Fréttir

true

Hollvinasamtökin færðu HVE tæki til öndunaraðstoðar

Aðalfundur Vesturlandsvaktarinnar, hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, var nýverið haldinn í fundasal HVE á Akranesi að viðstöddu fjölmenni. Steinunn Sigurðardóttir formaður félagsins færði af þessu tilefni HVE nýjan Ventilator og stand að gjöf. Það var Stefán Þorvaldsson lungnalæknir og yfirlæknir Lyflækningadeildar sem veitti tækinu viðtöku. Tæki þetta kostar 2,6 milljónir króna. Stefán þakkaði fyrir höfðinglega gjöf sem…Lesa meira

true

Segir iðnnám vera fyrir alla

Kolbrún Ósk Kolbeinsdóttir söðlaði um; fór úr bóknámi, í vélvirkjun og loks í rennismíði. Hún segist stefnulaust hafa skráð sig í framhaldsskóla í bóklegt nám. Án þess að vita hvað hún ætti að gera í framtíðinni. Hún og yngri systir hennar ákváðu síðan að fara saman að læra vélvirkjun, fag sem karlar hafa frekar sótt…Lesa meira

true

Nýtt upphaf er nauðsyn fyrir samfélagssátt

„Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi leggur þunga áherslu á tafarlausar umbætur í samgöngumálum. Kjördæmið situr eftir að þessu leyti og umferðaþungir vegakaflar eru orðnir lífshættulegir eins og dæmin sanna. Hefja þarf framkvæmdir þegar á þessu ári við endurgerð vegakaflans um Kjalarnes að Borgarfjarðarbrú. Þá er þjóðarskömm að enn skuli ekki vera hafnar framkvæmdir í Gufudalssveit eftir nær…Lesa meira

true

Knappur undirbúningur en málefnavinna hafin

„Við sem skipun Á lista Áfram í Hvalfjarðarsveit bjóðum fram krafta okkar til að vinna saman að góðum málefnum og viljum leitast við að efla samstöðu í samfélaginu. Þar sem framboð okkar ber að með skömmum fyrirvara er óhjákvæmilegt að undirbúningur hefur verið knappur. Við höfum nú hafið starf okkar og munum bjóða til umræðu…Lesa meira

true

Víkingur Ó. sótti sigur í fyrsta leik

Víkingur Ó. vann góðan útisigur á ÍR, 0-2, þegar liðin mættust í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á laugardag. Þeir Ibrahim Sorie Barrie og Gonzalo Zamorano skoruðu mörk Víkings í síðari hálfleik. Heimamenn í ÍR voru heldur ákveðnari í upphafi leiks en liðsmenn Víkings Ó. náðu helst að ógna markinu eftir föst leikatriði.…Lesa meira

true

Draga framboðslista Betri byggðar til baka

Eggert Kjartansson á Hofsstöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi hefur sent yfirlýsingu fyrir hönd H-lista Betri byggðar: „Listinn Betri byggð bauð fram fyrst í síðustu kosningum og höfum við náð að gera margt fyrir okkar samfélag á kjörtímabilinu. Vildum við halda því góða verki áfram og buðum því fram lista í kosningunum núna. Þar sem það…Lesa meira

true

Skagamenn byrjuðu mótið á sigri

ÍA sigraði Leikni R. með einu marki gegn engu í fyrstu umferð 1. deildar karla í knattspyrnu á laugardag. Leikurinn fór fram í Akraneshöllinni og kvartaði enginn áhorfanda yfir því, enda gekk á með éljum á Akranesi þennan dag. Eina mark leiksins skoraði Steinar Þorsteinsson á 60. mínútu eftir undirbúning Andra Adolphssonar. Skagamenn mættu ákveðnir…Lesa meira

true

Ungur og efnilegur skylmingamaður keppir fyrir Íslands hönd

Daníel Þór Líndal Sigurðsson stefnir á að keppa fyrir Íslands hönd í skylmingum með stungusverði á sumarólympíuleikunum í París árið 2024. Daníel er fæddur í London árið 2001 en er nú búsettur ásamt foreldrum sínum og yngri bróður í Belfast á Norður-Írlandi. Foreldrar hans eru Sigurður Sævarsson og Skagakonan Ásdís Líndal. Daníel hefur æft skylmingar…Lesa meira

true

Vorið er komið og grundirnar snjóa!

Það var ekki vorlegt um að lítast í Grundarfirði fimmtudaginn 3. maí síðastliðinn frekar en annarsstaðar á landinu. Hvít snjóþekja yfir öllu og stemningin frekar eins og á köldum febrúardegi frekar en á fögrum vordegi. Það stöðvaði þó ekki þennan ferðalang að skella sér í útilegu. Enda kannski engin ástæða til að láta kalt veður…Lesa meira

true

Samið um endurbætur og stækkun grunnskólans

Síðastliðinn föstudag var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og byggingarfyrirtækisins Eiríkur J. Ingólfsson ehf. um stækkun og heildarendurbætur á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi. Er samningurinn gerður að undangengnu útboði sem Ríkiskaup sá um fyrir sveitarfélagið. Einungis barst eitt tilboð í verkið. Á vef sveitarfélagsins segir að framkvæmdir muni nú hefjast á næstu dögum. Verkið mun standa…Lesa meira