Fréttir

true

Talinn hafa valdið tjóni með aðgerðum og aðgerðaleysi

Héraðsdómur Vesturlands hefur kveðið upp dóm í allsérstæðu máli sem tengist búrekstri á ótilgreindri jörð á Vesturlandi. Á jörðinni rak sambúðarfólk kúabú í nafni hlutafélags frá árinu 2002 í jafnri eigu þeirra beggja, eða allt þar til slitlaði upp úr sambandi þeirra árið 2011 og konan flutti burtu. Maðurinn hélt búskap áfram á jörðinni. Konan…Lesa meira

true

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal að hefjast

Bæjarhátíð Dalamanna „Heim í Búðardal“ verður haldin um næstu helgi, 13. – 15. júlí. Að sögn Bjarnheiðar Jóhannsdóttur, ferðamálafulltrúa Dalabyggðar, gengur undirbúningur vel og þegar orðin mikil stemning fyrir hátíðinni meðal heimamanna. „Það eru ótrúlega margir sem koma að undirbúningnum og erum við þakklát fyrir alla þá sem hafa boðið fram sína aðstoð,“ segir Bjarnheiður.…Lesa meira

true

Sandara- og Rifsaragleði um næstu helgi

Sandara- og Rifsaragleði verður haldin um næstu helgi en hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár frá 2002. Að sögn Drífu Skúladóttur umsjónamanns hátíðarinnar gengur undirbúningur vel. „Það er mjög ánægjulegt hversu duglegir heimamenn eru að taka þátt í öllum undirbúningi. Það þarf ekki annað en að hóa í mannskap þá eru allir mættir, hvort…Lesa meira

true

Fæstir ná að nýta alla veiðidagana í júlí

Þrálát ótíð það sem af er sumri hefur komið í veg fyrir að strandveiðisjómenn hafi geti róið eins og þeir kjósa og hafa heimildir til. Kveður svo rammt við að menn muna jafnvel ekki eftir annarri eins ótíð að sumri. Nú er útlit fyrir margir nái ekki að nýta alla 12 róðrardagana sem leyfirlegt er…Lesa meira

true

Viku pílagrímaferð ráðgerð frá Bæ í Skálholt

Þriðjudaginn 17. júlí verður lagt upp í pílagrímagöngu frá Bæ í Bæjarsveit til Skálholts og gengið til messu á Skálholtshátíð, sunnudaginn 22. júlí. Það eru þær sr. Elínborg Sturludóttir og Hulda Guðmundsdóttir guðfræðingur sem leiða gönguna. „Ekki verður um skipulagða ferð að ræða og því er engin skráning í gönguna, heldur mætir fólk eins og…Lesa meira

true

Færðu Sumargjöf peninga í minningu tveggja bræðra

Síðastliðinn laugardag færðu afkomendur Sólveigar Sveinsdóttir frá Hafnarhvoli í Ólafsvík og Braga Björnssonar, slysavarnarfélaginu Sumargjöf í Ólafsvík peningagjöf til minningar um Sigurð og Lárus Sveinssyni, en þeir voru bræður Sólveigar. Þeir bræður fórust þegar vélbáturinn Framtíðin hvolfdi í Ólafsvíkurhöfn í september árið 1947. Gjöfin er þakklætisvottur til félagsins fyrir góð störf í þágu sjómanna og…Lesa meira

true

Hornsteini Sementsverksmiðjunnar verður komið á safn

Nýverið afhenti Gunnar H. Sigurðsson framkvæmdastjóri Sementsverksmiðjunnar Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra á Akranesi hornstein Sementsverksmiðjunnar. Steininum var bjargað úr ofnhúsinu skömmu áður en niðurrif verksmiðjuhúsanna hófst. Hornsteinninn var lagður fyrir réttum sextíu árum, nánar tiltekið laugardaginn 14. júní 1958. Var hann innmúraður í steypta súlu við úttaksenda gjallbrennsluofns verksmiðjunnar. Hann lagði Ásgeir Ásgeirsson þáverandi forseti…Lesa meira

true

Torfærukeppni í landi Fellsenda um aðra helgi

Fjórða og fimmta umferð Íslandsmeistaramótsins í torfæru fer fram í malargryfjum í landi Fellsenda í Hvalfjarðarsveit dagana 21. og 22. júlí næstkomandi. Sem fyrr er það Torfæruklúbbur Suðurlands sem heldur mótið. Keppnin hefst báða dagana klukkan 11:00 og kostar 2.000 krónur inn á svæðið fyrir hvorn dag. Ef keyptur er aðgangur báða dagana er verðið…Lesa meira

true

Víravegrið sett upp í Staðarsveit

Starfsmenn frá fyrirtækinu Rekverki hafa undanfarið unnið að því fyrir Vegagerðina að setja upp víravegrið í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Að þessu sinni voru sett upp vegrið á alls um kílómeters kafla, um 500 metrar við Vatnsholtsvötn og um 500 metrar rétt austan við Langaholt og Ytri Garða. Til þess að hægt væri að setja vegriðin…Lesa meira

true

Vestlendingar gerðu það gott á Landsmóti hestamanna

Landmót hestamanna var haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal í Reykjavík og lauk á sunnudaginn. Náðu Vestlendingar þar góðum árangri. Í Barnaflokki fór Kolbrún Katla Halldórsdóttir á Sigurrós frá Söðulsholti upp úr forkeppni í milliriðil þar sem hún hafnaði í 18. sæti. Í ungmennaflokki fóru þrír Vestlendingar í milliriðil; Þorgeir Ólafsson og Hlynur frá Haukatungu…Lesa meira