Fréttir

true

Hvalfjarðargöng lokuð til klukkan 14 í dag

Vegna umferðaróhapps sem varð fyrir hádegi í dag, verða Hvalfjarðargöng lokuð til um kl. 14 í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Rúta og fólksbíll sem kom úr gagnstæðri átt lentu í árekstri. Einungis ökumenn voru í bílunum. Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila var vegna slyssins, eins og ætíð þegar óhöpp af þessu…Lesa meira

true

MC Ísbjörn opnaði List án landamæra

Listahátíðin List án landamæra hófst í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag, 3. maí og stendur hún yfir til næsta sunnudags. Hátíðinni er ætlað að fagna fjölbreytileika mannlífsins. Hún var fyrst haldin 2003 á Evrópuári fatlaðra og hefur verið haldin á hverju ári síðan þá. Fjölmargir listamenn stíga á stokk á hátíðinni. Einn þeirra er Sindri Víðir Einarsson…Lesa meira

true

Lét rætast langþráðan draum um að gerast hundasnyrtir

Maríanna Filipa Cabrita er fædd og uppalin á Akranesi og hefur búið þar alla tíð. Sambýlismaður hennar er Arnoldas Lucun sem flutti til Íslands frá Litháen fyrir átta árum og saman eiga þau Armand Þór Arnoldsson, tíu mánaða. Maríanna segir það alltaf hafa verið hennar draum að geta lifað af því að vinna með dýrum.…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð kynnir stefnuskrá sína

„Stefnuskrá Sjálfstæðismanna í Borgarbyggð verður kynnt föstudaginn 11. maí klukkan 17:00 í Félagsbæ Borgarnesi. Í tilefni þess bjóða frambjóðendur alla velkomna í fjölskyldugrill og fjör. Aðstandendur listans hvetja sem flesta til að mæta, hlusta á það sem framboðið hefur fram færa og spyrja spurninga.“ -FréttatilkynningLesa meira

true

Go West hlýtur vottun Vakans

Go West / Út og vestur á Snæfellnesi hefur nú fengið vottun Vakans, sem er gæðavottunarkerfi í ferðaþjónustu sem snýr að öllum þáttum þjónustu við ferðamenn nema gistingu. Þau fyrirtæki sem taka þátt í Vakanum njóta liðsinnis starfsfólks Vakans við að taka út reksturinn á grundvelli ítarlegra gæðaviðmiða, fá staðfestingu á því sem vel er…Lesa meira

true

Líkir væntanlegum aðstöðumun hestafólks í Dreyra við byltingu

Þriðjudaginn 1. maí voru tímamót hjá Hestamannafélaginu Dreyra. Þá var skrifað undir samning um byggingu nýrrar reiðhallar á svæði félagsins á Æðarodda við Akranes. Félagið er nú eitt fjögurra hestamannafélaga í landinu sem enn er án reiðhallar eða annarrar aðstöðu til tamningar og þjálfunar. Hin þrjú félögin eru öll fámennir klúbbar í samanburði við Dreyra.…Lesa meira

true

Svipmyndir frá niðurrifi dagsins

Áfram heldur niðurrif efnisgeymslu Sementsverksmiðjunnar við Faxabraut á Akranesi. Í morgun var búið að taka efnið af Faxabrautinni sem notað hefur verið sem pallur fyrir stórvirkar vinnuvélar svo þær nái til lofts í byggingunni. Akfært er því orðið um götuna, en hún þó enn lokuð fyrir almennri umferð. Meðfylgjandi myndir tók Daníel B.J. Guðrúnarson á…Lesa meira

true

„Stærsta markmiðið að gera betur en í fyrra“

ÍA hafnaði í 5. sæti 1. deildar kvenna í knattspyrnu að loknu síðasta sumri eftir fall úr efstu deild árið áður. Helena Ólafsdóttir er nú að hefja sitt annað keppnistímabil sem þjálfari liðsins. Hún segir eftirvæntingu ríkja fyrir sumrinu. „Sumarið leggst vel í okkur þjálfarana. Tíminn sem búið er að bíða eftir í allan vetur…Lesa meira

true

Úrslit frá Vesturlandsmóti í skotfimi

Laugardaginn 28. apríl var haldið árlegt Vesturlandsmót í loftgreinum í inniaðstöðu Skotfélags Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi. Keppt var í loftskammbyssu karla og kvenna, loftrifflum karla og kvenna og í skammbyssu og riffli í unglingaflokkum kvenna. „SkotVest þakkar mótanefnd og þátttakendum kærlega fyrir þáttökuna,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Helstu úrslit Vesturlandsmótsins voru eftirfarandi:  …Lesa meira

true

Framkvæmdir fyrir fimm milljarða á teikniborðinu

Fyrirtækið Uppbygging ehf. hefur keypt um tveggja hektara land við Smiðjuvelli á Akranesi og áformar að byggja þar allt að 17 þúsund fermetra blandað verslunar- og þjónusturými. Tillögur hafa verið kynntar fyrir skipulagsyfirvöldum hjá Akraneskaupstað og hefst vinna við deiliskipulag í framhaldinu. Gert er ráð fyrir að byggingar á svæðinu verði 6-8 sem myndi umgjörð…Lesa meira