Fréttir

true

Vatnsgjald lækkar víða hjá Veitum

Ákveðið hefur verið að vatnsgjald Veitna lækki hjá flestum vatnsveitum fyrirtækisins. Lækkunin verður 10% í stærstu veitunum í Reykjavík og á Akranesi en lækkunin veltur á afkomu hverrar vatnsveitu fyrir sig hjá Veitum. Þannig verður lækkunin lítið eitt minni í Grundarfirði en meiri í Stykkishólmi. Í dag var tilkynnt um rekstrarniðurstöðu ársins 2017 hjá Veitum…Lesa meira

true

Eitt tilboð í stækkun Grunnskóla Borgarness

Tilboð í viðbyggingu og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi voru opnuð hjá Ríkiskaupum þriðjudaginn 6. mars sl. Einungis eitt tilboð barst í verkið. Það var frá Eiríki J. Ingólfssyni húsasmíðameistara í Borgarnesi. Tilboðið hljóðaði upp á 818,5 m.kr. Kostnaðaráætlun verksins var upp á 689,6 m.kr. Tilboðið var því 18,7% yfir kostnaðaráætlun. Í frétt Borgarbyggðar segir…Lesa meira

true

Rástlisti fyrir slaktaumatölt Vesturlandsdeildarinnar

Annað mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fer fram næstkomandi föstudagskvöld í Faxaborg í Borgarnesi. Keppnisgrein kvöldsins er slaktaumatölt og verður þetta í annað sinn sem keppt verður í þeirri grein í deildinni. Meðfylgjandi má sjá ráslista, en 21 keppandi mætir á völlinn á morgun. Berglind Ragnarsdóttir með Óm frá Brimilsvöllum sigraði í slaktaumatöltinu í fyrra og…Lesa meira

true

Alvarlegur misbrestur í framkvæmd samræmds prófs í íslensku

Nemendur í 9. bekk grunnskóla á landinu þreyja þessa dagana samræmd próf í íslensku, stærðfræði og ensku. Á prófi í íslensku í gær urðu tæknileg vandamál við prófið þess valdandi að einungis lítill hluti nemenda gat lokið þeim á tilsettum tíma. Skessuhorni hefur heimildir fyrir því að þessi handvömm við framkvæmd prófsins hafi lagst afar…Lesa meira

true

Matarbúr Kaju flutt á nýjan stað

Í lok síðustu viku flutti Karen Jónsdóttir verslun sína og kaffihús, Matarbúr Kaju og Café Kaja, frá Kirkjubraut 54 að Stillholti 23 á Akranesi. Nýja húsnæðið hentar vel fyrir verslun og matvælavinnslu, en ekki er síst kostur að húsnæðinu fylgir stórt eldhús. Þar mun meðal annars lífrænt pasta og jurtamjólk verða framleidd. Framvegis hyggst Kaja…Lesa meira

true

Listi Sjálfstæðismanna í Borgarbyggð samþykktur

Töluverð breyting verður á skipan efstu sæta framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggðar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi. Úr forystusætum hverfa þau Björn Bjarki Þorsteinsson, Jónína Erna Arnardóttir og Hulda Hrönn Sigurðardóttir, en Lilja Björg Ágústsdóttir, sem skipaði fjórða sæti listans við síðustu kosningar, færist upp í oddvitasætið og nýir á lista skipa sætin þar á eftir.…Lesa meira

true

Óvíst hvað verður um Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum

„Starfsemi okkar verður ekki hætt, en það er óljóst hvert við förum eftir næsta vetur,“ segir Anna Margrét Tómasdóttir, forstöðukona Ungmenna- og tómstundabúðanna að Laugum í Sælingsdal í samtali við Skessuhorn. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá stendur til að selja mannvirkin á Laugum og því er óvissa hvað verður um Ungmenna- og tómstundabúðirnar,…Lesa meira

true

Gáfu HVE í Stykkishólmi sjónvarp

Kvenfélag Ólafsvíkur færði nýverið legudeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi Sony sjónvarp að gjöf. Það voru þær Hanna Metta Bjarnadóttir, Steiney K. Ólafsdóttir og Sóley Jónsdóttir í stjórn félagsins sem afhentu Hafrúnu Bylgju, sjúkraliða á legudeildinni sjónvarpið ásamt veggfestingu. Mun Hafrún sjá til þess að sjónvarpinu verði komið fyrir á endanlegum stað á deildinni. Vildu hún…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við Smiðjuloftið á Akranesi

Hjónin Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson standa í stórræðum þessa dagana en þau eru að hefja framkvæmdir við nýtt afþreyingarsetur að Smiðjuvöllum 17 á Akranesi. Þetta nýja fyrirtæki þeirra hjóna hefur fengið nafnið Smiðjuloftið. „Ætlunin er að setja upp klifursal á neðri hæðinni og vera með sal sem hægt er að nýta fyrir námskeið og…Lesa meira

true

Cristina Cotofana sýnir í Hallsteinssal Safnahúss

Myndlistarkonan Cristina Cotofana sýnir í Hallsteinssal í Safnahúsinu í Borgarnesi frá 10. mars til 20. apríl nk.  Cristina er fædd í Rúmeníu en ólst upp í Þýskalandi. Hún lagði stund á listnám í Hannover og útskrifaðist árið 2008. Eftir að hafa skapað list með og fyrir fatlaða flutti hún til Íslands árið 2011, varð þriggja…Lesa meira