Fréttir

true

Gáfu HVE í Stykkishólmi sjónvarp

Kvenfélag Ólafsvíkur færði nýverið legudeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í Stykkishólmi Sony sjónvarp að gjöf. Það voru þær Hanna Metta Bjarnadóttir, Steiney K. Ólafsdóttir og Sóley Jónsdóttir í stjórn félagsins sem afhentu Hafrúnu Bylgju, sjúkraliða á legudeildinni sjónvarpið ásamt veggfestingu. Mun Hafrún sjá til þess að sjónvarpinu verði komið fyrir á endanlegum stað á deildinni. Vildu hún…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við Smiðjuloftið á Akranesi

Hjónin Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson standa í stórræðum þessa dagana en þau eru að hefja framkvæmdir við nýtt afþreyingarsetur að Smiðjuvöllum 17 á Akranesi. Þetta nýja fyrirtæki þeirra hjóna hefur fengið nafnið Smiðjuloftið. „Ætlunin er að setja upp klifursal á neðri hæðinni og vera með sal sem hægt er að nýta fyrir námskeið og…Lesa meira

true

Cristina Cotofana sýnir í Hallsteinssal Safnahúss

Myndlistarkonan Cristina Cotofana sýnir í Hallsteinssal í Safnahúsinu í Borgarnesi frá 10. mars til 20. apríl nk.  Cristina er fædd í Rúmeníu en ólst upp í Þýskalandi. Hún lagði stund á listnám í Hannover og útskrifaðist árið 2008. Eftir að hafa skapað list með og fyrir fatlaða flutti hún til Íslands árið 2011, varð þriggja…Lesa meira

true

Grettir sterki gæddur lífi á Sögulofti

Grettis saga Einars Kárasonar var frumsýnd síðasta föstudagskvöld á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Einar er gestum Söguloftsins að góðu kunnur enda hefur hann áður sagt þar sögur, einnig með fulltingi dóttur sinnar. Einar er hins vegar einn á ferð í þessari sýningu og Söguloftið reynist réttnefni, sýningin er ekki einleikur, með öllum þeim form- og…Lesa meira

true

Þemadagar í Menntaskóla Borgarfjarðar

Í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi var hefðbundin kennsla lögð niður í síðustu viku fyrir þemadaga. Þá fengu nemendur að spreyta sig á ýmsum öðruvísi verkefnum í stærri og minni hópum og var þetta kærkomin tilbreyting frá hefðbundnu skólastarfi, bæði fyrir nemendur og kennara. Að þessu sinni var þemað Saga jarðvangur og unnu hóparnir ýmis verkefni…Lesa meira

true

Loðnufrystingin hálfnuð á Akranesi

Síðastliðinn fimmtudag var landað fyrsta loðnufarminum á Akranesi á þessari vertíð. Það var Venus NS sem kom með um þúsund tonn að landi kvöldið áður. Gunnar Hermannsson, verkstjóri á Akranesi, sem stýrt hefur hrognaskurði og -frystingu fyrir HB Granda mörg undanfarin ár, segir í samtali við Skessuhorn að vinnslan gangi prýðilega. „Við höfum ekki stoppað…Lesa meira

true

Jón Orri leggur skóna á hilluna

Miðherjinn Jón Orri Kristjánsson ætlar að láta leik sinn með ÍA gegn FSu annað kvöld verða hinn síðasta löngum og farsælum körfuknattleiksferli. Frá þessu er greint í tilkynningu á Facebook-síðu Körfuknattleiksfélags ÍA. Jón Orri, sem verður 35 ára í apríl, hóf meistaraflokksferil sinn með ÍA fyrir 19 árum síðan, árið 1999 og lék með liði…Lesa meira

true

Gekkst undir magabandsaðgerð sem misheppnaðist

„Ég fór í fyrsta megrunarklúbbinn þegar ég var sjö ára gömul.  Ég var með spjald og var vigtuð og mæld,“ segir Jóhanna Sigmarsdóttir, sem fór í magabandsaðgerð fyrir rúmu ári. „Ef ég hafði misst kíló yfir vikuna þá fékk ég að velja mér verðlaun og ég valdi alltaf að fara á Pizzahúsið sem var þá…Lesa meira

true

Innbrotafaraldur teygir sig í Borgarnes

Lögreglan á Vesturlandi segir að á undanfarinni viku hafi verið nokkuð um tilkynningar vegna grunsamlegra mannaferða í umdæminu, einkum í þéttbýlisstöðunum Akranesi og Borgarnesi. Lögreglan hvetur íbúa þessara staða til að vera vel á verði, læsa híbýlum sínum og ökutækjum og tilkynna strax til lögreglu í síma 112 verði íbúar varir við eitthvað óeðlilegt í…Lesa meira

true

Hallarbylting í Eflingu stéttarfélagi

Félagsmenn í stéttarfélaginu Eflingu hafa kosið nýja forystu, en úrslit kosninga lágu fyrir seint í gærkvöldi. Í fyrsta skipti í sögu þessa rótgróna verkalýðsfélags fór fram listakosning. Afgerandi sigur í kosningunni hlaut B-listi, nýtt framboð sem Sólveig Anna Jónsdóttir leiddi. Hlaut B listi 2099 atkvæði eða um 80% greiddra atkvæða. A-listi sem studdur var af…Lesa meira