Fréttir

true

Innkalla Stellu í gleri

Vínnes ehf. hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, innkallað 330 ml glerflöskur af bjórnum Stellu Artois. Ástæðan er sú að flöskurnar gætu innihaldið gleragnir. Innköllun á bjórnum nær aðeins til eininga sem renna út 6. desember 2018 og 7. mars 2019 og voru keyptar í verslunum Vínbúðarinnar eða í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli eða Reykjavíkurflugvelli. Vörur…Lesa meira

true

Vélarvana bátur dreginn til hafnar

Áhöfn vélarvana skemmtibáts sem staddur var á Breiðafirði óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan níu í morgun. Stjórnstöð Gæslunnar kallaði út sjómælingabátinn Baldur, en áhöfn hans var við mælingar skammt frá Brjánslæk. Brást áhöfn Baldurs skjótt við og var komin á vettvang um hálfri klukkustund síðar. Áhöfn skemmtibátsins fór um borð í Baldur sem…Lesa meira

true

Heldur ljósmyndasýningu í Skorradal

Eftir slétta viku, laugardaginn 16. júní, verður ljósmyndasýning opnuð á Stálpastöðum í Skorradal. Þetta er þriðja sumarið í röð þar sem boðið er upp á ljósmyndasýningu á þessum sérstaka sýningarstað. Sýningin er að mestu utanhúss og jafnframt hefur þema sýninganna alltaf tengst dalnum á einhvern hátt. Undanfarin tvö sumur hafa sýningarnar mælst mjög vel fyrir…Lesa meira

true

Norðurálsmótið hafið

Hið árlega Norðurálsmót í knattspyrnu fyrir 7. flokk drengja hófst á Akranesi núna rétt fyrir hádegi. Venju samkvæmt safnaðist hópurinn saman á Stillholti og gekk skrúðgöngu í Akraneshöllina, þar sem mótið var formlega sett. Fyrstu leikirnir hefjast núna í hádeginu og mótið stendur fram á sunnudag. Um 1500 knattspyrnumenn framtíðarinnar frá 36 knattspyrnufélögum taka þátt…Lesa meira

true

Tilnefningar til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur auglýst eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 24. ágúst næstkomandi. Fjölmiðlaverðlaunum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er ætlað að hvetja til hverskyns umfjöllunar um umhverfi og náttúru,…Lesa meira

true

Einn þurr dagur var í Ásgarði í maí

Nýliðinn maímánuður var einhver sá votasti í langan tíma á vestanverðu landinu og þó víðar væri leitað. Eyjólfur Ingvi Bjarnason í Ásgarði í Hvammssveit gerir vætutíð liðins mánaðar að umræðuefni á Facebook-síðu sinni. Úrkomumælir hefur verið á bænum síðan í september 1992 og meðalúrkoma í maí frá því mælingar hófust 52,2 mm. Í maí síðastliðnum…Lesa meira

true

Jafntefli við Gana í síðasta leik fyrir HM

Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana í vináttulandsleik í knattspyrnu í gær. Ísland komst yfir strax á 6. mínútu þegar Kári Árnason skoraði með laglegum skalla eftir hornspyrnu. Ísland stýrði leiknum án þess þó að skapa sér mörg færi í fyrri hálfleiknum. Það var ekki fyrr en á 40. mínútu að Íslendingar fengu almennilegt færi…Lesa meira

true

Leikið á nýjum Ólafsvíkurvelli næsta miðvikudag

Sem kunnugt er var hafist handa við að leggja gervigras á Ólafsvíkurvöll síðasta haust, skömmu eftir að Íslandsmótinu í knattspyrnu lauk seint í septembermánuði. Vegna snjóþunga og kulda í vetur frá áramótum og síðan vætutíðar á vormánuðum hefur verkið ekki gengið jafn greiðlega fyrir sig og vonast hafði verið til. Nú er hins vegar farið…Lesa meira

true

Krílakot í Ólafsvík fjörutíu ára

Leikskólinn Krílakot í Ólafsvík verður 40 ára 19. ágúst í sumar. Þann dag árið 1978 var leikskolinn opnaður í húsnæðinu við Brúarholt. Leikskóli hafði þó verið rekin í Ólafsvík frá árinu 1972 en 7. febrúar það ár opnaði fyrsti leikskólinn sem starfræktur var af Kvenfélagi Ólafsvíkur. Höfðu kvenfélagskonur unnið að opnun hans frá árinu 1969…Lesa meira

true

Borgfirðingar tóku virkan þátt í hreyfiviku

Ungmennasamband Borgarfjarðar tók þátt í Hreyfiviku UMFÍ sem fram fór í síðustu viku. Hreyfivikan er evrópsk lýðheilsuherferð sem ber heitið Now We Move. Markmið verkefnisins er að fá hundrað milljónir fleiri Evrópubúa til að hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020. Hreyfivikan er í raun vitundarvakning um mikilvægi þess að hreyfing sé hluti af lífsstíl okkar,…Lesa meira