Fréttir

true

4G sambandi komið á í Stykkishólmi

Símafyrirtækið Nova hefur nú sett upp 4G sendi í Stykkishólmi sem stórbætir þjónustu viðskiptavina fyrirtækisins á svæðinu. „Við hlökkum til að geta þjónustað viðskiptavini okkar í þessum landshluta enn betur,“ segir í tilkynningu. Nova er annað stærsta farsímafyrirtækið hér á landi og var fyrst íslenskra símafyrirtækja til þess að bjóða 4G/LTE þjónustu. „4G/3G þjónusta Nova…Lesa meira

true

Jón Þór Þórðarson nýr þjálfari ÍA í körfuknattleik

Náðst hefur samkomulag milli Jóns Þórs Þórðarsonar og stjórnar Körfuknattleiksfélags ÍA þess efnis að Jón Þór taki við aðalliði félagsins. Þetta staðfestir Örn Arnarson formann deildarinnar í samtali við Skessuhorn. Jón Þór tekur við starfinu af spilandi þjálfurunum Áskeli Jónssyni og Fannari Helgasyni en búist er við því að þeir muni leika áfram með liðinu…Lesa meira

true

Íbúafundur um hugsanlega komu flóttafólks til Bifrastar

Útlendingastofnun hefur lagt fram beiðni um að fá að leigja að hámarki átta hús á Bifröst fyrir flóttafólk. Beiðnin var rædd á íbúafundi sem haldin var í Háskólanum á Bifröst seinnipartinn í gær. Útlendingastofnun hefur í hyggju að leigja fjórar íbúðir í Reynihrauni og fjórar í Víðihrauni. Rósa Ragnarsdóttir, verkefnisstjóri í móttökuteymi Útlendingastofnunar, útskýrði málið…Lesa meira

true

Ha! Hvað sagðir þú?

Það líða um sjö ár að meðaltali frá því að fólk verður vart við heyrnarskerðingu þar til það leitar sér aðstoðar. „Það er líklega vegna þess misskilnings að eðlilegt sé að bíða með að fá sér heyrnartæki þar til maður er orðinn gamall. Fólk á öllum aldri notar gleraugu og það dettur engum í hug…Lesa meira

true

Var landsliðskona í þremur íþróttagreinum samtímis

Ferill Skagakonunnar Laufeyjar Sigurðardóttur í íþróttum er um margt býsna fróðlegur. Laufey skoraði 257 mörk í 322 leikjum með meistaraflokki í knattspyrnu. Hún á að baki þrjá Íslandsmeistaratitla utanhúss og fjóra innanhúss auk þess sem hún vann í bikarkeppni KSÍ einu sinni. Laufey á að baki 19 leiki fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu auk þess…Lesa meira

true

Ofurhlaupari sem henti út ruslfæðinu fyrir tveimur áratugum

„Ég tók til í mataræðinu árið 1995. Þá henti ég út öllu drasli og byggði matinn upp á kjöti, fiski, grænmeti og ávöxtum. Kökum, kexi, brauðmeti og öðru ruslfæði henti ég út. Ég er vandlátur á brauð til dæmis og henti einnig út öllu næringarsnauðu fyllifóðri. Ég líki þessu við að það þýðir ekki að…Lesa meira

true

Bleikum blæ bregður yfir sveitir

„Bleikir akrar – slegin tún,“ syngur bóndinn og alþingismaðurinn Haraldur Benediktsson á Vestri-Reyni í Hvalfjarðarsveit hástöfum í dráttarvélinni þessa dagana. Eins og greint var frá í Skessuhorni í liðinni viku hófst sláttur viku af júní á bænum. Taðan hefur síðan verið þurrkuð, henni rúllað og loks pakkað í bleikt rúlluplast.  Liturinn er tákn um stuðning…Lesa meira

true

Sveitarfélagið sver af sér tengsl við lúpínueyðingu

„Af gefnu tilefni er áréttað að Borgarbyggð hefur ekki skipulagt herferð gegn útbreiðslu lúpínu í landi sveitarfélagsins,“ segir í tilkynningu sem sett var inn á vef Borgarbyggðar í dag. Tilefnið er frétt í gær þess efnis að hópur fólks hyggst koma saman í holtinu við Landnámssetrið í Borgarnesi og uppræta þar lúpínu sem orðin er…Lesa meira

true

Ævintýralega góð byrjun í Þverá – fyrsta holl fékk 146 laxa

Laxveiðin byrjar svo sannarlega með látum. Laxar hafa jafnvel sést í laxveiðiám þar sem þeir koma venjulega ekki fyrr en í lok þessa mánaðar. „Þetta er meiriháttar byrjun í Þverá og Kjarará enda fiskur kominn víða um ána og mikið af honum á nokkrum stöðum,“ sagði Aðalsteinn Pétursson sem hefur verið á bökkum árinnar fyrstu…Lesa meira

true

Lið Strætó Norðurlandameistarar 2016

Vagnstjórar Strætó bs. sigruðu í liðakeppninni á árlegu Norðurlandamóti í ökuleikni strætisvagnabílstjóra sem fram fór í Reykjavík um helgina. Íslenskir vagnstjórar hafa með þessum sigri unnið keppnina tólf sinnum auk þess sem þeir hafa unnið ellefu silfurverðlaun og ein bronsverðlaun frá upphafi. Vagnstjórar Norðurlanda hafa att kappi í ökuleikni síðan 1976 en reykvískir vagnstjórar hófu…Lesa meira