Fréttir

true

Skagastelpurnar í Madre Mia áfram í Músíktilraunum

Skagastelpurnar í hljómsveitinni Madre Mia komust áfram ásamt rappbandinu 200 Mafía í fyrstu undanúrslitum Músíktilrauna sem fram fóru í gærkvöldi. Sveitin Madre Mia samanstendur af þremur 14 og 15 ára stelpum af Akranesi sem allar hafa góðan grunn í tónlist. Katrín Lea Daðadóttir syngur og leikur á bassa og kassatrommur, Hekla María Arnardóttir syngur og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði í baráttuleik

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar gegn Stjörnunni, 69-65, eftir spennandi baráttuleik í Domino‘s deild kvenna á laugardag. Stjarnan krækti með sigrinum í mikilvæg stig í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og Stjarnan leiddi 10-9 um miðjan fyrsta leihluta. Snæfell skoraði aðeins fjögur stig næstu fimm mínúturnar og á…Lesa meira

true

Andlát – Guðjón Arnar Kristjánsson

Guðjón Arnar Kristjánsson, fyrrverandi alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins, er látinn, 73 ára að aldri. Guðjón fæddist á Ísafirði 5. júlí 1944 sonur hjónanna Kristjáns Sigmundar Guðjónssonar og Jóhönnu Jakobsdóttur. Guðjón lauk fiskimannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík og starfaði sem skipstjóri um þriggja áratuga skeið, eða frá 1967 til 1997. Guðjón lét mikið til sín…Lesa meira

true

Vakandi gagnvart hugsanlegu fuglaflensusmiti

Víða í Evrópu hefur að undanförnu borið á fuglaflensu, bæði í alifuglum og villtum fuglum. „Það er því mikilvægt að fuglaeigendur gæti smitvarna og allir séu vakandi fyrir óeðlilegum dauða bæði villtra fugla og fugla í haldi,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Á undanförnum mánuðum hafa tilkynningar borist um fuglaflensugreiningar bæði í alifuglum og villtum…Lesa meira

true

Stórþorski landað á Akranesi

Bátum hefur nú fjölgað að nýju sem landa afla sínum á Akranesi og binda menn þar vonir við að botninum hafi verið náð í útgerð á staðnum og bjartari tímar séu í vændum. Að sögn Alexanders Eiríkssonar landa nú fjórir bátar reglulega á Skaganum og leggja inn á markaðinn. Eftir að þjónusta fiskmarkaðar hófst að…Lesa meira

true

Samkeppni um kórlag í tilefni afmælis fullveldis

Afmælisnefnd vegna fullveldis Íslands á þessu ári, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands, hefur ákveðið að efna til samkeppni um nýtt kórlag sem frumflutt verður 1. desember 2018 á hátíðadagskrá í félagsheimilinu Hörpunni í Reykjavík. Kórlagið skal samanstanda af frumsömdu og óbirtu ljóði og lagi fyrir blandaðan kór. Verkið skal hæfa tilefninu og henta vel til…Lesa meira

true

Ríkið tryggir sjúkraflutninga þótt RKÍ hætti þeim

Ákveðið hefur verið að slíta samstarfi Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) og heilbrigðisyfirvalda um rekstur sjúkrabíla hér á landi. Af því tilefni vill ráðuneyti heilbrigðismála árétta að öryggi sjúkraflutninga verður áfram tryggt meðan unnið er að því að skipuleggja fyrirkomulag þessarar þjónustu til framtíðar. Í yfirlýsingu RKÍ um málið frá síðustu viku kemur fram að…Lesa meira

true

Annir hjá björgunarsveitum víða um land í gær

Björgunarsveitir víða um land þurftu eftir hádegi í gær að sinna nokkrum útköllum. Kallaðar voru út sveitir vegna tveggja vélarvana báta, annar var skammt frá Akranesi. Í báðum tilfellum tókst áhöfn bátanna að leysa málið á farsælan hátt áður en björgunarbátar komu á vettvang og var því aðstoð afþökkuð. Á fjórum stöðum á landinu voru…Lesa meira

true

Keppni í stærðfræði stendur nú yfir

Árleg stærðfræðikeppni fyrir grunnskóla á Vesturlandi hófst klukkan 14 í dag í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Keppendur eru 134 úr áttunda, níunda og tíunda bekk frá sex grunnskólum af Vesturlandi. Að þessu sinni taka þátt nemendur frá Grundaskóla og Brekkubæjarskóla á Akranesi, Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Grunnskóla Snæfellsbæjar og Auðarskóla í Búðardal. Þegar keppendur…Lesa meira

true

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur smellina hans Bó

Í kvöld, föstudaginn 16. mars klukkan 20:30, mun Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps troða upp með líflega tónleika í Tónbergi á Akranesi. Kórinn þekkja margir, ekki síst eftir þátttöku hans og sigur í keppninni Kórar Íslands sem fram fór á Stöð2 á síðasta ári. Tónleikarnir í Tónbergi nefnast „Bó og meira til“. Höskuldur Birkir Erlingsson formaður kórsins útskýrir…Lesa meira