Fréttir

true

Ný vefsíða Snæfellsbæjar

Opnuð hefur verið ný vefsíða sveitarfélagsins Snæfellsbæjar. Er hún aðgengileg á sömu vefslóð og áður, www.snb.is. Í frétt um málið á nýja vefnum segir að það sé von stjórnenda Snæfellsbæjar að ný vefsíða geti stuðlað að auknu upplýsingaflæði til íbúanna og gegnsærri stjórnsýslu. Einfaldleikinn var hafður í fyrirrúmi við hönnunina og að hafa nýju vefsíðuna…Lesa meira

true

Skjalasöfn gömlu hreppanna afhent hérðasskjalasafni

Í liðinni viku afhenti Skúli Þórðarson sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar til varðveislu skjalasöfn Hvalfjarðarstrandarhrepps, Innri-Akraneshrepps, Leirár- og Melahrepps og Skilmannahrepps. Um er að ræða skjöl sem ná fram til þess tíma er sveitarfélögin voru sameinuð í júnímánuði 2006 og Hvalfjarðarsveit varð til. Frá því í febrúar síðastliðnum hafa Birna Mjöll Sigurðardóttir og Erla Dís Sigurjónsdóttir,…Lesa meira

true

Iðnaðarsigur Kára

Kári vann 1-0 sigur á Gróttu þegar liðin mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Akraneshöllinni. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. Fengu bæði lið nokkur ágætis tækifæri til að komast yfir sem ekki tókst að nýta og staðan var því markalaus í hléinu. Það var stál í stál…Lesa meira

true

Afleitt tíðarfar fyrir lambféð og bændur

Veðráttan það sem af er maímánuði hefur verið afleit fyrir sauðfjárbændur. Þrálát kuldatíð og ekki síst úrkoma gerir það illmögulegt að hleypa lambfé út. Plássleysi í fjárhúsum hrjáir bændur því víða. Jón Eyjólfsson sauðfjárbóndi á Kópareykjum í Reykholtsdal segir að 330 kindur beri hjá sér í vor og þar af eru 65 enn óbornar. „Maímánuður…Lesa meira

true

Sanngjarn sigur ÍA í baráttuleik

ÍA sigraði ÍR, 1-0, fyrsta heimaleiknum í 1. deild kvenna í sumar. Leikið var í Akraneshöllinni í gær. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Akranesvelli en var færður undir þak vegna veðurs. Um mikinn baráttuleik var að ræða en heilt yfir voru Skagakonur sterkara liðið og sigurinn verður að teljast verðskuldaður. Skagakonur voru ákveðnari…Lesa meira

true

Lífrænt ferskt pasta framleitt á Akranesi

Kaja organic ehf. í samvinnu við Sóknaráætlun Vesturlands kynnir með stolti nýja íslenska framleiðslu; lífrænt ferskt pasta unnið úr Demeter vottaðri Semolinu frá Ítalíu og lífrænum eggjum frá Nesbú en pastað er framleitt á Café Kaju á Akranesi. Pastanu er pakkað í 200 gr neytendaumbúðir sem eru eins umhverfisvænar og hægt er fyrir svona framleiðslu.…Lesa meira

true

Sigurður Þór ráðinn framkvæmdastjóri KFÍA

Sigurður Þór Sigursteinsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra knattspyrnufélags ÍA. Tekur hann við starfinu af Huldu Birnu Baldursdóttur frá 1. ágúst næstkomandi. Sigurður er Skagamaður, uppalinn hjá ÍA og lék 106 leiki með meistaraflokki á árunum 1990 til 2001, auk þess að leika 16 leiki fyrir yngri landslið Íslands. „Það er mjög spennandi að…Lesa meira

true

Vantar að ráða skjalavörð í Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit auglýsir starf skrifstofumanns og skjalavarðar hjá Hvalfjarðarsveit laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: ·         Almenn skrifstofu- og ritarastörf. ·         Skjalavarsla. ·         Gerð og útsending reikninga. ·         Greiðsla reikninga o.fl. ·         Umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins og öðrum miðlum. ·         Almenn verkefni á skrifstofu sveitarfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: ·        …Lesa meira

true

Siginn fiskur verkaður um borð

Færeyski línubáturinn Núpur KG kom til hafnar í Ólafsvík í liðinni viku vegna smábilunar í vél. Á meðan viðgerð stóð yfir fóru bátsverjarnir Jögvan og Rasmus að athuga með signa fiskinn sinn en siginn fiskur er einn af þjóðarréttum Færeyinga og þykir bestur sé hann sjósiginn. Greinilega voru þeir félagar himinlifandi með gæðin, þegar Alfons…Lesa meira

true

Fótboltadagur haldinn í Ólafsvík

Í liðinni viku var haldinn fótboltadagur í Ólafsvík. Margrét Sif Sævarsdóttur formaður Umf. Víkings/Reynis sagði að mikil gleði hafi ríkt á þessum degi. Komu á fimmta hundrað gestir til að skemmta sér og öðrum og var boðið upp á allskonar leiki tengda fótbolta. Margrét Sif sagði í samtali við Skessuhorn að þessi hugmynd kæmi frá…Lesa meira