Fréttir

true

Franskir krakkar settu svip sinn á Grundarfjörð

Það var mikið líf og fjör í Grundarfirði í síðustu viku þegar stór hópur franskra ungmenna var í heimsókn. Krakkarnir komu laugardagskvöldið 12. maí og fóru aftur aðfararnótt 19. maí. Krakkarnir voru í gistingu hjá nemendum í 6. 7. og 8. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar og voru sum heimili með tvo eða þrjá Frakka í gistingu.…Lesa meira

true

Fimleikafólk gerði það gott

Íslandsmót unglinga í 3.-5. flokki í fimleikum var haldið á Egilsstöðum um síðustu helgi. Um 700 keppendur úr 63 liðum tóku þátt í mótinu. Þar af fór fjöldi keppenda frá Fimleikafélagi Akraness sem keppti undir merkjum ÍA. Þrjú lið kepptu í 5. flokki og að móti loknu stóðu þau þrjú á verðlaunapallinum, með gull, silfur…Lesa meira

true

Ungmenni ræddu saman um íþróttir og forvarnir

Um 130 ungmenni af elsta stigi grunnskólanna í Borgarbyggð komu í síðustu viku saman til fundar í Logalandi, að frumkvæði Ungmennasambands Borgarfjarðar. Tvö umræðuefni voru tekin fyrir. Annarsvegar hvaða breytingar vilja ungmenni sjá á íþróttastarfi í sveitarfélaginu og hins vegar hvernig fræðslu um forvarnir óska ungmennin eftir og hvernig er heppilegast að koma skilaboðum og…Lesa meira

true

Gengið verður til kosninga á laugardaginn

Gengið verður til sveitarstjórnarkosninga næstkomandi laugardag. Sveitarfélögin sem tilheyra gamla Veturlandskjördæmi eru tíu talsins, en Reykhólahreppur er ellefta sveitarfélagið á starfssvæði Skessuhorns. Í sex þessara sveitarfélaga verður listakosning; Akranesi, Borgarbyggð, Grundarfirði, Hvalfjarðarsveit, Snæfellsbæ og Stykkishólmi. Óhlutbundin kosning verður í Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppi, Helgafellssveit, Skorradalshreppi og Reykhólahreppi. Í þeim sex sveitarfélögum sem boðnir eru fram…Lesa meira

true

Húsbíll fauk út af

Húsbifreið á suðurleið fauk út af veginum skammt hjá Höfn í Melasveit um kl. 17:30 í dag. Bifreiðin var kyrrstæð eða á mjög lítilli ferð þegar óhappið átti sér stað og töluvert hvasst var á svæðinu. Um tíma var einn farþeganna fastur í braki bifreiðarinnar. Náðist að losa hann og virtist hann ekki alvarlega slasaður,…Lesa meira

true

Gul viðvörun í landshlutanum

Veðurstofan hefur gefið út að í dag og fram á kvöld er gul viðvörun við Faxaflóa og Breiðafjörð. Á vef Veðurstofunnar segir að við Faxaflóa megi búast við 15-23 m/s til klukkan 21 í kvöld, hvassast í vindstrengjum við fjöll. Á Snæfellsnesi má búast við suðaustan 18-23 m/s, snörpum vindhviðum og erfiðum akstursskilyrðum til klukkan…Lesa meira

true

Slysalaus helgi en mikið um hraðakstur

Hvítasunnuhelgin gekk vel fyrir sig í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. „Að vanda var haldið uppi öflugu eftirliti og ekki urðu alvarleg slys í umdæminu. Allt of margir ökumenn óku þó of hratt, en 242 ökutækjum var ekið of hratt þar sem lögreglumenn voru við hraðamælingar. Sá sem hraðast ók mældist á 128 km hraða,“ segir…Lesa meira

true

Skorið út á Akranesi

Undangenginn vetur hefur það verið fastur liður hjá hópi Akurnesinga að hittast og skera út í við. Hefur hópurinn komið saman alla miðvikudagsmorgna í húsnæði Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni og reynt sig við útskurðinn, undir handleiðslu Ásgeirs Samúelssonar og Guðmundar Þorsteinssonar. Námskeiðið er opið öllum 60 ára og eldri en einnig yngra…Lesa meira

true

Skagakonur úr leik í bikarnum

Skagakonur féllu úr leik í Mjólkurbikar kvenna eftir 0-2 tap gegn Keflavík í gær. Leikið var um sæti í 16 liða úrslitum. Barátta einkenndi leikinn og mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Bæði liðin lögðu upp með að spila þétta vörn og gefa fá færi á sér. Enda var leikurinn fremur daufur hvað…Lesa meira

true

Fimm prósent aukins vegafjár á Vesturland

Samkvæmt frétt Stöðvar2 síðastliðinn fimmtudag er Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra, í samráði við Vegagerðina, búinn að ráðstafa þeim fjórum milljörðum króna sem ríkisstjórnin ákvað að verja til aukinna vegaframkvæmda á þessu ári, umfram fjárlög. Athygli vekur að upplýsingar um ráðstöfun fjárins hafa ekki verið birtar opinberlega á upplýsingavefjum ráðuneytisins né hjá Vegagerðinni. Samkvæmt fréttinni er…Lesa meira