysadeild Landspítalans þar sem hann gekkst…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur lokaður vegna malbikunarframkvæmda

Í dag og á morgun, 23. og 24. júlí, er stefnt að því að malbika 3,7 km langan kafla á Akrafjallsvegi. Veginum verður lokað í báðar áttir og allri umferð beint norðan við Akrafjall og í gegnum Akranes. Áætlað er að vinnan standi yfir allan sólarhringinn frá klukkan 09:00 í dag og til kl. 20:00…Lesa meira

true

Kvennalið Snæfells semur við Heiðu Hlín

Akureyringurinn Heiða Hlín Björnsdóttir hefur samið við Snæfell um að spila með liðinu í Dominos deildinni á komandi tímabili. Heiða var burðarás þegar hún spilaði með Þór Akureyri í fyrstu deildinni á síðasta tímabili þar sem hún skoraði 17 stig, tók 7,1 fráköst og gaf 1,8 stoðsendingu að meðaltali í leik. „Við bjóðum hana hjartanlega…Lesa meira

true

Við garðaúðun á að huga að velferð býflugna

„Matvælastofnun hefur borist ábending frá Býflugnaræktendafélagi Íslands. Stjórn félagsins hefur lýst yfir áhyggjum sínum af réttarstöðu býflugnabænda og velferð býflugna í tengslum við notkun eiturefna við eyðingu á skordýrum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Notkun eiturefna við garðaúðun, eftirlit með slíkri starfsemi og útgáfa starfsleyfa á því sviði heyrir ekki undir Matvælastofnun. Öðru máli gegnir…Lesa meira