Fréttir

true

Laganemar fluttu mál í héraðsdómi

Meistaranemar í lögfræði við Háskólann á Bifröst fluttu mál í Héraðsdómi Vesturlands í lok síðustu viku en málflutningurinn er hluti af námskeiðinu Málflutningur fyrir dómi. „Málflutningurinn er mikilvægur hluti námsins og hagnýtt verkefni sem veitir nemendum þjálfun og gefur þeim innsýn í starf lögmanna. Hægt er að kynna sér krefjandi laganám við Háskólann á Bifröst…Lesa meira

true

Skagamenn spila í bikarnum á morgun

Skagamenn mæta Breiðabliki í 16-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í knattspyrnu karla á morgun. Skagamenn komust síðast í 16-liða úrslit bikarsins árið 2013 og mættu þá einnig liði Breiðabliks. Sá leikur fór í framlengingu en í henni hrundi leikur Skagamanna og fengu þeir á sig þrjú mörk. Leikið verður á Akranesvelli klukkan 19:15 og má búast…Lesa meira

true

Útskrifaðist með hæstu einkunn í sögu skólans

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga var 27. maí síðastliðinn. Meðal þeirra sem lauk stúdentsprófi frá skólanum var Viktoría Ellenardóttir, með einkunnina 9,74, hæstu meðaleinkunn í sögu skólans. Viktoría lauk náminu á þremur árum og hlaut einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði, tungumálum, raungreinum, íslensku, spænsku og ensku. Að sögn Viktoríu var það alls ekki markmið…Lesa meira

true

Steini lagði af stað úr Borgarnesi klukkan 10

Þorsteinn Eyþórsson, 62 ára Borgnesingur, lagði af stað í morgun hjólandi úr Borgarnesi áleiðis hringveginn. Eftir hressingu í Geirabakaríi var lagt af stað og hjólaði Ingibjörg dóttir Steina með honum fyrsta spölinn. Fyrsti áfangastaður í ferðinni er Hrútatunga. Steini kveðs ekki ætla að verða með neinn æsing í ferðinni og stefnir á að taka 16 daga…Lesa meira

true

Fengu viðurkenningu fyrir framúrskarandi öryggisvitund

Á Sjómannadaginn síðastliðinn sunnudag hlutu áhafnir þriggja skipa á Snæfellsnesi viðurkenningar frá Landsbjörgu fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Þetta voru áhafnir Steinunnar SH 167, Egils SH 195 og Sveinbjörns Jakobssonar SH 10. Á Steinunni SH 167 er Brynjar Kristmundsson skipstjóri og tók Þór Kristmundsson á móti viðurkenningunni fyrir hönd…Lesa meira

true

Það kom dúxinum sjálfum mest á óvart að hann væri hæstur

Kristinn Bragi Garðarsson lauk stúdentsprófi af náttúrfræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands í lok síðasta mánaðar. Hann hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2016 og fyrir ágætan árangur í stærðfræði. Kristinn Bragi segir í samtali við Skessuhorn að sér hafi alltaf gengið sæmilega í námi og að hann hafi í raun aldrei þurft að hafa…Lesa meira

true

Rarik boðar straumleysi á Snæfellsnesi næstu nótt

Í tilkynningu frá Rarki segir: „STRAUMLEYSI: Snæfellsnes norðanvert, Staðarsveit, Breiðavík, Eyja-, Miklaholts-, og Kolbeinstaðahreppur.“ Raforkunotendur á Staðarsveitar-, og Laugagerðislínum á Snæfellsnesi, rafmagnslaust verður aðfararnótt 9. júní frá miðnætti til kl. 07:00 vegna vinnu á 66 kV flutningslínu Landsnets. Búast má við rafmagnstruflunum á norðanverðu Snæfellsnesi á saman tíma. Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem af…Lesa meira

true

Móðir á Akranesi dúxaði í Tækniskólanum

Skagakonan Anna Kristín Ólafsdóttir dúxaði nú á dögunum þegar hún útskrifaðist frá Tækniskólanum. Hún lærði grafíska miðlun við skólann og útskrifaðist með einkunnina 9,85. Anna Kristín er þrítug að aldri og útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 2006. Að því búnu lærði hún þjóðfræði við Háskóla Íslands og tók síðan meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun við…Lesa meira

true

Fasteignamat á Vesturlandi hækkar mest í Dalabyggð

Þjóðskrá Íslands tilkynnir fasteignaeigendum í júní ár hvert um nýtt fasteignamat. Nýtt mat tekur gildi 31. desember 2016 og gildir fyrir árið 2017. Fasteignamatið er notað sem grunnur við álagningu sveitarfélaga á fasteignagjöldum, en þau leggja eins og kunnugt er mismunandi háa álagningarprósentu ofan á þann grunn. Heildarfasteignamat á landinu hækkar um 7,8% að jafnaði og…Lesa meira

true

Skuggi heldur Íslandsmót yngri flokka um miðjan júlí

Hestamannafélagið Skuggi mun halda Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum 2016 dagana 14. – 17. júlí í sumar. Undirbúningur stendur nú yfir og er formaður framkvæmdanefndar Stefán Logi Haraldsson formaður Hestamannafélagsins Skugga. Framkvæmdastjóri mótsins er Svanhildur Svansdóttir. „Það er ætlun hestamannafélagsins Skugga að í Borgarnesi, á félagssvæði Skugga við Vindás, verði haldið glæsilegt mót þar sem…Lesa meira