Fréttir

true

Davíð og Atli semja við Skallagrím

Körfuknattleiksmaðurinn Davíð Ásgeirsson hefur ákveðið að taka skóna af hillunni og leika með Skallagrími í Domino‘s deild karla næsta vetur. Hann tók sér hlé frá körfuknattleiksiðkun eftir þarsíðasta tímabil og lék því síðast með Skallagrími veturinn 2016-2017. Þá skoraði hann 3,5 stig og tók 2,1 frákast að meðaltali í leik. Þá hefur Atli Aðalsteinsson endurnýjað…Lesa meira

true

Ferðablaðið Travel West Iceland komið út

Byrjað er að dreifa hina árlega Ferðablaði Vesturlands, Travel West Iceland 2018-2019, en fyrstu eintökin runnu úr prentsmiðjunni í fyrrakvöld. Það er Skessuhorn ehf. sem gefur blaðið út en að þessu sinni í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands. Blaðið er jafn stórt og á síðasta ári, 116 síður í brotinu A5 og ríkulega myndskreytt. Það er…Lesa meira

true

Bærinn styður við framkvæmdir Skotfélags Akraness

Þriðjudaginn 22. maí var skrifað undir framkvæmdasamning milli Akraneskaupstaðar og Skotfélags Akraness. Um er að ræða fjárhagsstuðning vegna framkvæmda á athafnasvæði félagsins. Snúa þær að því að koma upp vatni og hreinlætisaðstöðu, leggja rafmagn á svæðið í stað þess að nota ljósavél og girða hluta svæðisins betur af. Bæjarráð samþykkti fjárveitinguna í lok mars en…Lesa meira

true

Undirskriftalisti afhentur sveitarstjórn Dalabyggðar

Hópur íbúa í Dalabyggð hefur nú safnað undirskriftum meðal kjósenda í sveitarfélaginu. Óskað er eftir íbúakosningu um tillögu Arnarlóns frá 13. maí sl. um kauptilboð í Laugar í Sælingsdal, ásamt því að mótmæla þeirri hugmynd að Dalabyggð láni fyrir hluta af kaupverðinu. Samkvæmt ummælum Eyjólfs I Bjarnasonar frá Ásgarði, talsmanns hópsins, hafa 43% kjósenda í…Lesa meira

true

Vesturgata malbikuð

Síðdegis í dag var hafist handa við að malbika Vesturgötu á Akranesi, en umfangsmiklar framkvæmdir við endurnýjun götunnar frá Stillholti að Merkigerði hófust síðasta sumar. Kaflinn sem byrjað var að malbika í dag er síðasti hluti verksins, frá Vesturgötu 119 að Merkigerði. Vinna hófst við þann hluta götunnar að nýju fyrr í vor, þegar frost…Lesa meira

true

Hægt að fletta upp hvar á að kjósa á laugardaginn

Þjóðskrá hefur opnað fyrir rafrænan aðgang að kjörskrárstofni sem þýðir að kjósendur geta með einföldum hætti kannað hvar þeir eru skráðir á kjörskrá í komandi sveitarstjórnarkosningum.  Þegar slegin er inn kennitala kemur upp nafn, lögheimili og sveitarfélag. Yfirleitt birtast einnig upplýsingar um kjörstað og kjördeild. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir…Lesa meira

true

GRun kaupir Snæfrost hf. í Grundarfirði

Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði hefur fest kaup á Snæfrosti hf sem einnig er staðsett í Grundarfirði. Snæfrost rekur frystihótel við Grundarfjarðarhöfn en fyrirtækið var stofnað í mars 2007. Þá um vorið var hafist handa við að byggja frystiklefa á uppfyllingu við höfnina og var húsið tekið í notkun 9. nóvember 2007.…Lesa meira

true

Skoða fyrst og kjósa svo – jafnvel á þeim gamla

Búast má við því að meðalaldur bíla sem leið eiga um götur Borgarness að morgni kjördags hækki töluvert. Þá verður árleg skoðun fornbíla framkvæmd hjá Frumherja við Sólbakka frá klukkan 9-12. „Skoða fyrst og kjósa svo – jafnvel á þeim gamla,“ er slagorð fornbílaeigenda af þessu tilefni. Skoðunargjald fyrir fornbíla er 3.400 krónur fyrir hvern…Lesa meira

true

Útskriftir framundan úr framhaldsskólunum

Undir vikulok verða útskriftarathafnir í þremur framhaldsskólum á Vesturlandi. Á morgun, föstudaginn 25. maí klukkan 14:00 verður útskrift í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi og sama dag klukkan 15:00 hefst útskriftarhátíð Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Laugardaginn 26. maí verða nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og hefst hátíðin á sal skólans klukkan 14:00.Lesa meira

true

Útimarkaður og völva spáir fyrir frambjóðendum

Næstkomandi laugardag, á kosningadaginn, klukkan 12-17 verður útimarkaður í Englendingavík í Borgarnesi. Þar verða boðnir til sölu antikmunir, barnaföt, lopapeysur og ýmislegt góss. Einnig verður Völva Vesturlands á svæðinu og mun hún spá fyrir frambjóðendum og öðrum sem koma í heimsókn. -fréttatilk.Lesa meira