Fréttir

true

Var landsliðskona í þremur íþróttagreinum samtímis

Ferill Skagakonunnar Laufeyjar Sigurðardóttur í íþróttum er um margt býsna fróðlegur. Laufey skoraði 257 mörk í 322 leikjum með meistaraflokki í knattspyrnu. Hún á að baki þrjá Íslandsmeistaratitla utanhúss og fjóra innanhúss auk þess sem hún vann í bikarkeppni KSÍ einu sinni. Laufey á að baki 19 leiki fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu auk þess…Lesa meira

true

Ofurhlaupari sem henti út ruslfæðinu fyrir tveimur áratugum

„Ég tók til í mataræðinu árið 1995. Þá henti ég út öllu drasli og byggði matinn upp á kjöti, fiski, grænmeti og ávöxtum. Kökum, kexi, brauðmeti og öðru ruslfæði henti ég út. Ég er vandlátur á brauð til dæmis og henti einnig út öllu næringarsnauðu fyllifóðri. Ég líki þessu við að það þýðir ekki að…Lesa meira

true

Bleikum blæ bregður yfir sveitir

„Bleikir akrar – slegin tún,“ syngur bóndinn og alþingismaðurinn Haraldur Benediktsson á Vestri-Reyni í Hvalfjarðarsveit hástöfum í dráttarvélinni þessa dagana. Eins og greint var frá í Skessuhorni í liðinni viku hófst sláttur viku af júní á bænum. Taðan hefur síðan verið þurrkuð, henni rúllað og loks pakkað í bleikt rúlluplast.  Liturinn er tákn um stuðning…Lesa meira

true

Sveitarfélagið sver af sér tengsl við lúpínueyðingu

„Af gefnu tilefni er áréttað að Borgarbyggð hefur ekki skipulagt herferð gegn útbreiðslu lúpínu í landi sveitarfélagsins,“ segir í tilkynningu sem sett var inn á vef Borgarbyggðar í dag. Tilefnið er frétt í gær þess efnis að hópur fólks hyggst koma saman í holtinu við Landnámssetrið í Borgarnesi og uppræta þar lúpínu sem orðin er…Lesa meira

true

Ævintýralega góð byrjun í Þverá – fyrsta holl fékk 146 laxa

Laxveiðin byrjar svo sannarlega með látum. Laxar hafa jafnvel sést í laxveiðiám þar sem þeir koma venjulega ekki fyrr en í lok þessa mánaðar. „Þetta er meiriháttar byrjun í Þverá og Kjarará enda fiskur kominn víða um ána og mikið af honum á nokkrum stöðum,“ sagði Aðalsteinn Pétursson sem hefur verið á bökkum árinnar fyrstu…Lesa meira

true

Lið Strætó Norðurlandameistarar 2016

Vagnstjórar Strætó bs. sigruðu í liðakeppninni á árlegu Norðurlandamóti í ökuleikni strætisvagnabílstjóra sem fram fór í Reykjavík um helgina. Íslenskir vagnstjórar hafa með þessum sigri unnið keppnina tólf sinnum auk þess sem þeir hafa unnið ellefu silfurverðlaun og ein bronsverðlaun frá upphafi. Vagnstjórar Norðurlanda hafa att kappi í ökuleikni síðan 1976 en reykvískir vagnstjórar hófu…Lesa meira

true

Glæsileg hross frá Vesturlandi á leið á LM á Hólum

Úrtökumót hestamannafélaga á Vesturlandi vegna komandi Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal var haldið í Borgarnesi um liðna helgi. Þar komu fram hross og knapar frá öllum fimm hestamannafélögunum á Vesturlandi. Félögin Snæfellingur, Faxi og Skuggi senda síðan þrjá eða þrjú efstu á LH í hverjum flokki, en Glaður og Dreyri senda tvo fulltrúa í…Lesa meira

true

Meðan eitt hús féll reis annað

Húsið Melur við Höfðagötu í Stykkishólmi var rifið í gær. Þorbergur Bæringsson ætlar að byggja þar nýtt hús. Á sama tíma voru voru snör handtök viðhöfð við að raða upp einingum í stækkun bakarísins, en sama verktakafyrirtækið; BB og synir, kemur einmitt að báðum þessum verkefnum.Lesa meira

true

Kvenfélagið í Grundarfirði gaf þríhjól

Kvenfélagið Gleym mér ei færði nemendum á elsta stigi Leikskólans Sólavalla í Grundarfirði veglega gjöf á dögunum. Þá komu kvenfélagskonur færandi hendi með tvö þríhjól til notkunar fyrir nemendur. Elsta stig leikskólans flutti á dögunum upp í Grunnskóla Grundarfjarðar og eru nemendurnir á sér deild þar. Enn er verið að safna leikföngum og námsefni fyrir…Lesa meira

true

Nýr íþróttafulltrúi ráðinn til ÍA

Hildur Karen Aðalsteinsdóttir tók á dögunum við stöðu íþróttafulltrúa Íþróttabandalags Akraness. „Hildur Karen hefur gríðarlega mikla þekkingu og reynslu innan íþróttahreyfingarinnar en hún hefur starfað fyrir félagið bæði sem kennari, þjálfari og foreldri. Hún hefur komið víða við innan íþróttabandalagsins m.a. setið í stjórn og varastjórn ÍA til nokkurra ára. Hildur Karen hefur þjálfað sund…Lesa meira