Fréttir

true

Búið að samþykkja deiliskipulag vegna Vesturlandsvegar

Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar hefur nú samþykkt breytt deiliskipulag vegna Vesturlandsvegar og byggir það á tillögu umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar og Vegagerðarinnar. Í bókun með samþykkt þess segir að markmið framkvæmda og skipulagsins sé að vegurinn verði endurbættur til að auka umferðaröryggi og greiða fyrir umferð. „Stefnt er að 2+1 vegi á stærstum hluta deiliskipulagsins…Lesa meira

true

Undirskriftalisti í Dölum marklaus

Formgalli var á undirskriftalista sem afhentur var sveitarstjórn Dalabyggðar 24. maí síðastliðinn og telst listinn því marklaus. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sveitarfélagsins frá því í gær. Eins og greint var frá í Skessuhorni fékk sveitarstjórn listann afhentan fyrir fund sinn 24. maí. Höfðu 213 af 495 kjörgengum íbúum Dalabyggðar, 43%, lagt nafn…Lesa meira

true

Vorsýning FIMA toppar sig á hverju ári

Árleg vorsýning Fimleikafélags Akraness (FIMA) var haldin á laugardaginn þar sem allir iðkendur félagsins frá 5 ára aldri tóku þátt. Venja er fyrir því að hver sýning hafi ákveðið þema og söguþráð. Síðustu tvö ár hefur sagan verið samin af Stefaníu Sól Sveinbjörnsdóttur, þjálfara FIMA. Ísland var þema sýningarinnar í ár og farið var á…Lesa meira

true

Lægsta boð í fimleikahús 600 milljónir

Verktakafyrirtækið Spennt ehf. í Reykjavík átti lægsta tilboð í byggingu fimleikahúss við Vesturgötu á Akranesi, 607 milljónir króna. Var tilboð fyrirtækisins 40 milljónum lægra en næstlægsta boð, að því er fram kemur í fundargerð skipulags- og umhverfisráðs. Alls bárust sex tilboð, þau eru eftirfarandi: Þingvangur ehf., 773.136.873 kr. Munck Íslandi ehf., 658.493.786 kr. Þarfaþing h/f.,…Lesa meira

true

Minningarsjóður um Einar Darra

Minningar- og styrktarsjóður hefur verið stofnaður í nafni Einars Darra Óskarssonar í Hvalfjarðarsveit sem lést langt fyrir aldur fram 25. maí síðastliðinn. Einar Darri varð aðeins 18 ára. Sjóðurinn er ætlaður til stuðnings ungmennum í fíkniefnavanda. Reikningsnúmer sjóðsins er: 0354-13-200240 og kt. 160370-5999.Lesa meira

true

Róbert Daniel sigraði á Íslandsmeistaramóti eldsmiða

Um síðustu helgi var hin árlega eldsmíðahátíð haldin á Safnasvæðinu í Görðum á Akranesi. „Venju samkvæmt komu erlendir meistarar og miðluðu af þekkingu sinni. Þrír Svíar, Einn Norðmaður og tveir Þjóðverjar komu að utan auk fjölda Íslendinga sem komu víða af landinu. Í þetta skipti lærðu menn og konur að smíða ýmis verkfæri í smiðjuna,“…Lesa meira

true

Hæfileikamótun ungra knattspyrnuiðkenda

Hæfileikamótun N1 og KSÍ í knattspyrnu fór á föstudaginn fram á Hellissandi. Þá voru æfingar fyrir Vesturland og Vestfirði hjá stelpum og strákum. Á æfingarnar voru mættir 17 strákar og 18 stelpur en það var Þorlákur Árnason yfirmaður hæfileikamótunar sem stýrði æfingunum. Jakob Skúlason stjórnarmaður heilsaði einnig upp á krakkana á æfingunum. Krakkarnir stóðu sig…Lesa meira

true

Mikilvægt að hafa snyrtilegt umhverfi og sinna viðhaldi eigna

Heilbrigðisstofnun Vesturlands er rekin á átta starfsstöðvum um Vesturland og húsnæðið sem tilheyrir stofnuninni er alls um 20.000 fermetrar. Það er því alltaf nóg að gera hjá Halldóri Hallgrímssyni og samstarfsfélögum hans sem sjá um allt almennt viðhald á húsnæði, lóðum og búnaði stofnunarinnar víðsvegar um Vesturland. Blaðamaður Skessuhorns leit inn á HVE á Akranesi…Lesa meira

true

Bók um grasnytjar, þjóðtrú og sögu

Út er komin bókin Grasnytjar á Íslandi, þjóðtrú og saga, eftir Guðrúnu Bjarnadóttur. Bókin er skreytt ljósmyndum eftir Jóhanna Óla Hilmarsson, sem jafnframt er meðútgefandi að bókinni, og jurtateikningum Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri. Bókina er einnig gefin út í enskri útgáfu sem nefnist Plants of Iceland Traditional uses and folklore. Í bókinni er fjallað um…Lesa meira

true

Úr grásleppu í Gæsluna

„Ég var bara pjakkur þegar ég byrjaði að fara á sjó með móðurafa mínum,“ segir Baldur Ragnar Guðjónsson sem starfar í dag sem þriðji stýrimaður á varðskipinu Þór. Hann ólst upp í Stykkishólmi og hefur alltaf verið í sterkum tengslum við sjóinn. „Maður er aldrei of ungur til að byrja á sjó. Ég fór á…Lesa meira