Fréttir

true

Húlladúlla á Akratorgi á laugardag

„Húlladúllan verður á Akratorgi á Akranesi með heila hrúgu af húllahringjum á milli klukkan tvö og fjögur á laugardaginn (11. júní). Hún verður með litla krakkahringi, hringi fyrir fullorðna og nokkra risahringi fyrir sérstaklega hávaxna byrjendur. Húllafjörið og kennslan er ókeypis en þáttakendur eru hvattir til að leggja nokkra aura í söfnunarkrukkuna svo Húlladúllan geti…Lesa meira

true

Norðurálsmótið hafið

Nú í hádeginu var Norðurálsmótið sett í Akraneshöllinni. Það er fyrir knáa knattspyrnustráka á aldrinum sex til átta ára. Mótið í ár er örlítið fjölmennara en í fyrra eða um 50 keppendum, það verða því um 1500 keppendur á mótinu í ár. 176 lið eru skráð til leiks í 33 félögum. Búist er við metfjölda gesta…Lesa meira

true

Líkan af húsum í miðbæ Borgarness haft til sýnis

Í Ráðhúsi Borgarbyggðar við Borgarbraut 14 í Borgarnesi er nú til sýnis líkan af miðbæjarsvæðinu í kringum Borgarbraut 57 og 59 þar sem bygging tveggja stórhýsa er hafin. Á vef sveitarfélagsins eru íbúar hvattir til að kíkja við á opnunartíma og skoða líkanið, sem sjá má á meðfylgjandi mynd.Lesa meira

true

Kennarar felldu kjarasamning

Meirihluti grunnskólakennarar felldu nýjan kjarasamning Félags grunnskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslu um samninginn lauk 9. júní. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var sú að 72,24% felldu samninginn, 25,27% samþykktu hann, en auðir seðlar voru frá 2,49%. Á kjörskrá voru 4.453 og greiddu 65,48% atkvæði.Lesa meira

true

Telja að veikindi í hrossum á Kúludalsá megi rekja til flúormengunar

Jakob Kristinsson prófessor og Sigurður Sigurðsson dýralæknir segja í nýrri skýrslu, sem þeir unnu að beiðni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, að endurtekin veikindi hrossa á bænum Kúludalsá í Hvalfirði megi rekja til flúormengunar fá álverinu á Grundartanga. Að minnsta kosti helmingur hrossanna á Kúludalsá hafa veikst og megi rekja það til efnaskiptaröskunar sem kallar equine metabolic…Lesa meira

true

Skagamenn féllu úr leik í bikarnum

Skagamenn mættu liði Breiðabliks í sextán liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í gær. Breiðablik sigraði í leiknum með tveimur mörkum gegn einu. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma og því réðust úrslitin í framlengingu. Árið 2013 komust Skagamenn síðast í sextán liða úrslit bikarkeppninnarog var því sagan að endurtaka sig. Léku þeir einmitt þá við Breiðablik og tapaðist leikurinn…Lesa meira

true

Húlladúlla mætir í Skallagrímsgarðinn í dag

Húlladúllan verður í Skallagrímsgarði í Borgarnesi klukkan fjögur í dag með heila hrúgu af húllahringjum. Að viðburðinum stendur brottfluttur Borgnesingur; Unnur María Bergsveinsdóttir, sem gerði garðinn frægan í frjálsum. Hljóp meðal annars 800 og 1500 metra hlaup fyrir UMSB. Unnur María lærði sagnfræði en eftir bankahrun yfirgaf hún Ísland í leit að ævintýrum og fór…Lesa meira

true

Hlaut nemendaverðlaun Tónlistarskólans á Akranesi

Hrefna Berg Pétursdóttir, 19 ára nemandi við Tónlistarskólann á Akranesi, hlaut verðlaun fyrir frábæran námsárangur, frammistöðu og fallegan tónlistarflutning á nýloknu skólaári. „Það er mjög mikill heiður fyrir mig að fá þessi verðlaun,” segir Hrefna í samtali við Skessuhorn. Verðlaunin eru veitt árlega af Rotarýklúbbi Akraness. Hrefna hefur áður unnið til þessara verðlauna árið 2011,…Lesa meira

true

Torfærukeppni við Akrafjall á morgun

Á morgun, laugardaginn 11. júní, fer fram torfærukeppni á Fellsenda við austanvert Akrafjall. 20 keppendur eru skráðir til leiks, 16 á sérútbúnum bílum og fjórir á götubílum. Búist er við hörku keppni. „Það verða fimm umferðir í Íslandsmeistaramótinu í torfæru í sumar og þetta er önnur þeirra. Sú fyrsta fór fram á Hellu í byrjun…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning opnuð á morgun í Skorradal

Ljósmyndasýning verður opnuð við hátíðlega athöfn í Skorradal á morgun, laugardag kl. 17:00. Um er að ræða samvinnuverkefni Kristínar Jónsdóttur ljósmyndara á Hálsum og Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum. Sýningin, sem ber nafnið “Eyðibýli í Skorradal allt árið,” verður haldin á Stálpastöðum en þar er eitt af eyðibýlunum í dalnum. Skessuhorn hafði samband við Kristínu og…Lesa meira